Habilis hefur hannað og framleitt ótal kerfi fyrir netið en samnefnari þessara kerfa er sjálfvirk söfnun upplýsinga úr gagnagrunnum, framsettum á þann hátt er nýtist notendum þeirra best. Við hjá Habilis höfum brallað ýmislegt í gegnum tíðina...
FASTEIGNAVEFUR, NETVERSLUN OG ÞJÓNUSTUVEFUR
Fasteignaleit Íslendinga fluttist í aðgangsvænt netumhverfi heima í stofu fyrir rúmum 24 árum, þegar Habilis tengdi saman allar söluskrár fasteignasala í fasteignavef. Fyrsti þjónustuvefurinn, sem smíðaður var fyrir Samskip, leit svo dagsins ljós um aldamótin síðustu. STERKUR BANDAMAÐUR
Habilis hefur hannað og framleitt ótal kerfi fyrir netið en samnefnari þessara kerfa er sjálfvirk söfnun upplýsinga úr gagnagrunnum, framsettum á þann hátt er nýtist notendum þeirra best. Yfirgripsmikil reynsla og áratugalöng þekking á nethugbúnaðarþróun ásamt framúrstefnulegri framtíðarsýn gerir því Habilis ehf. að sterkum bandamanni fyrirtækja sem hafa vefþjónustu viðskiptavina í fyrirrúmi. NÝJASTA NÝTT
INSTANT upplýsingamiðja er nýjasta kerfið okkar, það miðlar upplýsingum úr upplýsingakerfum fyrirtækja með aðgangsstýringum til notenda sem auðveldar viðskipti og samskipti viðskiptavina og starfsmanna. INSTANT má setja upp með lágmarkskostnaði á örskotsstundu sem veitir fyrirtækjum skjótan aðgang að tilbúnum þjónustuvef og netverslun en INSTANT býður upp á fjölmarga notendastýrða möguleika