ERA ERA | rafræn frá grunni
Bókaðu gott samstarf - nýtt ERA í rafrænni þjónustu.

Ert þú ofurbókarinn sem við leitum að?
27/08/2021

Ert þú ofurbókarinn sem við leitum að?

ERA er fyrirtækjaþjónusta nýrra tíma sem þjónustar marga aðila innanlands sem utan. Við sinnum fjármálaþjónustu fyrir fjölda sjálfstæðra rekstrareininga og byggjum ferlana okkar á framsækinni, rafr...

Þann 7. júní mun Hólmar Örn Finnsson, starfsmaður ERA, halda námskeið um GDPR á vegum Símenntunar Háskólans á Akureyri. ...
30/05/2018

Þann 7. júní mun Hólmar Örn Finnsson, starfsmaður ERA, halda námskeið um GDPR á vegum Símenntunar Háskólans á Akureyri. Ef þú ert á norðurlandi og vantar praktísk ráð um hvernig má mæta kröfum GDPR, þá er um að gera að skrá sig.

GDPR - Sjálfshjálparnámskeið Nú styttist óðum í að ný Persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins, GDPR, verði leidd í lög á Íslandi með nýjum lögum um

11/03/2018

UT messan var haldin í byrjun febrúar og þar fjallaði Elfur Logadóttir, framkvæmdastjóri ERA um traustþjónustur, lögfræðilegan skilning á hugtökunum "skjal" og "skrifleg" og aðeins um reglustjórnina sem fyrirtækin þurfa að viðhafa til þess að ná árangri í rekstri og fylgni við lög og reglur.

Þið sem ekki voruð á fyrirlestrinum getið kynnt ykkur innihald hans á youtube rás UT messunnar, tengillinn er meðfylgjandi.

Elfur Logadóttir, ERA

Ekki er allt sem sýnist á Internetinu. Íslendingar, sem eru örugglega heimsmeistarar í notkun samfélagsmiðla, þurfa líka...
15/02/2018

Ekki er allt sem sýnist á Internetinu. Íslendingar, sem eru örugglega heimsmeistarar í notkun samfélagsmiðla, þurfa líka að pæla í þessu.
Gjaldið sem við greiðum fyrir ókeypis hugbúnað er mjög oft persónusnið okkar. Við erum púslið sem gerir heildarmyndina nákvæmari. Sem gerir vöruna verðmætari.

Hvers virði eru þínar persónuupplýsingar?

Facebook leikur sem býður upp á kynskiptimyndir áskilur sér rétt til að safna, nota og deila umfangsmiklum persónuupplýsingum um notendur leiksins. Fjölmargir Íslendingar hafa tekið þátt í leiknum með mikilli gleði en gamanið kárnar fljótt þegar litið er til persónuverndarsjó...

Arion banki stendur nú í málaferlum vegna þess að pappírsskjal, sem þeir telja að sé grundvöllur réttinda þeirra í faste...
07/02/2018

Arion banki stendur nú í málaferlum vegna þess að pappírsskjal, sem þeir telja að sé grundvöllur réttinda þeirra í fasteign, er týnt.
Eins og Elfur Logadóttir, framkvæmdastjóri ERA fór yfir í fyrirlestri sínum á UT messunni um daginn, þá hefur það verið afstaða í íslenskri lögfræði (ekki síst dómaframkvæmd) að nauðsynlegt sé að hafa réttindi sem þessi á pappír, því annars sé því ekki treystandi að unnt sé að framfylgja þeim.

Meðfylgjandi frétt er skólabókardæmi um skynsemi þess að breyta þessari afstöðu lögfræðinnar til skilgreininga á hugtökunum “skjal” og “skrifleg”. Varðveisla, skráning og framsal er mun betur og skilmerkilegar framkvæmd með rafrænum hætti í nútíma upplýsingatæknisamfélagi.

Arion banki hefur farið fram á að fimm milljón króna tryggingarbréf félagsins Tomahawk Development á Íslandi hf. til Arion banka verði ógilt. Tomahawk Development er að mestu í eigu Magnúsar Garðarssonar, stofnanda United Silicon, og var heimili Magnúsar við Huldubraut 28...

Næsti fyrirlestur í smíðum, smávegis úr einni kynningu og smávegis úr annarri og svo dágóður slatti af upplýsingum sem k...
06/02/2018

Næsti fyrirlestur í smíðum, smávegis úr einni kynningu og smávegis úr annarri og svo dágóður slatti af upplýsingum sem koma fram í nýrri greinargerð ENISA um efnið. Sjáumst hjá Icepro á fimmtudag.

Elfur Logadóttir, framkvæmdastjóri ERA hélt fyrirlestur um eIDAS reglugerðina á UT messunni í Hörpu. Með eIDAS reglugerð...
03/02/2018

Elfur Logadóttir, framkvæmdastjóri ERA hélt fyrirlestur um eIDAS reglugerðina á UT messunni í Hörpu.
Með eIDAS reglugerðinni kemur nýtt hugtak: Traustþjónusta.
Hugmyndin er að fyrirtæki og einstaklingar geti borið meira traust til rafrænna lausna ef lausnirnar eru studdar traustþjónustum af miklum gæðum, t.d. fullgildum traustþjónustum. Nánari upplýsingar um reglugerðina má finna á https://eidas.is

Þeim fer fjölgandi, fréttunum um nýju persónuverndarreglugerðina í almennum fjölmiðlum.Í Speglinum í kvöld var fjallað u...
31/01/2018

Þeim fer fjölgandi, fréttunum um nýju persónuverndarreglugerðina í almennum fjölmiðlum.
Í Speglinum í kvöld var fjallað um fund sem Orator, félag laganema við HÍ, hélt um efnið í dag.
Í umfjöllun Spegilsins kom m.a. fram að eitt af stóru markmiðum með reglugerðinni er hugarfarsbreyting samfélagsins og aukin virðing fyrir persónuupplýsingum í meðhöndlun þeirra.

Við hjá ERA hjálpum félögum og fyrirtækjum að takast á við þessa nýju áskorun sem felst í því að þjálfa nýja hugsun hjá starfsfólki og stjórnendum. Við erum í Bankastrætinu og erum ávallt reiðubúin að ræða málin.

Formaður stjórnar Persónuverndar segir það þurfi að fjórfalda starfsmannafjölda stofnunarinnar til að hún geti sinnt verkefnum sem munu fylgja nýrri persónuverndarlöggjöf. Persónuvernd hafi fengið aukið fjármagn á þessu ári en það dugi engan veginn. Forstöðumaður há Samt....

Látum leikana hefjast. Ráðstefna um tækni og persónuvernd að hefjast á Hilton þar sem Elfur Logadóttir framkvæmdstjóri E...
25/01/2018

Látum leikana hefjast.
Ráðstefna um tækni og persónuvernd að hefjast á Hilton þar sem Elfur Logadóttir framkvæmdstjóri ERA fjallar um innbyggða og sjálfgefna persónuvernd.

Hluti af því að vera með fyrirlestur á ráðstefnu er oft fólginn í því að ræða við fjölmiðla um efni ráðstefnunnar áður e...
22/01/2018

Hluti af því að vera með fyrirlestur á ráðstefnu er oft fólginn í því að ræða við fjölmiðla um efni ráðstefnunnar áður en að henni kemur. Elfur Logadóttir, framkvæmdastjóri ERA var af þessari ástæðu í viðtali við Morgunblaðið í morgun.

Á ráðstefnunni og vinnustofu í kjölfar hennar, mun Elfur fjalla um innbyggða og sjálfgefna persónuvernd og hugarfarsbreytinguna sem er nauðsynleg fyrir fyrirtækin að tileinka sér til þess að vel gangi að vinna í samræmi við nýju reglugerðina.

Allar nánari upplýsingar um ráðstefnuna má finna á vef ráðstefnunnar, https://taekniogpersonuvernd.is/

Það birtist frétt á vef RÚV í gær sem fjallaði um það Glitnismál sem er fyrir dómi núna. Efnisatriði málsins eru ekki ti...
18/01/2018

Það birtist frétt á vef RÚV í gær sem fjallaði um það Glitnismál sem er fyrir dómi núna. Efnisatriði málsins eru ekki til umræðu hér en því verður ekki neitað að neðangreind mynd vakti athygli mína. Svo virðist sem þarna séu 9 eintök af tilteknum gögnum sem væntanlega tengjast málinu.

Ef það er rétt, fyrir hverja eru þá afritin? Hvers vegna þurfa að vera aðgengileg 9 útprentuð eintök?

Má bjóða þér að finna fyrir mig skjalið sem staðfestir (eða hrekur) vitnisburðinn sem fer fram á sama tíma? Áður en að vitnið hefur lokið máli sínu, þannig að hægt sé að nota það á meðan vitnisburður stendur enn yfir.
.. eða má kannski bjóða þér að nota spjaldtölvuna til þess að leita að rafrænu eintaki af skjalinu á grundvelli lykilorða?

Address

Bankastræti 9
Reykjavík
101

Telephone

+3546989717

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when ERA posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to ERA:

Share