22/12/2017
Flottur pistill sem minnir okkur á að við berum einungis ábyrgð á okkur sjálfum þegar kemur að samskiptum og miklvægi þess að vanda sig í samskiptum.
Samskiptareglur í jólaboðum
Jólin eru flókin og það getur verið eðlilegt að kvíða þeim. Á jólum vilja flestir eiga samverustundir við sitt nánasta fólk þrátt fyrir að á sama tíma geti vaknað kvíði fyrir samskiptunum. Þegar við kvíðum erfiðum samskiptum en ætlum að ganga inn í þau og mæta í jólaboð er gott að hafa uppbyggilegar samskiptareglur að leiðarljósi:
Ég ber ábyrgð á mér og minni hegðun. Ég get einungis stýrt mínum viðbrögðum í aðstæðum hverju sinni en ekki viðbrögðum annarra. Gagnlegt er að byrja setningar á „mér finnst“ eða „mér líður“ í stað þess að leita í setningar eins og „ þú ert alltaf“. Með því tek ég ábyrgð á mér en varpa ekki ábyrgð á minni líðan á aðra.
Ég stjórna ekki öðrum. Ég umber aðra með það í huga að taka það góða sem ég get úr samskiptunum hverju sinni þrátt fyrir krefjandi aðstæður. Reynum að skrifa ekki handrit jólanna fyrirfram heldur leyfa okkur að njóta, staldra við og upplifa það sem að höndum ber.
Á sama tíma og við óskum þér gleðilegra jóla minnum við á að það hvernig aðrir haga sér hefur yfirleitt ekkert að gera með þig heldur er birtingarmynd af líðan þess sem tjáir sig.