29/10/2026
🎃👻 Hrekkjavaka með endurnýtingarívafi! ♻️
Það þarf ekki að kaupa nýjan búning til að vera ógnvekjandi flottur á Halloween! 🧙♀️🦇
Hvað með að gefa gamla búningnum nýtt líf, gramsa í fataskápnum eða leyfa hugmyndafluginu að njóta sín og föndra eitthvað alveg einstakt úr gömlum fötum?
🧡 Nokkrar hugmyndir fyrir umhverfisvæna hrekkjavöku:
♻️ Endurnýtum búninga frá fyrri árum eða skiptumst á búningum við vini og fjölskyldu.
👕 Breytum gömlum fötum í drauga, nornir eða aðrar furðuverur.
🛍️ Kíkjum í nytjamarkaði og verslanir með notuð föt – þar leynast oft sannkallaðir fjársjóðir!
✂️ Nýtum það sem til er heima í skreytingar og fylgihluti.
Bestu búningarnir þurfa nefnilega ekki að vera nýir – bara hugmyndaríkir! ✨
Gerum hrekkjavökuna skemmtilega fyrir okkur og umhverfið. 🌍
🎃 Hvernig ætlar þú að endurnýta á Halloween í ár?
Terra – Skiljum ekkert eftir 💙