Félag íslenskra heilsunuddara

  • Home
  • Félag íslenskra heilsunuddara
Directions Website Contact the business

Félag íslenskra heilsunuddara Félag íslenskra heilsunuddara Félag íslenskra heilsunuddara er fagfélag heilsunuddara og starfa meðlimir fíhn eftir siðareglum þess.

Heilsunudd er yfirgripsmikið því það nær yfir margar og mismunandi aðferðir, heilsunuddarar eru með ólíkar áherslur við meðhöndlun, einnig er tekið mið af einstaklingum hverju sinni enda ákaflega misjafnt hvað hentar hverjum og einum. Heilsunudd hentar öllum óháð kyni, aldri eða þjóðerni. Heilsunudd getur verið kærkomin viðbót við aðra heilsurækt, orðið hluti af lífsstíl. Innan heilsunudds er að finna aðferðir eins og klassískt nudd, svæðanudd, heildrænt nudd, íþróttanudd, kinesiology, triggerpunktameðferð, sogæðanudd og ilmolíufræði.

24/09/2025

Í ljósi þáttar kveiks í gærkvöldi þá ætla ég að fá að koma með nokkra punkta til að bæta við þetta mál.

Það má endilega deila þessu um allt.

Eins og komið var inn á í þættinum þá þarf að hafa meistarabréf til að opna og starfrækja snyrtistofu, það kom fram grunur um að sumar stofurnar starfi undir því yfirskini að gefin hafi verið út sérleyfi, en meistarabréf hafa í sumum tilvikum reynst fölsuð.

Við það vaknar spurningar hjá mörgum í þjóðfélaginu hvers vegna voru starfsleyfin gefin út?

Ég fyrir mína parta er ekki hissa á að þessi starfsleyfi hafi verið gefin út en það er í verkahring heilbrigðiseftirlits sveitarfélagana að gefa út starfsleyfi en þau hafa ekki heimild til að krefjast gagna um menntun fólks hvorki meistarabréfa né nokkurs prófskírteins við útgáfu starfsleyfa.
Það er í verkahring lögreglu að hafa eftirlit með iðnaðarlögum, en lögin kveða ekki á um náið samstarf milli eftirlitsaðila við útgáfu starfsleyfa.

Afhverju veit ég þetta? Jú þar sem ég veit að það þarf ekkert meistarabréf eða neina sönnun neinstaðar um raun menntun til að opna nuddstofu, þar sem nudd fellur ekki undir iðnarlöggjöf né heldur undir eftirliti embættis landlæknis.

Ég hef sagt það áður að núverandi löggjöf um nudd á Íslandi er ónýtt. Að það megi og geti hver sem er opnað, rekið og starfa á nuddstofu án þess að nokkur hafi eða vilji hafa eftirlit með því.

Það leiðir beinlínis til þess að auðvelda aðilum tengdum mansali og vændi að opna nuddstofur og flytja inn fólk til að starfa á þeim.

En svoleiðis misbeiting á fólki er einn af aðalpuntum kveiks í gærkvöldi og því miður eru snyrtistofur ekki einu stofurnar þar sem vinnumansal á sér stað.

Ég hef fengið ábendingar um stofur sem eru svo kölluð þvottahús eða þar sem verið er að hvítþvo ílla fenginn hagnað af eiturlyfjasölu.

Einnig vill ég benda á að hver sem er má kenna nudd á Íslandi og það eru þó nokkur dæmi um allskonar "nám" í nuddi allt frá 10 tíma námskeið upp í 400 tíma helgarnám og já það er engin eftirlitsstofnun sem hefur eða vill hafa eftirlit með þessu svo kallaða námi.

Hér á þessu landi eru viðurkenndar námsbrautir á framhaldsskólastigi til að læra heilsunudd og í lok útskriftar færðu leyfi til að kalla þig heilsunuddara. Það nám leiðir hvorki af sér lögverndað starfsheiti né löggildingu. Þar sem nudd fellur hvorki undir iðnarlöggjöf né löggildingu heilbrigðisráðherra.
Ef nudd væri löggilt eða lögverndað og fólk þyrfti að sýna fram á einhverja lágmarks menntunarkröfur til að geta opnað og rekið nuddstofur ásamt því að auka töluvert allt eftirlit með nuddstofum og snyrtistofum þá myndum við alla vega gera lögbrotum erfiðara um vik

Reginn Unason.
Formaður Félags Íslenskra heilsunuddara

Þar sem komið hefur tillaga um breytingu á merki FÍHN þá hefur stjórnin ákveðið að félagsmenn geta fengið þá boli sem ti...
25/04/2025

Þar sem komið hefur tillaga um breytingu á merki FÍHN þá hefur stjórnin ákveðið að félagsmenn geta fengið þá boli sem til eru frítt. Það eru 30 stk af bolum til af ýmsum stærðum og gerðum og þeir munu vera á aðalfundinum okkar 30.apríl.

Pistil frá formann Félag íslenskra heilsunuddara um mikilvægasta málefni heilsunuddara. Þar sem er verið að óska eftir b...
19/11/2024

Pistil frá formann Félag íslenskra heilsunuddara um mikilvægasta málefni heilsunuddara. Þar sem er verið að óska eftir breytingum núna þegar það er stutt í kosningar.

"Núverandi löggjöf um nudd er ónýt!

Skýrasta dæmið er einfaldlega sú staðreynd að hver sem er má og getur starfað sem nuddari á landinu! Algjörlega óháð því hvort viðkomandi hafa nokkra menntun sem nuddari."


Það má endillega deila þessu

Ég óska eftir breytingum svo að ég og allir aðrir menntaðir Heilsunuddarar viti hvað við eigum að kjósa í komandi alþingiskosningum. 

Á heimasíðu FÍHN er listi yfir:167 menntaða heilsunuddara sem starfa í 25 sveitarfélögum ásamt bókunarupplýsingum hjá 83...
03/06/2024

Á heimasíðu FÍHN er listi yfir:

167 menntaða heilsunuddara sem starfa í
25 sveitarfélögum ásamt bókunarupplýsingum hjá
83 menntuðum heilsunuddurum.

Kíktu á listann og finndu menntaðan heilsunuddara í þínu sveitarfélagi!

KYNNING - Ragnhildur Sigurðardóttir heilsunuddari"Ég er mjög spennt að sýna þér hvað ég get boðið þér, með áherslu á að ...
09/01/2024

KYNNING - Ragnhildur Sigurðardóttir heilsunuddari

"Ég er mjög spennt að sýna þér hvað ég get boðið þér, með áherslu á að endurheimta heilsuna og ná betra jafnvægi í daglegu lífi. Umfram allt að finna þína leið sem skapar meiri lífsgleði og ljóma. Já, finna þína ástríðu og um leið hjálpa þér að tengja saman hugann, líkamann og andlega heilsu. Ég býð upp á Heilsunudd, einstaklingsráðgjöf og hópatíma með heildrænni nálgun, sem felur í sér að líta á einstaklinginn sem eina heild; huga, líkama og andlegu heilsuna. Ég hef starfað sem meðhöndlari og kennari í 35 ár. Þar býð ég upp á: Heilsunudd, heilun, nálastungur, yoga og hugræna atferlismeðferð. Upplýsingar inn á heimasíðunni www.ragnhildurgagga.is"

KYNNING - Kristín Berta Sigurðardóttir heilsunuddari"Kristín Berta heiti ég og útskrifaðist sem heilsunuddari núna ídese...
08/01/2024

KYNNING - Kristín Berta Sigurðardóttir heilsunuddari

"Kristín Berta heiti ég og útskrifaðist sem heilsunuddari núna í
desember 2023. Ég er eigandi Birtu Heilsu og er með aðstöðu í
Hamraborg í Kópavogi. Ég nudda mikið klassískt nudd, sogæðanudd, íþróttanudd, vinn mikið með vefjalosun og nota cupping töluvert í minni vinnu. Síðastliðið haust bætti ég svo við mig þekkingu í sogæðanuddi, en á því námskeiði var áhersla lögð á sértæk sogæðavandamál eins og sogæðabjúg, bláæðabjúg og fitubjúg. Mér finnst gríðarlega mikilvægt að vinna heildrænt með mínum nuddþegum og skoða t.d. mataræði, hreyfingu, svefn og streitu til að bætu heilsuna. Birta Heilsa er einnig með síðu á facebook og á instagram."

KYNNING – Harpa Finnsdóttir heilsunuddari "Ég er menntaður heilsunuddari og hef að mestu sérhæft mig í íþróttanuddi, Kin...
19/07/2023

KYNNING – Harpa Finnsdóttir heilsunuddari

"Ég er menntaður heilsunuddari og hef að mestu sérhæft mig í íþróttanuddi, Kinesio og Dynamic teipingum, Grit-Bar stálsköfun og öðrum djúpvefjameðferðum. Ég vinn einnig með nálar, cupping, Casterolíusköfun og dynamic teygjur á bekk svo eitthvað sé nefnt en fjölmörg námskeið hafa fylgt í kjölfarið. Sem viðurkenndur einkaþjálfari nýti ég mér þá þekkingu og hanna æfingaprógröm fyrir meðferðarþega sem það kjósa til að auka blóðflæði í vöðvum, leiðrétting á líkamsbeitingu og leiðbeiningar fyrir styrktar- og liðleikaæfingar. Ég hef einnig lokið námi frá Bandaríkjunum varðandi viðloðun á taugum sem orsaka króníska verki. Ég er sjálfstætt starfandi og má finna HFHeilsu á noona.is."

Viðtal við formann FÍHN í Bítinu á Bylgjunni í morgun
19/07/2023

Viðtal við formann FÍHN í Bítinu á Bylgjunni í morgun

Reginn Unason, formaður félags íslenskra heilsunuddara.

Address


Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Félag íslenskra heilsunuddara posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Félag íslenskra heilsunuddara:

Shortcuts

  • Want your business to be the top-listed business?

Share