MB Markþjálfun

MB Markþjálfun Markþjálfun felst í því að leiða einstaklinginn að sínum innri kjarna, leyfa orkuflæði hjartans að opnast og sköpunarorkunni að skapa ævintýri.
(1)

Hversu mikilvæg er þín innri rödd ? Hefur rödd hjartans sál ? Hefur rödd hugans kjark ? Ertu að hlusta eftir þinni innri rödd? Kröfurnar eru miklar og margar. Ekki bara þær sem gerðar eru af samfélaginu og ytra umhverfi heldur líka þær sem við upplifum af eigin hálfu.

Það er krafan um að standa standa skil á öllum þeim kröfum sem við stjórnumst af.

Þegar hjartað slokknar fyllist stjórnsamur hugu

rinn krafti sem nægt rými til að hugsa í hringi og velta sér upp úr því sem lífið hindrar okkur í að framkvæma. Hugurinn er kröfuharður húsbóndi og stjórnsamur hann vill ráðkast með tilfinningarnar. Rödd hjartans verður kvíðin, óttaslegin og þráhyggja og þunglyndi lætur á sér kræla. Smám saman missum við tökin á því að vera í okkur sjálfum, við verðum fjarverandi − erum ekki gagnrýnin á það sem kemur upp í hugann og eltum hann bara í staðinn fyrir að vera ábyrg og láta hugann elta okkur. Ef það er einhver önnur rödd en þinn innsti sannleikur sem stýrir þínu lífi þá byrjar stöðugt meiri vanlíðan að gera vart við sig. Veittu þinni rödd mestu athyglina og stærstu kröfuna. Láttu þína eigin rödd leiða þig inn í frið og gleði. Finndu út hvað þér finnst gaman að gera en ekki það sem öðrum þykir hugsanlega smart að gera. Finndu þig og þann sannleika að það er stórkostlegt að vera þú. Það verður engin lifandi mannvera á þessari jarðarkringlu fullkomin og það er mjög mikilvægt að hugsa oft þessa hugsun „ég ætla að vera mannleg ekki fullkomin“.
Það að vera mannlegur er smart − það er erfitt að stjórna því − það er ekkert svart eða hvítt, allt eða ekkert heldur bara allavega grátt. Við reynum oft svo mikið að hafa þetta svart eða hvítt, allt eða ekkert, plana og stjórna.

Address

Reykjavík
101

Telephone

8614154

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when MB Markþjálfun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to MB Markþjálfun:

Share