Vinnvinn

Call Directions Website Contact the business

Vinnvinn Við sérhæfum okkur í ráðningum stjórnenda og sérfræðinga í öllum greinum atvinnulífsins og höfum tengt öflugasta fólkið við réttu fyrirtækin í yfir 20 ár.

30/10/2026

Atlantsolía leitar að jákvæðum og sjálfstæðum þjónustufulltrúa til að taka að sér að veita viðskiptavinum góða þjónustu með hröðum og einföldum hætti.

Ef þú ert skemmtilegur samskiptasnillingur með brennandi áhuga á að veita framúrskarandi þjónustu þá gæti þetta verið rétta starfið fyrir þig.

Frekari upplýsingar fást hér: https://recruitcrm.io/apply/17933591405190163013OZG

14/10/2026

GoPro leitar að öflugum fjármálastjóra til að taka við lykilhlutverki í rekstri og áframhaldandi þróun GoPro og dótturfélaganna Hugvits og Canalix.

Fjármálastjóri ber ábyrgð á fjármálastjórn GoPro, Hugvits og Canalix en hlutverkið er talsvert breiðara en hefðbundið fjármálastjórastarf.

Viðkomandi vinnur náið með stjórnendum og stjórn GoPro, framkvæmdastjórum Hugvits og Canalix, stjórnum félaganna og er mikilvægur viðskipta- og rekstrarlegur samstarfsaðili stjórnenda.

Nánari upplýsingar hér:
https://recruitcrm.io/apply/17919795216250151791HXt

08/10/2026

ÁTVR leitar að öflugum og framsæknum leiðtoga til að stýra Vínbúðum og þjónustu og leiða áframhaldandi þróun verslana, þjónustu og upplifunar viðskiptavina.

Starfið er lykilstaða í framkvæmdastjórn ÁTVR og felur í sér víðtæka ábyrgð á rekstri og þróun starfseminnar. Við leitum að reyndum stjórnanda með sterka leiðtogahæfni, góða rekstrarlega yfirsýn og skýra sýn á hvernig þróa megi verslanir og þjónustu í takt við breyttar þarfir og væntingar viðskiptavina.

Framkvæmdastjóri þarf að vera drífandi og umbótasinnaður, hafa hæfni til að leiða breytingar og nýta gögn og greiningar markvisst við ákvarðanatöku. Jafnframt skiptir miklu að viðkomandi nái vel til fólks, byggi upp traust og samstöðu og stuðli að hvetjandi vinnuumhverfi þar sem fólk fær tækifæri til að vaxa og ná árangri.

Nánari upplýsingar hér:
https://recruitcrm.io/apply/17914612624650151791QHZ

06/10/2026

BYKO leitar að metnaðarfullum sérfræðingi í fjármálum sem vill vera hluti af sterku fjármálateymi og vinna að fjölbreyttum verkefnum sem snerta daglegan rekstur félagsins. Starfið spannar breitt svið fjármála, allt frá afstemmingum og uppgjörsvinnu yfir í greiðslur, virðisaukaskatt, efnahagsreikning og önnur verkefni sem tryggja traustan og skilvirkan fjármálarekstur.

Hér er á ferðinni spennandi tækifæri fyrir einstakling sem hefur gott vald á tölum, nýtur þess að hafa yfirsýn og vill taka ábyrgð í kraftmiklu og faglegu starfsumhverfi.

Nánari upplýsingar hér:
https://recruitcrm.io/apply/17912175809460151791VCs

06/10/2026

BYKO leitar að öflugum og drífandi sérfræðingi í innheimtu og greiðslum til að styrkja fjármálateymi fyrirtækisins. Starfið er fjölbreytt og ábyrgðarmikið og spannar meðal annars greiðslur, viðskiptakröfur, innheimtu og eftirlit með greiðsluflæði.

Við leitum að einstaklingi sem hefur gott auga fyrir tölum, vinnur skipulega og af nákvæmni og á auðvelt með samskipti. Hér er spennandi tækifæri til að taka ábyrgð, hafa áhrif á verklag og þróun og gegna mikilvægu hlutverki í öflugu fjármálaumhverfi BYKO.

Nánari upplýsingar hér:
https://recruitcrm.io/apply/17912178126410151791sPg

01/10/2026

Hugverkastofan leitar að öflugum einstaklingi með brennandi áhuga á nýsköpun og hugverkum í starf sérfræðings.

Í boði er spennandi starf í nútímalegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á teymisvinnu hjá metnaðarfullri stofnun sem starfar í alþjóðlegu umhverfi. Starfið er á hugverka- og stjórnsýslusviði.

Nánari upplýsingar hér:
https://recruitcrm.io/apply/17907730473880124612Mfz

01/10/2026

Lögfræðingur

Hugverkastofan leitar að öflugum einstaklingi með brennandi áhuga á nýsköpun og hugverkum í starf lögfræðings.

Í boði er spennandi starf í nútímalegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á teymisvinnu hjá metnaðarfullri stofnun sem starfar í alþjóðlegu umhverfi. Starfið er á hugverka- og stjórnsýslusviði.

Nánari upplýsingar hér:
https://recruitcrm.io/apply/17907731677620124612Scx

22/09/2026

VIRK leitar að framsýnum leiðtoga sem vill móta og leiða þróun tækni, gagna og stafrænnar þjónustu og hafa þannig áhrif á stafræna framtíð VIRK.

Sviðsstjóri leiðir svið upplýsingatækni- og gagnamála og ber heildarábyrgð á stefnumótun, forgangsröðun, rekstri og þróun upplýsingatækni, stafrænnar þróunar og gagnamála hjá VIRK. Í starfinu felst að tryggja að upplýsingatækni, gögn og stafrænar lausnir styðji við stefnu, þjónustu og áframhaldandi þróun VIRK með öruggum, hagkvæmum og notendamiðuðum hætti.

Frekari upplýsingar finnast hér: https://recruitcrm.io/apply/17900776732100124612HFd

18/09/2026

Hrafnista óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan stjórnanda til að leiða upplýsingatækni og stafræna þróun Hrafnistu og Sjómannadagsráðs.

Um er að ræða nýtt lykilstarf hjá einu stærsta heilbrigðisfyrirtæki landsins, þar sem tækni gegnir sívaxandi hlutverki í að auka öryggi og vellíðan íbúa og gefa starfsfólki aukinn tíma við að sinna því sem mestu skiptir: fólkinu sjálfu.

Frekari upplýsingar finnast hér: https://recruitcrm.io/apply/17897308730980124612mAP

16/09/2026

Verðurstofa Íslands leitar að kraftmiklum einstaklingi í starf framkvæmdastjóra fjármála- og rekstrarsviðs. Fjármála- og rekstrarsvið annast fjármálastjórn, reikningsskil, greiningu og miðlun upplýsinga um fjármál og rekstur. Sviðið veitir stjórnendum stuðning og stuðlar að gagnsæi og vandaðri upplýsingagjöf innan stofnunarinnar og til stjórnvalda. Jafnframt ber sviðið ábyrgð á daglegum rekstri og innri þjónustu Veðurstofunnar, meðal annars fasteignum og starfsaðstöðu, innkaupum, öryggis- og aðgangsmálum, skjalastjórn, móttöku og mötuneyti.

Framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar leiðir starfsemi og þróun fjármála- og rekstrarsviðs og ber ábyrgð á fjármálastjórn, fjárhagsáætlanagerð og eftirfylgni innan Veðurstofunnar.

Við leitum að einstaklingi með ríka leiðtogahæfileika, sem hefur áhuga á að taka virkan þátt í öflugu stjórnendateymi, takast á við fjölbreytt og samfélagslega mikilvæg verkefni, stuðla að árangri, umbótum og jákvæðum liðsanda. Viðkomandi þarf að hafa metnað til að veita framúrskarandi þjónustu og tryggja ábyrga og skilvirka nýtingu almannafjár.

Nánari upplýsingar hér:
https://recruitcrm.io/apply/17891247238420151791FmI

Address

Kringlan 7
Reykjavík
103

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

+3545521212

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vinnvinn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Vinnvinn:

Shortcuts

Share

Nearby businesses