Iceprotein ehf

Iceprotein ehf Iceprotein ehf. var stofnað árið 2005 og er í eigu
FISK Seafood ehf. Stefnan er að styðja við sjálfbæra matvælaframleiðslu með rannsóknum og þróun.

er íslenskt sprotafyrirtæki sem hefur allt frá stofnun unnið að rannsóknum og þróun á vinnslu verðmætra efna, aðallega próteina úr vannýttu og verðlitlu sjávarfangi með það að markmiði að auka nýtingu og verðmætasköpun í sjávarútvegi. Fyrirtækið var stofnað árið 2005 af starfsmönnum RF í kringum rannsóknir þeirra á fiskpróteinum með það að markmiði að vinna prótein til frekari nýtingar í matvælavi

nnslu úr hliðarhráefni. Tilraunavinnsla var sett upp í byrjun í húsnæði HB Granda á Akranesi. Verksmiðjan var tekin niður og flutt norður á Sauðárkrók í húsnæði FISK Seafood í Verinu Vísindagörðum árið 2006. Við samruna nokkurra fyrirtækja, þ.á.m. RF inn í Matís eignast Matís Iceprotein árið 2007. FISK kaupir 64% í fyrirtækinu árið 2009. Í árslok 2012 kaupir FISK hlut Matís í Iceprotein og voru kaupin liður í breyttum áherslum FISK sem miðuðu að aukinni nýtingu aflans með því að vinna meira af aflanum í landi. Hjá Iceprotein starfa 6 sérfræðingar sem allir eru með framhaldsmenntun á sviði raungreina. Líta má á Iceprotein sem brú á milli FISK og menntastofnanna sem og rannsókna- og þróunarstofnanna þar sem starfsmenn Iceproteins eru með réttindi til að stýra rannsóknaverkefnum, taka að sér handleiðslu í nemendaverkefnum og kennslu. Í dag eru 2 B.Sc. nemar frá Háskólanum á Akureyri að vinna í verkefnum hjá Iceprotein. Iceprotein hefur tekið þátt í kennslu í Fiskækninámi sem nú er boðið upp á í FNV í samstarfi við Farskóla Norðurlands vestra og Fiskitækniskólann í Grindavík. Einnig hefur Iceprotein tekið þátt í námskeiði í FNV sem miðar að því að kynna nemendur fyrir fyrirtækjum á sviði náttúruvísinda og var hluti af sóknaráætlun NVlands. Iceprotein hefur tekið á móti 10 bekkingum í Árskóla og fengið nema til sín í starfskynningu. Einnig hefur Iceprotein komið að lífsleiknitímum í FNV þar sem verið var að kynna verðmætasköpun í sjávarútvegi. Rannsóknaaðstaða Iceproteins í Verinu er mjög fullkomin og hefur hún nýst t.d. nemendum Háskólans á Hólum auk nemenda frá Sjávarútvegsháskóla sameinuðu þjóðanna sem hafa unnið að verkefnum sínum við Háskólann á Hólum. Iceprotein stýrir nokkrum rannsóknaverkefnum og er samstarfsaðili í fjölmörgum verkefnum. Helstu samstarfsaðilar Iceproteins eru: Matís, HÍ, HA, Háskólinn á Hólum, Vilkó, Íslensk fjallagrös, Náttúrusmiðjan, Álfaklettur, ArcticLass, ArcticMass, Marinox, Samherji, Genís, Hólmadrangur, Rækjuvinnslan á Grundarfirði, Reykofninn, SKVH, kjötafurðastöð KS, mjólkurafurðarstöð KS, Íslenska Auglýsingastofan, Fóðurfélagið, MarIce, BioPol, PWHC, Ísaga, 3X, Skaginn, PharmArctica, FNV, Farskólinn, Árskóli, ofl. Styrktaraðilar: Atvinnu og nýsköpunarráðuneyti, Tækniþróunarsjóður, AVS, Vaxtarsamningur Nv. Og Þróunarsjóður KS, Vörumiðlun. Með eigendaskiptum á Iceprotein voru markmið fyrirtækisins víkkuð út. Í dag er markmið Iceproteins að vinna að bættri umgengni við náttúruauðlindina með því að auka nýtingu á aflanum. Einnig vinnur Iceprotein að aukinni verðmætasköpun í sjávarútvegi með því að vinna hágæða afurð úr verðlitlum hliðarafurðum. Eitt af markmiðum Iceproteins er líka að efla tengsl sjávarútvegs og skóla. Rannsóknastofur Iceproteins eru tvær, önnur sér útbúin fyrir efnarannsóknir og hin fyrir örverurannsóknir. Báðar þessar rannsóknastofur hafa nýst framleiðslufyrirtækjum Kaupfélags Skagfirðinga við gæðaeftirlit á framleiðsluvörum sínum. Einnig hafa önnur framleiðslufyrirtæki á Norðurl. Vestra nýtt sér aðstöðuna og þekkinguna við gæðaeftirlit. Fyrirtækinu (Protis ehf.) hefur tekist sá einstaki árangur að þróa hágæða hvítt og fallegt vatnsrofið þorskprótein duft (svokallað þorskprótein hýdrólýsat, ÞPH) til manneldis úr afskurði sem myndast við snyrtingu þorskflaka. Próteinið fór á markað febrúar 2016 og stendur vinna við frekari rannsóknir á heilsubætandi áhrifum próteinanna yfir. Um háþróaðar rannsóknir í frumu- og dýratilraunum er að ræða sem unnar eru í samstarfi við rannsóknastofnanir og fyrirtæki eins og Háskóla Íslands, Matís ArcticMass og ArcticLas. Starfsemi Iceproteins eflir
• verðmætasköpun með því að nýta hliðarhráefni í vinnslu á hágæðapróteini. Í dag fást 20 kr fyrir kg af afskurði sem nýta má í vinnslu próteinsins. Verð á hylkjuðu hágæða próteini frá Iceprotein gæti verið í kringum 50.000 kr/kg.
• ábyrga umgengni við náttúrauðlindir á borð við fiskistofna.
• og styður við áframhaldandi aukningu á útflutningsverðmæti sjávarafurða Miklar breytingar hafa átt sér stað í íslenskum sjávarútvegi sem fela m.a. í sér að færa vinnsluna í land. Með því eykst magn og aðgengi að fersku hliðarhráefni sem nýtist við vinnslu á hágæða afurðum eins og fiskpróteini með heilsubætandi eiginleika.
• eflir fóður- og matvælaframleiðslu á Norðurlandi vestra með því að styðja við gæðaeftirlit og rannsóknir á framleiðsluvörum.
• lýðheilsu. Sjávarmeti eins og fiskprótein eru heilsubætandi.
• nýsköpun á Norðurlandi vestra, ekki er vitað til að verið sé að framleiða fiskprótein í þeim tilgangi sem Iceprotein ætlar sér að gera.
• byggð og atvinnulíf á Norðurlandi vestra þar sem starfsemin leiðir til verðmætasköpunar og ný störf verða til sem krefjast sérfræðiþekkingar sem leiðir til hækkunar á menntunarstigi á Norðurlandi vestra.
• rannsókna og þróunarstarf á Norðurlandi vestra.
• tækifæri menntastofnanna á Norðurlandi vestra i að tengjast og kynna hátækniiðnað í sjávarútvegi fyrir nemendum sínum sem skilar sér í auknum áhuga nemenda á sjávarútvegi Norðurlandi vestra.

Address

Háeyri 1
Sauðárkrókur
550

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

8254472

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Iceprotein ehf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Iceprotein ehf:

Share