12/09/2024
K. Þorsteinsson eflir rústabjörgunarviðbragð með gjöf á skóflum og kröflum til Hjálparsveitar skáta í Kópavogi!
Hjá okkur í Hjálparsveit skáta í Kópavogi starfar gríðarlega öflugur hópur sem sérhæfir sig í viðbragði við hvers kyns náttúruhamförum, hvort sem það eru ofanflóð, skriðuföll, jarðskjálftar, hellahrun eða annað sem náttúran getur látið dynja á okkur. Við í HSSK erum tilbúin í verkefnið og vinnum það af fagmennsku.
Í síðustu verkefnum hjá hópnum hefur notagildi kröflunnar margsannað sig þar sem þær eru þægilegar í tilfærslu á efni. Lítið var til af verkfærum til slíkra verka en nú getur hópurinn mætt fullbúinn og klár í slaginn.
Við þökkum kærlega góðan stuðning og gríðarlega velvild K. Þorsteinssonar í garð sveitarinnar nú, sem og síðustu ár.