22/04/2020
4 - FERÐUMST HEIM!
KROSSGÖTUR á KÓRÓNUDÖGUM
ÓSKASPJALDIÐ
Þið ættuð nú að vera komin á þann stað að hafa sameiginlegan skilning á því sem er mikilvægt fyrir ykkur og hvert þið viljið stefna með sambandið ykkar. Þið hafið þannig ákveðnar óskir um þróun sambandsins í framtíðinni.
Þegar hér er komið eruð þið tilbúin fyrir síðasta verkefnið sem fjallar um að búa til myndræna framtíðarsýn.
Það gerið þið með því að byrja á að horfa fram á veginn og sjá fyrir ykkur hvernig sambandið er eftir 3 ár.
- Hvar erum við saman eftir þrjú ár?
- Hvernig lítur sambandið okkar út eftir 1 ár?
- Hvað erum við að gera saman eftir 6 mánuði?
Framtíðarsýn er hægt að gera á mismunandi vegu og fyrir ólík lífssvið. Þið ætlið að halda áfram að hafa fókus á sambandið og hvernig þið viljið láta það þróast.
Þess vegna ætlið þið nú saman að klippa orð og myndir sem myndrænt tjá það sem þið óskið að hafa í sambandinu.
Ef þið sem dæmi óskið að ferðast meira klippið þið myndir og orð sem tengjast ferðalögum, skíðamyndir ef þið viljið fara í skíðaferð eða dans og sólaströnd ef við á …
UNDIRBÚNINGUR: Blöð og tímarit, skæri, lím, A3 pappaspjald
FERLIÐ:
1) Þið byrjið á að klippa myndir og orð. Það má klippa allt sem þið hvort fyrir sig tengið við samning ykkar um óskasamband. Gott er að gefa þessu ferli góðan tíma.
2) Þegar þið hafið klippt og klippt og klippt, orð og myndir takið þið spjaldið ykkar og leggið á borðið.
3) Nú er komið að því að líma úrklippurnar á spjaldið ykkar og þar sem þetta er YKKAR ÓSKASPJALD FYRIR SAMBANDIÐ ER MIKILVÆGT AÐ VINNA VERKIÐ SAMAN 😊