dk hugbúnaður ehf.

Directions Website Contact the business

dk hugbúnaður ehf. dk viðskiptahugbúnaðurinn er alhliða viðskipta- og upplýsingakerfi, sérlega hentugt fyrir allar stærðir fyrirtækja.

dk viðskiptahugbúnaður er að fullu þróaður á Íslandi fyrir íslenskar aðstæður. Hann hefur verið vinsælasti viðskiptahugbúnaðurinn í um 19 ár og er í notkun hjá yfir 5.000 fyrirtækjum. Viðskiptavinir dk eru úr flestum atvinnugreinum og fjölgar ört. dk hugbúnaður er nú leiðandi fyrirtæki á sviði viðskiptahugbúnaðar fyrir smærri og meðalstór fyrirtæki.

📊Ársreikningar - útlit, stillingar og fleiraÁ morgun, fimmtudaginn 5. nóvember kl. 9:00–10:00, fer Sigríður Svavars yfir...
04/11/2026

📊Ársreikningar - útlit, stillingar og fleira

Á morgun, fimmtudaginn 5. nóvember kl. 9:00–10:00, fer Sigríður Svavars yfir uppsetningu ársreiknings í dk, samtölulykla og bókhaldslykla, samtölubil, stillingar, skýrslur og ársreikning á ensku.

Stutt og hnitmiðað námskeið á Teams💻

Skráning👉 https://bit.ly/4iBmgxq

Við bjóðum Jóhann Þorláksson velkominn til dk! 👋Jóhann hefur verið ráðinn sviðsstjóri hugbúnaðarþróunar. Hann hefur víðt...
03/11/2026

Við bjóðum Jóhann Þorláksson velkominn til dk! 👋

Jóhann hefur verið ráðinn sviðsstjóri hugbúnaðarþróunar. Hann hefur víðtækan bakgrunn í hugbúnaðarþróun, ráðgjöf og rekstri og hefur starfað við viðskiptahugbúnað á bæði íslenskum og alþjóðlegum markaði.

„Lausnir dk gegna mikilvægu hlutverki í daglegum rekstri fjölda íslenskra fyrirtækja. dk hefur alla tíð lagt áherslu á áreiðanlegar og notendavænar lausnir og á því verður engin breyting. Mín áhersla verður að nýta sjálfvirkni og gervigreind þar sem tæknin skilar viðskiptavinum raunverulegum ávinningi. Öryggi viðskiptahugbúnaðar og örugg notkun gervigreindar verða þar í fyrirrúmi. Það verður spennandi að vinna með teyminu og viðskiptavinum að þeirri vegferð,“ segir Jóhann.

Lestu meira👇

Jóhann Þorláksson hefur verið ráðinn sviðsstjóri hugbúnaðarþróunar hjá dk. Hann mun bera ábyrgð á þróunarstarfi, stefnumótun og uppbyggingu lausna dk. Jóhann situr jafnframt í framkvæmdastjórn félagsins.

Takk! ❤️Tíunda árið í röð er dk á lista Creditinfo Ísland yfir Framúrskarandi fyrirtæki.Takk kæra starfsfólk dk fyrir fr...
29/10/2026

Takk! ❤️

Tíunda árið í röð er dk á lista Creditinfo Ísland yfir Framúrskarandi fyrirtæki.

Takk kæra starfsfólk dk fyrir frábært starf og takk viðskiptavinir og samstarfsaðilar fyrir traustið og samfylgdina.

Við erum stolt og þakklát og höldum ótrauð áfram! 🏆💙

Nánar👉

Framúrskarandi fyrirtæki er vottun fyrir íslensk fyrirtæki sem uppfylla ströng skilyrði Creditinfo um heilbrigðan rekstur og sterkar stoðir.

⏰ Hraðnámskeið um innkaup og vörumóttöku í dk, á morgun þriðjudaginn 27. október kl. 9–10 á Teams.Sigríður Sigþórsdóttir...
26/10/2026

⏰ Hraðnámskeið um innkaup og vörumóttöku í dk, á morgun þriðjudaginn 27. október kl. 9–10 á Teams.

Sigríður Sigþórsdóttir, sérfræðingur í innkaupakerfinu, fer yfir stofnun innkaupapantana, pantanatillögur, flutning yfir á vörumóttöku, verðútreikning og bókun á birgðir. Í lokin gefst tími fyrir spurningar.

Stutt og hnitmiðað – 12.900 kr.

Skráðu þig hér👉 https://tinyurl.com/ysuvrww6

Tíu ár í röð! 🎉 dk hugbúnaður er í hópi Fyrirmyndarfyrirtækja í rekstri 2026 samkvæmt lista Keldunnar og Viðskiptablaðsi...
22/10/2026

Tíu ár í röð! 🎉 dk hugbúnaður er í hópi Fyrirmyndarfyrirtækja í rekstri 2026 samkvæmt lista Keldunnar og Viðskiptablaðsins.

Í ár eru 1780 fyrirtæki og stofnanir sem uppfylla skilyrðin og erum við hjá dk afar stolt af því að tilheyra þessum hópi í áratug🫶

dk hugbúnaður er í hópi Fyrirmyndarfyrirtækja í rekstri 2026, samkvæmt árlegum lista Keldunnar og Viðskiptablaðsins. Þetta er tíunda árið í röð sem dk hlýtur þessa viðurkenningu. Listinn er tekinn saman árlega og nær til fyrirtækja sem sýnt hafa traustan og stöðugan rekstur...

Það var bleikt yfir dk í dag! 🩷Október er bleikur mánuður og í dag er Bleiki dagurinn🩷 Starfsfólk dk mætti í bleiku og g...
21/10/2026

Það var bleikt yfir dk í dag! 🩷

Október er bleikur mánuður og í dag er Bleiki dagurinn🩷 Starfsfólk dk mætti í bleiku og gæddi sér á kaffiveitingum í stíl☕🎂 Það er fallegt að sjá fólk um allt land klæðast bleiku og sýna samstöðu og ánægjulegt að sjá hversu mikil áhrif árlegt árveknisátak Krabbameinsfélagsins, Bleika slaufan, hefur haft í gegnum árin.

Málum bæinn bleikan, berum Bleiku slaufuna, klæðumst bleiku og sýnum öllum sem hafa greinst með krabbamein, og aðstandendum þeirra, stuðning í verki.

Hvernig tengjast innkaup, birgðir og sala í dk? Sigríður Sigþórsdóttir, sérfræðingur í ráðgjafateymi dk, sýnir þér allt ...
21/10/2026

Hvernig tengjast innkaup, birgðir og sala í dk?

Sigríður Sigþórsdóttir, sérfræðingur í ráðgjafateymi dk, sýnir þér allt vöruferlið skref fyrir skref, frá innkaupapöntun til afhendingar og reiknings. Í lokin gefst tími fyrir spurningar.

Kynningin hentar öllum sem vilja ná betri tökum á ferlinu, sem og þeim sem vilja kynna sér innkaupakerfið í dk.

📅 Fimmtudaginn 22. október
🕘 Kl. 9:00–10:00
💻 Á Teams
💰 Án endurgjalds

Skráðu þig hér: https://tinyurl.com/4h2wtkdy

⏰ Hraðnámskeið í Innheimtukerfi banka í dk á morgun!Hrefna Ýr Halldórsdóttir úr ráðgjafateymi dk fer yfir allt það helst...
19/10/2026

⏰ Hraðnámskeið í Innheimtukerfi banka í dk á morgun!

Hrefna Ýr Halldórsdóttir úr ráðgjafateymi dk fer yfir allt það helsta á einum klukkutíma: stofnun og sendingu krafna, skráningu innborgana, sjálfvirka sendingu krafna við prentun sölureikninga og uppsetningu sambankavefþjónustu.

📅 Þriðjudaginn 20. október, kl. 9:00–10:00
💻 Rafrænt, þáttakendur fá hlekk sendan fljótlega eftir skráningu
💰 12.900 kr.

Síðustu forvöð að skrá sig! 👉 https://bit.ly/4isUhRF

dk hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026, fimmta árið í röð! 🎉Viðurkenninguna hljóta félög sem hafa náð markmiði ...
15/10/2026

dk hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026, fimmta árið í röð! 🎉

Viðurkenninguna hljóta félög sem hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Hróar Hugosson, mannauðsstjóri dk, tók á móti viðurkenningunni fyrir hönd fyrirtækisins.

Við erum afar stolt og segjum takk fyrir okkur Jafnvægisvogin - Hreyfiaflsverkefni FKA✨ Innilega til hamingju öll sem hlutu viðurkenninguna í ár. Saman höldum við áfram að losa hnútinn! 💪

dk hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 og er það fimmta árið í röð sem fyrirtækið hlýtur þennan heiður.

Address

Dalvegi 30
Kópavogur
201

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when dk hugbúnaður ehf. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to dk hugbúnaður ehf.:

Shortcuts

Share

Nearby businesses