28/01/2022
Sátt eftir skilnað - námskeið laugardag 12. febrúar kl. 09:00 - 15:00, auk eftirfylgni.
Námskeið fyrir einstaklinga eftir skilnað, þar sem fjallað er um sorg eftir skilnað, tilfinningar eins og skömm, höfnun, einmanaleika, reiði, eftirsjá ...o.s.frv. - og breytinginu sem verður í lífinu þegar vonir bregðast. Breytinguna á að vera par yfir í að vera ein/n. - Hvaða áhrif hefur það á sjálfsmyndina?
Vettvangur til að deila sínum hugsunum og upplifunum með fólki sem er í sömu eða svipuðum sporum undir leiðsögn Jóhönnu Magnúsdóttur, kennara og guðfræðings.
Verð á námskeiðinu er 31.900.-
Innifalinn hádegismatur, kaffi, te og ávextir - á meðan námskeiði stendur.
Staðsetning er í Hvannhólma Kópavogi
Nokkur pláss laus
Nánari upplýsingar hér í skilaboðum eða [email protected]