Prentmet Oddi

Call Directions Website Contact the business

Prentmet Oddi Það starfa skemmtilegir og metnaðarfullir snillingar hjá Odda og sinna þar kröfuhörðum viðskiptavinum með allt sem varðar prentþjónustu.

📚 DAVÍÐSTÍMINN – NÝ BÓK ÚR PRENTSMIÐJUNNI!Það er alltaf ánægjulegt að sjá nýjar bækur verða að veruleika! 📖Við hjá Prent...
01/11/2026

📚 DAVÍÐSTÍMINN – NÝ BÓK ÚR PRENTSMIÐJUNNI!

Það er alltaf ánægjulegt að sjá nýjar bækur verða að veruleika! 📖

Við hjá Prentmet Odda höfðum ánægju af því að prenta bókina Davíðstíminn – Sjálfstæð saga lands og leiðtoga eftir þá feðga Jón Trausta Reynisson og Reyni Traustason. Góður punktur - Bækur gefur bókina út.

Bókin er 488 blaðsíður og fjallar um sögu lands og leiðtoga þar sem húmor, hnyttni, klókindi og harka fléttast saman.

Það er okkur sönn ánægja að fá að leggja okkar af mörkum við útgáfu íslenskra bóka og sjá metnaðarfull verk taka á sig endanlega mynd í prentsmiðjunni.

📖 Við óskum höfundum og útgefanda innilega til hamingju með bókina! 💐

Davíðstíminn - Sjálfstæð saga lands og leiðtoga eftir Jón Trausta Reynisson og Reyni Traustason kemur út á næstu vikum. Að því tilefni mun útgáfan bjóða forgang á bókina þegar hún kemur úr prentun. Verð með virðisaukaskatti og áritun er 8900 kr. Kaupandi greiðir bókina inn á reikning Góðs punkts: 0154-26-012180. Kennitala 490804-2180. Senda skaL heimilisfang og staðfestingu greiðslu á [email protected]. Ef áritunar er óskað þarf að tilgreina það. Ef póstsenda þarf bókina verður það á kostnað kaupanda. Annars verður bókin afhent í Ármúla 42 fyrir útgáfudag, 1. nóvember. Davíðstíminn er 488 síður. Sagan geymir í senn húmor, hnyttni, klókindi og hörku.

🩷🎀 Bleikur dagur hjá Prentmet Odda! 🎀🩷Það var heldur betur bleik stemning hjá okkur í Prentmet Odda í dag! 🩷Starfsfólkið...
21/10/2026

🩷🎀 Bleikur dagur hjá Prentmet Odda! 🎀🩷

Það var heldur betur bleik stemning hjá okkur í Prentmet Odda í dag! 🩷

Starfsfólkið mætti í bleiku, bleiku slaufurnar voru á sínum stað og í kaffitímanum gæddum við okkur á girnilegum bleikum veitingum. 🧁☕

Ekki létum við þar við sitja því húsið okkar skartar líka fallegri bleikri lýsingu sem lýsir upp haustmyrkrið. ✨

Það má því segja að okkur hafi tekist að lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma! 💕

Með þessu viljum við sýna öllum konum sem greinst hafa með krabbamein stuðning okkar, hlýhug og samstöðu. 🩷

Saman lýsum við upp myrkrið – með von, hlýju og samstöðu. 🎀

Gróðursett var tré Jafnvægisvogarinnar fyrir Prentmet Odda í Jafnréttislundi í Heiðmörk í dag 🌲💛
15/10/2026

Gróðursett var tré Jafnvægisvogarinnar fyrir Prentmet Odda í Jafnréttislundi í Heiðmörk í dag 🌲💛

15/10/2026

Prentmet Oddi hlýtur FKA viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar!

Velkomin í hópinn starfsmenn á Egilstöðum 🎉Það eru spennandi tímar hjá Prentmet Odda! Um mánaðamótin tók fyrirtækið við ...
10/10/2026

Velkomin í hópinn starfsmenn á Egilstöðum 🎉

Það eru spennandi tímar hjá Prentmet Odda! Um mánaðamótin tók fyrirtækið við rekstri Héraðsprents á Egilsstöðum og við bjóðum því frábæran hóp nýrra samstarfsfélaga velkominn í Prentmet Odda-fjölskylduna. 😊

Karl Emil Guðmundsson er grafískur hönnuður og hefur tekið við starfi útibússtjóra Prentmet Odda á Egilsstöðum. Með honum starfar öflugur hópur sem býr yfir dýrmætri reynslu og þekkingu:

Ingunn Anna Þráinsdóttir – grafískur hönnuður
Sara Lind Magnúsdóttir - aðstoðarmanneskja
Líney Petra Hugadóttir – grafískur hönnuður
Rósmundur Magnússon – prentari
Fyrsta vikan er nú að baki og hefur gengið afar vel. Nýju samstarfsfélagarnir okkar hafa tekið breytingunum með jákvæðni og krafti og aðlögun að starfsháttum Prentmet Odda gengur vel.

Við erum virkilega ánægð með að fá þennan öfluga hóp til liðs við okkur og hlökkum til samstarfsins. Það er alltaf ánægjulegt þegar hópurinn stækkar og ný reynsla, þekking og ferskir kraftar bætast í hópinn.

Verið hjartanlega velkomin í Prentmet Odda – við hlökkum til að vinna með ykkur! 💙

Texti með mynd:

T.v. Karl, Ingunn, Líney, Sara, Líney og Rósmundur.

https://www.prentmetoddi.is/prentmet-oddi/starfsfolk

Við vorum með bás á Sjávarútvegssýningunni í vikunni. Arnaldur Þór Guðmundsson aðstoðarframkvæmdastjóri var með góða gre...
25/09/2026

Við vorum með bás á Sjávarútvegssýningunni í vikunni. Arnaldur Þór Guðmundsson aðstoðarframkvæmdastjóri var með góða grein í Fiskifréttum sem var dreift á sýningunni 😊

Frá Prentmeti til Prentmets Odda – 34 ár af þrautseigju og vexti.

Tækniskóladagurinn hjá Prentmet OddaÍ gær fengum við skemmtilega heimsókn frá nemendum Tækniskólans sem komu til okkar f...
25/09/2026

Tækniskóladagurinn hjá Prentmet Odda

Í gær fengum við skemmtilega heimsókn frá nemendum Tækniskólans sem komu til okkar frá fjölbreyttum fagsviðum til að kynnast starfseminni, fólkinu okkar og íslenskum prentiðnaði.

Dagurinn gaf nemendum tækifæri til að sjá með eigin augum hvernig þekking úr skólanum tengist raunverulegum verkefnum og fjölbreyttum störfum í atvinnulífinu. Það er alltaf gaman að fá ungt og áhugasamt fólk í heimsókn og eiga samtal um tækifærin sem bíða þess að námi loknu. 💡

Markmið Tækniskóladagsins er einmitt að efla tengsl nemenda við atvinnulífið og gefa þeim innsýn í fjölbreytt störf og fyrirtæki sem tengjast þeim fagsviðum sem kennd eru við skólann.

Takk fyrir komuna – það var virkilega gaman að fá ykkur í heimsókn! 👋

Nú standa yfir Svansdagar. https://svanurinn.is/svansdagar/Prentmtet Oddi tekur þátt í þessum dögum. Við hjá Prentmet Od...
24/09/2026

Nú standa yfir Svansdagar. https://svanurinn.is/svansdagar/
Prentmtet Oddi tekur þátt í þessum dögum. Við hjá Prentmet Odda leggjum mikla áherslu á umhverfisábyrgð og stöðuga þróun í sjálfbærri prentframleiðslu og erum með Svansvottað fyrirtæki frá 2009 og það styttist einnig í FSC vottunina 🎄 Hérna getið þið séð stutt myndband um hvernig þetta gengur fyrir sig 🙂🌱
https://www.prentmetoddi.is/prentmet-oddi/umhverfid

Svansvottuð prentframleiðsla sem lágmarkar skaðleg efni, dregur úr úrgangi og nýtir endurnýjanlega orku.

Við erum á ICH Fish 2026 í Fífunni, bás P‑41 með okkar vinum í Efniskaup. Við erum að sýna þær lausnir sem við getum boð...
23/09/2026

Við erum á ICH Fish 2026 í Fífunni, bás P‑41 með okkar vinum í Efniskaup. Við erum að sýna þær lausnir sem við getum boðið íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum og matvælaframleiðendum í umbúðum 😊

Heitir og kaldir drykkir og áhugavert spjall bíða ykkar við sýningarbásinn 😊☕️🍺🥨

Prentmet Oddi hefur keypt prentsmiðjuna Héraðsprent á Egilsstöðum ásamt 520 fermetra fasteign félagsins.Með kaupum Prent...
22/09/2026

Prentmet Oddi hefur keypt prentsmiðjuna Héraðsprent á Egilsstöðum ásamt 520 fermetra fasteign félagsins.
Með kaupum Prentmet Odda á félaginu skapast rekstrargrundvöllur til að halda úti starfsemi á Austurlandi og þjónusta vel þennan landshluta.

Prentmet Oddi er í dag með starfsstöðvar á höfuðborgarsvæðinu ásamt útibúum á Norðurlandi og Suðurlandi. Samtals starfar félagið nú í yfir 9.500 fermetrum og er með tæplega 80 starfsmenn. Félagið býður upp á heildarlausnir í umbúðum og prentun og nú fá íbúar Austurlands að njóta aukins vöruframboðs í hinum ýmsu vöruflokkum Prentmet Odda.

Saga Héraðsprents hófst árið 1972 þegar hjónin Þráinn Skarphéðinsson og Gunnhildur Ingvarsdóttir stofnuðu félagið í litlum bílskúr á Egilsstöðum. Með árunum óx félagið og dafnaði og hefur verið staðsett í hjarta bæjarins á Egilsstöðum, að Miðvangi 1 sl. 25 ár. Líkt og Prentmet Oddi er félagið Svansvottað og hefur verið þekkt fyrir góða þjónustu og góð gæði.

Eigendur Prentmet Odda vilja þakka þeim hjónum Gunnhildi og Þráni fyrir frábært samstarf í gegnum árin og megi komandi tímar verða þeim ánægjulegir.

Prentmet Oddi hefur yfirtekið prentsmiðjuna Héraðsprent á Egilsstöðum ásamt 520 fermetra fasteign félagsins.

Address

Lynghálsi 1
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:30
Tuesday 08:00 - 16:30
Wednesday 08:00 - 16:30
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

+3545600600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Prentmet Oddi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Prentmet Oddi:

Shortcuts

Share

Nearby businesses