04/11/2026
Grein númer 4 í Englafjárfestingum 101 er komin út 📣
Að þessu sinni: áreiðanleikakönnun🔎
Þetta er eitt af þessum hugtökum sem getur hljómað miklu flóknara en það þarf að vera. Í grunninn snýst þetta um að sannreyna það sem skiptir mestu máli áður en fjárfest er og skilja betur hvar áhættan liggur.
Og nei, hver engill þarf ekki að verða sérfræðingur í samþykktum, samningum og lögfræði. Margir leggja mesta áherslu á að kynnast teyminu vel og skilja markaðinn, en fá svo aðstoð frá leiðandi fjárfesti, reyndari englum eða sérfræðingum þegar þarf að fara á dýptina.
Í greininni förum við yfir hvað er gagnlegt að skoða og hversu langt þarf raunverulega að ganga👣
Lesið hér: https://www.iceban.is/frodleikur/englafjarfestingar-101.4