23/05/2022
Sólveig náði stórkostlegum árangri í heilsuuppbyggingu
“Vildi ekki eyða bestu árum ævinnar heilsulaus vegna ofþyngdar”
Sólveig Þórarinsdóttir, 43 ára leikskólastjóri ákvað að snúa heilsunni til betri vegar og skráði sig í dagbókarráðgjöf hjá grenningarráðgjafanum Sverri Þráinssyni.
Á hálfu ári losaði hún sig við 25 kíló,
fór úr 86,7 kg (BMI 31,6 sem er offita, flokkur 1) niður í 61,7 kg (BMI 22,4 sem er kjörþyngd) og
græddi auk þess bætta heilsu, andlega sem og líkamlega.
Pressan tók Sólveigu tali þar sem hún sagði okkur sína sögu og samþykkti að birta opinberlega til
hvatningar öðrum í sömu stöðu.
1. Nafn, aldur, starf
Sólveig Þórarinsdóttir, 43 ára, Leikskólastjóri
2. Hvað varð til þess að ákvörðun var tekin um að snúa lífsstíl og rútínu til betri vegar?
Ég var komin yfir fertugt, alltaf þreytt og langaði ekki að eyða bestu árum lífsins heilsulaus vegna
ofþyngdar.
3. Hvert var allra fyrsta skrefið?
Fann að ég þurfti að gera eitthvað í mínum málum áður en í óefni var komið og rakst á auglýsingu frá
Grenningarráðgjafanum Sverri Þráinssyni og ákvað að slá til.
4. Var ákvörðunin og byrjunin erfitt skref?
Já, bara fyrst en fann að nóg var komið og var tilbúin að taka á mínum málum og hætti að afsaka það
að vera alltaf að stelast í nammi og fleira sem er ekki gott fyrir mig.
5. Hvað gerðir þú í þessu ferli? Þ.e hver var daglega rútínan og hverju áttir þú að skila frá þér?
Byrjaði að borða reglulega, með meðvitað minnkuðum skömmtum, ég ákvað að hætta öllu sælgætisáti sem var ótrúlega auðvelt af því ég ákvað og vildi það sjálf.
Fjórar máltíðir á dag, morgunmatur, hádegismatur, síðdegishressing, kvöldmatur, og ekkert þar á
milli.
Ég fylgdist með skrefatalningu og skammtastjórnun, hafði viðmið og markmið varðandi skrefafjölda, og ég setti hreyfingu í daglegan forgang. Svo sendi ég einfalda dagbók til ráðgjafans á hverju kvöldi ásamt skrefatalningu og útskýringu á líðan
og gengi hvers dags (tilfinningadagbók).
6. Hver var munurinn á þessari nálgun sem þú notaðir og öðrum fyrri tilraunum?
Þetta var einfalt og hentaði minni rútínu í mínu daglega lífi. Ekkert sem ekki mátti borða en
fylgdist með skammtastærðum og ekkert nart.
Fyrir mig var mjög auðvelt að fylgja þessu og árangurinn kom fljótlega í ljós og það hvatti mig áfram.
Þessi nálgun grenningarráðgjafans Sverris var auðveld og mun árangursríkari en aðrar sem ég hef reynt í baráttunni við aukakílóin.
7. Kom einhverntíma í hugann sú hugsun um að hætta og snúa til gamalla venja?
Nei mér datt aldrei í hug að hætta. Fann svo mikinn mun á líkamlegri og andlegri líðan að mig langaði
það ekki. Get aldrei hugsað mér að fara í gamla farið að vera verkjuð, með bjúg og alltaf þreitt.
8. Hvað hefur þú lært sem þú vissir ekki áður?
Þetta var í raun allt saman eitthvað sem maður vissi, það var það besta en samt eitthvað sem maður hefur ekki kunnað að fara rétt eftir.
Eftirfylgnin var mjög gagnleg og árangurinn kom mér á óvart, hvað þetta var í raun auðvelt þegar ég var tilbúin og búin að einsetja mér að ná árangri.
9. Er mikilvægt að taka andlega hlutann jafnalvarlega og samhliða þeim líkamlega?
Ekki spurning, þetta gerist allt uppi í hausnum fyrst, og það er ótrúlega mikilvægt að setja sér markmið og ná að fara eftir þeim til að ná árangri, það að líða vel andlega er mjög mikilvægt og þegar maður finnur hvað manni líður mikið betur, léttist lundin og lífið verður mikið skemmtilegra.
10. Viskuráð til almennings?
Það getur engin náð árangri fyrir þig.
Allur árangur kemur frá þinni vinnu og hvað þú ert tilbúin/n að leggja á þig til þess að ná þeim árangri sem þú ert að leita að!