Ráðgjöf og verkefnastjórnun

Ráðgjöf og verkefnastjórnun Ráðgjöf og verkefnastjórnun

Ráðgjöf og verkefnastjórnun sérhæfir sig í verkefnastjórnun en sinnir jafnframt almannatengslum og krísustjórnun og veitir almenna ráðgjöf á sviði samningsgerðar, miðlunar og samningatækni.

Ráðgjöf og verkefnastjórnun stendur ásamt Ístaki og Yrki arkitektum í samstarfi við Landsbankann og þær Guju Dögg Hauksd...
16/03/2018

Ráðgjöf og verkefnastjórnun stendur ásamt Ístaki og Yrki arkitektum í samstarfi við Landsbankann og þær Guju Dögg Hauksdóttur og Áslaugu Guðrúnardóttur að Þorpinu-vistfélagi. Félagið á eina þeirra hugmynda sem munu keppa um þær 500 lóðir sem borgin ætlar að ráðstafa fyrir fyrstu kaupendur og hagkvæmt húsnæði.

19/01/2018

Ráðgjöf og verkefnastjórnun hefur verkefnastýrt þessu verkefni í samstarfi Starfsmenntasjóðs, VR, SVÞ, Bifrastar og HR undanfarið ár. Nú er komið að því að hefja kennslu!

Ráðgjöf og verkefnastjórnun hefur undanfarin þrjú ár unnið að þróun fagháskólanáms hérlendis m.a. fyrir mennta- og menni...
22/11/2017

Ráðgjöf og verkefnastjórnun hefur undanfarin þrjú ár unnið að þróun fagháskólanáms hérlendis m.a. fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið, ASÍ, BSRB, SA og fleiri samtök og félög á vinnumarkaði.

Stór áfangi í þessu stóra og mikilvæga verkefni er í dag þegar fyrsta afurð þessarar vinnu er auglýst á vef Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks.

Um er að ræða diplómanám með vinnu í viðskiptafræði og verslunarstjórnun fyrir verslunarfólk. Námið er samstarfsverkefni Bifrastar og HR og hefur verið þróað í samstarfi háskólanna, starfandi verslunarstjóra og lykilfyrirtækja auk Starfsmenntastjóðs sem sem einnig niðurgreiðir skólagjöld nemenda.

Námið er 60 ECTS einingar og fá nemendur það metið upp í BS nám í viðskiptafræði við báða skólana að því loknu.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðum sjóðsins og háskólanna þar sem einnig er hægt að sækja um.

nýtt diplómanám í verslunarstjórnun

16/06/2017

Ráðgjöf og verkefnastjórnun hefur frá því í haust unnið með aðilum vinnumarkaðarins (ASÍ, BSRB og SA) og íslenskum framhalds- og háskólum að þróun fagháskólanáms. Áfangaskil í þessu viðamikla verkefni urðu í dag þegar samstarf í þremur verkefnum var staðfest. Um er að ræða fagháskólanám í verslunarstjórnun sem HR, Bifröst og Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks hafa samið um að þróa, fagháskólanám í öldrunarhjúkrun fyrir sjúkraliða sem HA og Sjúkraliðafélag Íslands hafa samið um og fagháskólanám í iðn-, verk,- og tækninámi á vegum HR, Tækniskólans, IÐUNNAR og Rafiðnaðarskólans.

23/03/2017

Samningar hafa náðst við sveitarfélög á Suðurnesjum um skipulagsmál vegna fluglestarinnar sem áform eru um að muni ganga á milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur. „Þetta er flókið mál og horfa þarf til margra þátta,“ segir framkvæmdastjóri.

Runólfur Ágústsson verkefnastjóri verður með erindi um Fagháskólann á Menntadegi atvinnulífsins á morgun.
01/02/2017

Runólfur Ágústsson verkefnastjóri verður með erindi um Fagháskólann á Menntadegi atvinnulífsins á morgun.

Ráðgjöf og verkefnastjórnun hefur unnið að því að koma af stað fagháskólanámi hérlendis frá því í nóvember í fyrra, fyrs...
17/10/2016

Ráðgjöf og verkefnastjórnun hefur unnið að því að koma af stað fagháskólanámi hérlendis frá því í nóvember í fyrra, fyrst fyrir aðila vinnumarkaðarins (ASÍ og SA) en frá því í apríl fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið.

Að þessu verkefni hafa einnig komið samtök stúdenta, háskólasamfélagið og framhaldsskólar. Samtstaða náðist um málið og í dag var skýrsla verkefnishópsins kynnt, sem og samkomulag um fjármögnun verkefnisins fyrir næstu tvö ár þar sem atvinnulífið leggur til 1/3 en ríkið 2/3.

Hér má sjá forsvarsfólk Samtaka atvinnulífsins, Alþýðusambands Íslands og BSRB undirrita samkomulag um stofnun þróunarsjóðs um fagháskólanám með menntamálaráðherra.

26/05/2016

Eftirfarandi var samþykkt í borgarráði í dag og er Reykjavíkurborg boðin velkomin í hóp stofnaðila þróunarfélags um fluglest.

"Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 17. maí 2016:

Lagt er til að borgarráð samþykki að Reykjavíkurborg verði stofnaðili og hlutafjáreigandi í hlutafélagi um þróun og byggingu mögulegrar hraðlestar milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkurborgar. Reykjavíkurborg eignist 3% hlut í félaginu með því að leggja inn sem stofnfé þegar framlagðan kostnað við frumskoðun verkefnisins. Borgarráð hafði áður samþykkt að leggja fram fé til frumskoðunar. Jafnframt samþykki borgarráð að eftir stofnfund verði breyting á hlutafjáreign Reykjavíkurborgar vegna innkomu aukins hlutafjár í verkefnið sem geri það að verkum að eign Reykjavíkurborgar verði þá 2%.

Greinargerð fylgir tillögunni. Jafnframt eru lögð fram stofnskjöl fyrir Fluglestina – Þróunarfélag ehf. R16020160
Samþykkt."

06/01/2016

Sveitarfélög á Suðurnesjum semja við Þróunarfélag um fluglest um skipulagsmál og þróun hraðlestar milli Keflavíkurflugvallar og miðborgar Reykjavíkur.

----

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti í dag drög að samningi um þróun og skipulag hraðlestar við Þróunarfélag um fluglest. Áður höfðu Vogar, Sveitarfélagið Garður og Sandgerði gert slíkt hið sama.

Sambærilegt erindi er til meðferðar hjá stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ásamt Reykjavíkurborg, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði.

Ráðgjöf og verkefnastjórnun óskar samstarfsaðilum og viðskiptavinum gleðilegra jóla með þökk fyrir farsælt samstarf á li...
22/12/2015

Ráðgjöf og verkefnastjórnun óskar samstarfsaðilum og viðskiptavinum gleðilegra jóla með þökk fyrir farsælt samstarf á liðnu ári. Vinnum saman að því að gera samfélagi okkar gagn á nýju ári með ósk um ást, gleði, framfarir og frið.

Address

Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ráðgjöf og verkefnastjórnun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Ráðgjöf og verkefnastjórnun:

Share