Orkídea - orka og nýsköpun

Orkídea - orka og nýsköpun Orkídea er samstarfsverkefni um nýsköpun á Suðurlandi. Markmiðið er að auka verðmætasköpun

Helsta markmið samstarfsins er að auka verðmætasköpun og greiða veg orkutengdra tækifæra, einkum á sviði hátæknimatvælaframleiðslu og líftækni. Ætlunin er að efla nýsköpun og rannsóknir á nýtingu grænnar orku og koma á öflugu samstarfi við bæði fræðasamfélagið og atvinnulífið. Heiti verkefnisins, Orkídea, er sprottið af orðunum orka og ídea. Þannig vísar nafnið bæði til grænnar orku og þeirra nýstárlegu hugmynda sem spretta í frjóum jarðvegi.

Livefood í Hveragerði fær 27.790.000 kr. styrk úr Matvælasjóði- Viðtal við Fjóla Einarsdóttir framkvæmdastjóra Livefood🧀...
09/06/2026

Livefood í Hveragerði fær 27.790.000 kr. styrk úr Matvælasjóði
- Viðtal við Fjóla Einarsdóttir framkvæmdastjóra Livefood

🧀Grænkeraostagerðin Livefood ehf. í Hveragerði hlaut á dögunum veglegan 27,8 milljóna króna styrk úr Matvælasjóði til þróunar á nýjum plöntubaseruðum „brauðásti“.

Vegferð Livefood hófst á sínum tíma með stuðningi úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands og árið 2021 var fyrirtækið valið til þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Orkídeu sem lagði dýrmætan grunn og veitti teyminu réttu verkfærin til að vaxa.

Við hjá Orkídeu óskum Livefood innilega til hamingju með þessa miklu lyftistöng og hvetjum aðra sunnlenska frumkvöðla til að nýta sér stoðkerfið í heimabyggð!

🔗 Lesa má alla fréttina um hina mögnuðu vegferð Livefood á vef Orkídeu í hlekknum í fyrstu athugasemd

Landsvirkjun
Landbúnaðarháskóli Íslands
Uppbyggingarsjóður Suðurlands

04/06/2026

Opið er fyrir umsóknir í Startup Landið 2026 🚀

Nýsköpunarhraðall landshlutanna er einstakur vettvangur fyrir sunnlenska frumkvöðla sem vilja koma hugmyndum sínum á framfæri, efla tengslanetið og skapa ný verðmæti í heimabyggð. Valin teymi fá markvissa fræðslu og ráðgjöf í haust til að þróa sín verkefni og koma þeim í framkvæmd.

Við hvetjum frumkvöðla á svæðinu – ekki síst þá sem tengjast okkar áherslum í matvælaframleiðslu og nýsköpun – til að grípa þetta frábæra tækifæri! 💡

Tækifæri í lífgasframleiðslu á Suðurlandi vekja athygli! Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Orkídeu, fór nýverið á v...
02/06/2026

Tækifæri í lífgasframleiðslu á Suðurlandi vekja athygli!

Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Orkídeu, fór nýverið á vorfund FENÚR og kynnti spennandi fýsileikakönnun um uppbyggingu staðbundins lífgas- og áburðarvers á Suðurlandi.

Markmiðið er að nýta búfjáráburð frá kúabúum og gróðurúrgang frá ylrækt til að framleiða græna orku og áburð – og fyrstu tölur sýna að þetta gæti verið arðbært fyrir bændur! 🚜♻️

Erindið vakti mikla lukku og fjölmargar spurningar úr sal. Við höldum ótrauð áfram að vinna að aukinni sjálfbærni og nýsköpun á Suðurlandi.

Landsvirkjun
Landbúnaðarháskóli Íslands

Starfsfólk Orkídeu gerði sér nýverið ferð á Suðurnes til að kynna sér spennandi uppbyggingu á sviði nýsköpunar og hringr...
01/06/2026

Starfsfólk Orkídeu gerði sér nýverið ferð á Suðurnes til að kynna sér spennandi uppbyggingu á sviði nýsköpunar og hringrásarhagkerfis. Við heimsóttum meðal annars Iceland Eco-Business Park, þar sem húsnæði sem upphaflega var ætlað undir álver hefur fengið nýtt hlutverk, og þróunarfélagið Kadeco sem leiðir þróun lands við Keflavíkurflugvöll.

Nánar í frétt í fyrstu athugasemd 👇

„Þetta verkefni skilar tæpum milljarði á Suðurlandi.“Við hjá Orkídeu erum stolt af því að vera hreyfiafl í nýsköpun og s...
29/05/2026

„Þetta verkefni skilar tæpum milljarði á Suðurlandi.“

Við hjá Orkídeu erum stolt af því að vera hreyfiafl í nýsköpun og sjálfbærni í okkar heimabyggð. Í nýrri umfjöllun á mbl.is ræðir Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Orkídeu tvö spennandi Evrópuverkefni sem við tökum þátt í.

Tækifærin eru gríðarleg og fjárhagslegur ávinningur fyrir landshlutann mikill!

Frétt í fyrstu athugasemd⬇️

29/05/2026

Starfsfólk Orkídeu gerði sér ferð á Suðurnes í gær til að kynna sér gríðarlega spennandi uppbyggingu á sviði nýsköpunar og hringrásarhagkerfis hjá Iceland Eco-Business Park og Kadeco. 🌱

Hjá Iceland Eco-Business Park fengum við að sjá hvernig húsnæði sem áður var ætlað undir álver verður nýtt græna iðnaðarstarfssemi og hjá Kadeco kynntumst við K64 þróunaráætluninni sem mun keyra áfram atvinnulífið á svæðinu.

Það er dýrmætt að sækja hugmyndir og efla tengsl út fyrir landshlutann til að fá hugmyndir og nýta við áframhaldandi verðmætasköpun í okkar landshluta. Sjón er sögu ríkari – Stutta myndband frá heimsókninni! 🎬👇

Landbúnaðarháskóli Íslands
Landsvirkjun

♻️„Sjálfbær framleiðsla selur“ – Viðtal við Svein framkvæmdastjóra Árið 2025 var ár mikillar grósku hjá Orkídeu. Við set...
18/05/2026

♻️„Sjálfbær framleiðsla selur“ – Viðtal við Svein framkvæmdastjóra

Árið 2025 var ár mikillar grósku hjá Orkídeu. Við settumst niður með Sveini Aðalsteinssyni og ræddum um hvernig hringrásarhagkerfið er lykillinn að bættri afkomu og auknu fæðuöryggi fyrir íslenska bændur.

Í viðtalinu er rætt um hvernig nýta má mykju og úrgang til lífgasvinnslu til að framleiða bæði orku og áburð.
Sveinn útskýrir hvernig verkefni á borð við Terraforming LIFE og Value4Farm munu breyta matvælaframleiðslu framtíðarinnar og hvers vegna sjálfbærni og betri nýting auðlinda er hreinlega nauðsynleg fyrir íslenskt atvinnulíf.

📖 Lestu viðtalið í heild sinni hér í fyrstu athugasemd 👇

Landsvirkjun
Landbúnaðarháskóli Íslands
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga - SASS

Ársskýrsla Orkídeu fyrir árið 2025 er komin út - kalt mat: Áhugavert! :) Sjá hlekk í fyrstu athugasemd.
13/05/2026

Ársskýrsla Orkídeu fyrir árið 2025 er komin út - kalt mat: Áhugavert! :)
Sjá hlekk í fyrstu athugasemd.

Áhugavert viðtal um nýsköpun á landsbyggðinni✨ Vilt þú koma þinni hugmynd á flug?Opið er fyrir umsóknir í Startup Landið...
06/05/2026

Áhugavert viðtal um nýsköpun á landsbyggðinni

✨ Vilt þú koma þinni hugmynd á flug?
Opið er fyrir umsóknir í Startup Landið til 1. september!
Sjá nánar í frétt Samtök sunnlenskra sveitarfélaga - SASS hér að neðan.

„Stundum snýst nýsköpun einfaldlega um að skapa eitt eða tvö störf í heimabyggð – það getur breytt miklu í litlum samfélögum,“

segir Margrét Polly Hansen, verkefnastjóri hjá Háskólafélagi Suðurlands og SASS sem var í áhugaverðu viðtali á vef Austurbrúar.

✨ Vilt þú koma þinni hugmynd á flug?
Opið er fyrir umsóknir í Startup Landið til 1. september!
Ekki hika við að heyra í ráðgjöfum SASS og fá frekari upplýsingar.

Viðtalið við Polly og nánar um Startup Landið í fyrstu athugasemd 👇

Meiri kraftur – minna kolefnisspor! 🔋🌾Orkídea tekur nú þátt í evrópska verkefninu Valu4Farm þar sem m.a. er verið að sýn...
05/05/2026

Meiri kraftur – minna kolefnisspor! 🔋🌾

Orkídea tekur nú þátt í evrópska verkefninu Valu4Farm þar sem m.a. er verið að sýna fram á kosti lífmetans sem aflgjafa. Sander Vandendriessche sérfræðingur hjá InAgro fór yfir hvernig hægt er að breyta búfjáráburði í hágæða eldsneyti á vefþinginu "Orkuskipti í landbúnaði" sem fram fór á dögunum.

Þegar unnið er undir miklu álagi reynast vélar sem keyra á lífmetani fyllilega sambærilegar við þær hefðbundnu og jafnvel skilvirkari en hefðbundnar vélar.

Meira um erindi Sanders í fyrstu athugasemd 👇

Landsvirkjun
Landbúnaðarháskóli Íslands

Address

Austurvegur 56
Selfoss
800

Telephone

+3544808200

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Orkídea - orka og nýsköpun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Orkídea - orka og nýsköpun:

Share