M7 ehf

Call Directions Website Contact the business

M7 ehf M7 er margverðlaunað íslenskt tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í Microsoft Dynamics 365, Azure og Power Platform.

Við hjálpum fyrirtækjum að ná betri árangri með snjöllum stafrænum lausnum.

Við erum stolt! 🏆Í gær fórum við í Hörpu og tókum á móti viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki 2026 Þess...
29/10/2026

Við erum stolt! 🏆

Í gær fórum við í Hörpu og tókum á móti viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Þessi viðurkenning tilheyrir öllu frábæra teyminu okkar. Hún er líka fyrir viðskiptavinina sem treysta okkur fyrir verkefnum sínum á hverjum degi. Takk öll fyrir ykkar þátt í þessu!

Við höldum ótrauð áfram.

M7 ER FYRIRMYNDARFYRIRTÆKI Í REKSTRIKeldan í samstarfi við Viðskiptablaðið tekur saman lista á hverju rekstrarári yfir þ...
22/10/2026

M7 ER FYRIRMYNDARFYRIRTÆKI Í REKSTRI
Keldan í samstarfi við Viðskiptablaðið tekur saman lista á hverju rekstrarári yfir þau fyrirtæki sem teljast til fyrirmyndar í rekstri. M7 hlýtur þessa viðurkenningu núna sjötta árið í röð. Tilkynnt var um listann í sérblaði Viðskiptablaðsins og Keldunnar um Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2026, sem kom út núna á dögunum.

Til að komast á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar þurfa fyrirtæki að uppfylla eftirfarandi skilyrði.
✅ Rekstrarárin 2025 og 2024 liggja til grundvallar fyrir viðurkenninguna 2026, en einnig er tekið tillit til rekstrarársins 2023.
✅ Afkoma þarf að hafa verið jákvæð.
✅ Tekjur þurfa að hafa verið umfram 50 milljónir króna.
✅ Eignir þurfa að hafa verið umfram 90 milljónir króna.
✅ Eiginfjárhlutfall þarf að hafa verið umfram 20%.
✅ Aðrir þættir metnir af Viðskiptablaðinu og Keldunni, til dæmis skil á ársreikningi og rekstrarform.

,,Við hjá M7 erum ákaflega stolt af því að vera á þessum lista sjötta árið í röð. Traustur rekstur skapar jákvæð vaxtarskilyrði og öryggi. Við slíkar aðstæður höfum við svigrúm til að hugsa til langtíma og byggja upp einstaklega öflugt teymi. Það skiptir öllu máli í þekkingariðnaði þar sem mannauðurinn er langstærsta auðlind hvers vinnustaðar," segir Enok Jón Kjartansson, framkvæmdastjóri M7.

,,Við erum samhent í því hjá M7 að veita viðskiptavinum fyrsta flokks þjónustu þar sem markmiðið er að fara fram úr væntingum. Sú nálgun er lykillinn að okkar árangri. Þessi viðurkenning er með öðrum orðum gæðastimpill á starfsemi sem gengur vel af því að við höfum á að skipa mögnuðum mannskap," bætir Enok við.

Við hjá M7 héldum eldhresst innflutningspartý í Torfhöllinni að Silfursmára 12 fimmtudaginn 15. október. Múgur og margme...
19/10/2026

Við hjá M7 héldum eldhresst innflutningspartý í Torfhöllinni að Silfursmára 12 fimmtudaginn 15. október. Múgur og margmenni mætti í heimsókn. Enok framkvæmdastjóri bauð gesti velkomna og sýndi uppfærða lógóið okkar, Bolli Már græjaði uppistand og klippti (óvænt) á borða með stæl og elegans, Krónikan sá um veitingarnar, Hari tók myndirnar og 1311 sá um skipulagið. Þúsund þakkir til allra þeirra sem litu við í nýju höfuðstöðvarnar!

M7 fær nýja ásýnd! Það hefur margt gerst hjá okkur undanfarið. Við fluttum nýlega í stærra og glæsilegra húsnæði í Silfu...
19/10/2026

M7 fær nýja ásýnd!

Það hefur margt gerst hjá okkur undanfarið. Við fluttum nýlega í stærra og glæsilegra húsnæði í Silfursmára 12 og okkur fannst rétti tíminn til að gefa M7 ferskara útlit í leiðinni. Í dag kynnum við því með stolti nýtt merki M7!

Nýja merkið er einfaldara, stílhreinna og nútímalegra og sýnir betur hver við erum í dag og hvert við stefnum. M7 hefur vaxið mikið síðustu ár og við viljum að útlitið vaxi með okkur.

Það sem skiptir mestu máli breytist þó ekki. Fólkið okkar, þjónustan og metnaðurinn eru þau sömu og áður. Við höldum áfram að aðstoða íslensk fyrirtæki með Microsoft Dynamics 365 F&O, Dynamics AX og Power Platform, eins og við höfum gert í mörg ár 💙

Á næstu vikum fer nýja merkið að birtast á heimasíðunni, samfélagsmiðlum, í tölvupósti og víðar.

Að lokum viljum við þakka viðskiptavinum okkar, samstarfsaðilum og frábæru starfsfólki fyrir samfylgdina. Án ykkar væri M7 ekki það fyrirtæki sem það er í dag. Við hlökkum til framhaldsins með ykkur!!

M7 ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKIM7 hefur fjórða árið í röð hlotið viðurkenningu og vottun Creditinfo sem ,,Framúrskarandi ...
05/10/2026

M7 ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI

M7 hefur fjórða árið í röð hlotið viðurkenningu og vottun Creditinfo sem ,,Framúrskarandi fyrirtæki". Við erum stolt af þessum árangri, sem er sameiginlegt verkefni M7-teymisins og staðfesting á þeirri sterku liðsheild sem við höfum byggt upp.

Creditinfo hefur í 18 ár greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt þeim sem skara fram úr viðurkenningu fyrir árangurinn. Aðeins um 2% fyrirtækja á Íslandi uppfylla ströng skilyrði Creditinfo og þar eru til grundvallar lögð markviss vinnubrögð og traustur rekstur.

Hjá M7 starfa þrjátíu sérfræðingar á faglegum og jákvæðum vinnustað þar sem sem öll leggja sig fram við að leysa verkefni viðskiptavina og veita þeim fyrsta flokks þjónustu. Hér í Torfhöllinni við Silfursmára eiga systurnar samvinna og þekking samleið alla daga.

Takk, M7-teymi, fyrir frábært starf og takk fyrir traustið, kæru viðskiptavinir og samstarfsaðilar!

/////

M7 IS AN EXCELLENT COMPANY

For the fourth consecutive year, M7 has received Creditinfo’s recognition and certification as a ,,Strongest in Iceland” company. We are proud of this achievement, which reflects the collective efforts of the M7 team and the strong team spirit we have built together.

For 18 years, Creditinfo has analysed the performance of Icelandic companies and recognised those that excel. Only around 2% of companies in Iceland meet Creditinfo’s strict criteria, which reflect disciplined business practices and sound operations.

M7’s thirty specialists work in a professional and positive environment, where everyone is committed to solving our clients’ challenges and delivering first-class service. Here at Torfhöllin in Silfursmári, collaboration and expertise go hand in hand every day.

Thank you to the M7 team for your outstanding work, and to our valued clients and partners for your trust!

🎯 Viðskiptablaðið greinir frá flutningum okkar í Torfhöllina í dag.,,Nýju höfuðstöðvarnar veita okkur kærkomið svigrúm t...
21/09/2026

🎯 Viðskiptablaðið greinir frá flutningum okkar í Torfhöllina í dag.

,,Nýju höfuðstöðvarnar veita okkur kærkomið svigrúm til áframhaldandi vaxtar og skapa enn betri aðstöðu fyrir starfsfólk, viðskiptavini og samstarfsaðila. Við köllum húsið Torfhöllina á tyllidögum vegna hins óvenjulega þaks. Byggingin er nútímaleg og vel staðsett í hjarta Kópavogs og styður við þann metnað okkar að reka hérna framúrskarandi fyrirtæki, sem veitir viðskiptavinum fyrsta flokks vörur og þjónustu," segir Enok framkvæmdastjóri.

👇 Við smellum hlekk á umfjöllun hérna í fyrstu athugasemd (comment) við þennan póst.

Í umfjöllun Viðskiptablaðsins segir einnig:

,Hugbúnaðarfyrirtækið M7 hefur flutt starfsemi sína í nýtt húsnæði að Silfursmára 12 í Kópavogi. Hjá M7 starfa nú um 30 ráðgjafar, þróunaraðilar og sérfræðingar. Það var Klasi sem þróaði og reisti húsið fyrir Heima, en arkitektar þess eru Batteríið arkitektar, sem teiknuðu meðal annars Hörpu og miðbæinn á Selfossi.

Í hópi viðskiptavina M7 eru til að mynda BM-Vallá, Byko, Icepharma, Innnes, Ísfell, Garri, Góa, Hagkaup, HS Orka og HS Veitur, ÓJK Ísam, Parlogis og RJC.

M7 er samstarfsaðili Microsoft og lausnir fyrirtækisins eru meðal annars á sviði Dynamics 365, Azure og Power Platform, ásamt því sem M7 þróar eigin lausnir, til dæmis Bankalausn, Samþykktir, Skeytamiðlun og sérsmíðuð lausnir og öpp.

M7 var stofnað í lok árs 2017 af lykilstarfsfólki fyrirtækisins og er því níu ára gamalt. M7 hefur verið meðal Fyrirtækja ársins á Íslandi hjá Creditinfo og Framskúrandi fyrirtækja VR, ásamt því að vera Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri samkvæmt úttekt Keldunnar og Viðskiptablaðsins.

📍M7 flytur í stærra húsnæði í Silfursmára 12M7 hefur flutt starfsemi sína í nýtt húsnæði að Silfursmára 12 í Kópavogi. F...
01/06/2026

📍M7 flytur í stærra húsnæði í Silfursmára 12

M7 hefur flutt starfsemi sína í nýtt húsnæði að Silfursmára 12 í Kópavogi. Flutningurinn markar mikilvægan áfanga í sögu fyrirtækisins og er tilkominn vegna áframhaldandi vaxtar en fyrra húsnæði var orðið of lítið fyrir starfsemina.

Á undanförnum árum hefur M7 vaxið jafnt og þétt og styrkt stöðu sína sem einn af leiðandi sérfræðingum landsins í Microsoft Dynamics 365, Azure og Power Platform lausnum. Í dag starfa yfir 30 ráðgjafar, þróunaraðilar og sérfræðingar hjá fyrirtækinu sem þjónustar fjölbreyttan hóp viðskiptavina í íslensku atvinnulífi, meðal annars í bíla-, orku-, heildsölu- og smásölugeiranum.

Nýja húsnæðið í Silfursmára 12 veitir M7 aukið svigrúm til áframhaldandi vaxtar og skapar enn betri aðstöðu fyrir starfsfólk, viðskiptavini og samstarfsaðila. Húsnæðið er nútímalegt og vel staðsett í hjarta Kópavogs, í næsta nágrenni við Smáralind og helstu samgönguæðar höfuðborgarsvæðisins.

„Flutningurinn í Silfursmára 12, er spennandi skref fyrir M7. Hann endurspeglar þann vöxt sem fyrirtækið hefur upplifað undanfarin ár og styður við metnað okkar til að halda áfram að byggja upp framúrskarandi vinnustað og veita viðskiptavinum okkar fyrsta flokks þjónustu og lausnir,“ segir Enok Jón, framkvæmdastjóri M7.

M7 hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar undanfarin ár, þar á meðal verið valið Fyrirtæki ársins á Íslandi tvívegis. Flutningurinn í Silfursmára 12 er liður í áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins og endurspeglar þann metnað sem einkennir starfsemi M7 og framtíðarsýn þess.

Við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum, samstarfsaðilum og vinum fyrirtækisins í nýju húsnæði okkar í Silfursmára 12.

Address

Silfursmári 12
Kópavogur
201

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Telephone

+3545523333

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when M7 ehf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to M7 ehf:

Shortcuts

Share

Nearby businesses