Slökkvilið Fjallabyggðar

Call Directions Website Contact the business

Slökkvilið Fjallabyggðar Slökkvilið Fjallabyggðar er með tvær starfstöðvar, Ólafsfirði og Siglufirði. 1. Slökkviliðsstjóri í dag er Jóhann K.

júlí 2015 voru hundrað ár liðin frá því Slökkvilið Siglufjarðar hóf að standa varðstöðu. Var þess minnst meðal annars með grein á vef Síldarminjasafnis en þar segir;

"Síðan þá hefur ótalinn fjöldi vöskustu manna samfélagsins ætíð verið viðbúinn því að bruna fyrirvaralaust af stað á næsta brunastað hvar eða hvenær sem hann varð eða verður. Menn með þrautþjálfaða viðbragðs- og aðgerðaáætlun um að veita þá þjónustu sem fæstir vilja þiggja ótilneyddir - og forðast eins og heitan eldinn. Fyrrum, meðan ekki var óalgengt að eldar kviknuðu og grönduðu eigum og lífi manna, var blásið í brunalúðra og hlaupið á stað með frumstæðan tækjabúnað á tréhjólum. Nú er öldin önnur, æ sjaldnar kviknar í og Slökkvilið Fjallabyggðar hefur yfir að ráða margbrotnum og fullkomnum tækjabúnaði."

Jóhannsson en á undan honum var Ámundi Gunnarsson slökkviliðsstjóri. Þar áður hafa gengt stöðunni kappar sem margir muna eftir, Kristinn Georgsson, Egill Melsted, Flóvent Jóhannsson, Guðmundur Bíldal, Jón Guðmundsson og Gunnlaugur Þorfinnsson. Gunnlaugur hafði reyndar þann virðulega titil að vera kallaður slöngustjóri.

Á móti rýrum tækjabúnaði á fyrstu árum Slökkviliðs Siglufjarðar var verka- og deildaskipting liðsins mun betur skipulögð en nú gerist. Nærri 55 liðsmönnum var skipað niður í eftirtaldar sjö deildir: björgunarlið, húsrifslið, vatnsslöngulið, stigalið, brunahanalið, lögreglulið og brunaboða. Þeir síðasttöldu höfðu þann mikilvæga starfa að hlaupa á milli húsa með lúðra sína og blása hin liðin sex á vettvang.

Slökkvilið Siglufjarðarkaupsstaðar og Slökkvilið Ólafsfjarðarbæjar sameinuðust árið 2007 undir merkjum Slökkviliðs Fjallabyggðar.

Í nótt hefur verið unnið að því að skipta út annarri af tveimur innkeyrsluhurðum í Múlagöngum. Vegna þess hafa göngin ve...
08/09/2026

Í nótt hefur verið unnið að því að skipta út annarri af tveimur innkeyrsluhurðum í Múlagöngum. Vegna þess hafa göngin verið lokuð frá miðnætti og til klukkan 04 í nótt. Svo á einnig við næstu nótt þegar skipt verður um hina hurðina.

Slökkvilið Fjallabyggðar nýtti lokunina í nótt til þess að framkvæma eldvarnareftirlit í göngunum, þegar umferð er í algjöru lágmarki, en eldvarnareftirlitið er einn af veigamiklu hlutunum í starfi slökkviliða. Í úttekinni í nótt er meðal annars litið til þess neyðarbúnaðar sem er í göngunum, s.s. neyðarskápa, slökkvitækja og neyðarsímaa. Símranir er 23 talsins og var virkni þeirra prófuð. Ábendingar sem koma upp eru svo sendar til Vegagerðarinnar til úrlausnar og lagfæringar.

Merki þess að veturinn nálgast er þegar haust- og vetrarstarf slökkviliðsins fer af stað 👩‍🚒  Í kvöld mættu slökkviliðsm...
01/09/2026

Merki þess að veturinn nálgast er þegar haust- og vetrarstarf slökkviliðsins fer af stað 👩‍🚒 Í kvöld mættu slökkviliðsmenn og fóru yfir grunnþætti slökkvistarfsins.Meðal annars vatnsöflun, árásartækni á eld og reykköfun og gekk æfingin vel. 🚒

Líkt og fyrr munu slökkviliðsmenn á Ólafsfirði og Siglufirði æfa slökkvi- og björgunartækni fyrstu vikuna í hverjum mánuði fram að vori. Þá eru fyrirhuguð námskeið á vegum Brunamálaskólans í október og nóvember.

Þessa dagana eru skólar að hefja starfsemi fyrir komandi vetur. Leikskólinn í Fjallabyggð og Menntaskólinn á Tröllaskaga...
21/08/2026

Þessa dagana eru skólar að hefja starfsemi fyrir komandi vetur. Leikskólinn í Fjallabyggð og Menntaskólinn á Tröllaskaga hafa þegar hafið starfsemi og á mánudag, 24. ágúst, er skólasetning hjá Grunnskóla Fjallabyggðar.

Á þessum tíma eru nýir vegfarendur að taka sín fyrstu skref í umferðinni og hvetur Fjallabyggð ökumenn til þess að gefa þessum nýju vegfarendum sem eru að hefja skólagöngu góðan gaum á næstu dögum og vikum.

Ökumenn eru hvattir til þess að aka varlega, ekki síst í námunda við skóla og skólafrístund.

Ökum hægar og fylgjum umferðarreglum!

Körfubíllinn okkar er geggjaður 😁 Viðruðum hann í dag og nýttum tækifærið sem settum öflugri vinnulýsingu á körfuna sem ...
19/08/2026

Körfubíllinn okkar er geggjaður 😁 Viðruðum hann í dag og nýttum tækifærið sem settum öflugri vinnulýsingu á körfuna sem bætir aðstæður slökkviliðsmanna þegar vinna þarf með bílinn í myrkri 🚒

Slökkvilið Fjallabyggðar og liðsmenn hafa verið dyggir stuðningsaðilar Síldarævintýrið á Siglufirði með virkri þátttöku ...
04/08/2026

Slökkvilið Fjallabyggðar og liðsmenn hafa verið dyggir stuðningsaðilar Síldarævintýrið á Siglufirði með virkri þátttöku í viðburðum ævintýrisins. Árið í ár var engin undantekning 😁 Froðufjörið hefur skapað sér fastan sess á hátíðinni en í ár tók Brannbamsen Bjørnis þátt og hitti yngstu kynslóðina. Það var ákveðin hápunktur þegar Bjössi og Íþróttaálfurinn hittust í íþróttahúsinu með börnunum 💪🚒👩‍🚒

Takk fyrir frábært froðufjör 😁 Slökkvilið Fjallabyggðar bauð ungu kynslóðinni að sleppa af sér beislinu með vatni og fro...
03/08/2026

Takk fyrir frábært froðufjör 😁 Slökkvilið Fjallabyggðar bauð ungu kynslóðinni að sleppa af sér beislinu með vatni og froðu á Síldarævintýrið á Siglufirði. Mikið fjör og mikið gaman 💦 Sjáumst að ári 🚒🧑‍🚒

Frábær stemmning á Trilludögum. Slökkvilið Fjallabyggðar tók þátt með því að aðstoða gesti hátíðarinnar í björgunarvesti...
25/07/2026

Frábær stemmning á Trilludögum. Slökkvilið Fjallabyggðar tók þátt með því að aðstoða gesti hátíðarinnar í björgunarvesti sem fóru að veiða með smábátasjómönnum ⚓️

Vegna þurrkatíðar aðstoðaði Slökkvilið Fjallabyggðar við að bleyta upp í svæði þar sem verið er að byggja upp tjaldsvæði...
24/07/2026

Vegna þurrkatíðar aðstoðaði Slökkvilið Fjallabyggðar við að bleyta upp í svæði þar sem verið er að byggja upp tjaldsvæði á Ólafsfirði. Ekki var langt að sækja vatnið í tjörnina við hliðina. Svæðið er að mótast og verður glæsilegt þegar framkvæmdum er lokið.

Slökkvilið Fjallabyggðar fékk í morgun tilkynningu um eld í ruslagámi á Ólafsfirði. Lítil sem engin hætta var á útbreiðs...
02/07/2026

Slökkvilið Fjallabyggðar fékk í morgun tilkynningu um eld í ruslagámi á Ólafsfirði. Lítil sem engin hætta var á útbreiðslu og eldurinn ekki búinn að ná sér á strik. Lágmarksviðbragð var sent á staðinn sem kláraði verkefnið 🚒

Address

Snorragata 8
Siglufjörður
580

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Slökkvilið Fjallabyggðar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Slökkvilið Fjallabyggðar:

Shortcuts

Share