05/11/2026
Metta og RV - saman fyrir einfaldara innra eftirlit 🤝
Við hjá Rekstrarvörum höfum hafið samstarf við Mettu, íslenskt fyrirtæki sem þróar stafrænt innra eftirlitskerfi fyrir atvinnueldhús.
Með Mettu verður einfaldara að halda utan um þrif, hitamælingar, gátlista og annað innra eftirlit. Allt á einum stað, með minni pappírsvinnu og betri yfirsýn yfir daglegan rekstur.
Samstarfið er spennandi viðbót við þær lausnir sem við bjóðum viðskiptavinum okkar og við hlökkum til að kynna það á Stóreldhúsinu sem hefst í dag!
Við verðum í Laugardalshöll í dag og á morgun, 5.–6. nóvember. Kíktu við hjá okkur og kynntu þér Mettu.
Nánar um samstarfið og bókun kynningar:
Metta er íslenskt, stafrænt kerfi sem einfaldar innra eftirlit og daglegan rekstur atvinnueldhúsa. Þrif, hitamælingar, atvik og annað eftirlit á einum stað - aðgengilegt í síma, spjaldtölvu eða tölvu.