28/10/2026
HELGIHALD Í SKÁLHOLTSPRESTAKALLI Í NÓVEMBER
1. nóvember: Messa í SKÁLHOLTSDÓMKIRKJU á Allra heilagra messu kl 11. Sóknarpresturinn, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, prédikar og þjónar fyrir altari, Jón Bjarnason dómorganisti leikur á hljóðfærin og leiðir safnaðarsöng. Skúli Sæland er kirkjuvörður. Guðfræðinemar taka þátt í helgihaldinu. Kveikt á kertum í minningu látinna. Barnaborðið er ávallt á sínum stað. Kirkjukaffi eftir stund þar sem við njótum samveru við hvert annað. Innilega velkomin.
1. nóvember: Guðsþjónusta í MOSFELLSKIRKJU á Allra heilagra messu kl. 18. Sóknarprestur, Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, leiðir stundina og Hrafnkell Karlsson stígur orgelið. Kveikt á kertum í minningu látinna og hægt að tendra ljós á leiðum ástvina að stundinni lokinni. Molasopi á prestsetrinu á eftir. Þar erum við öll innilega velkomin.
1. nóvember: Guðsþjónusta á Allra heilagra messu í MIÐDALSKIRKJU kl. 20. Margrét Steinunn Guðjónsdóttir djákni leiðir stundina og Jón Bjarnason stígur orgelið. Kveikt á kertum í minningu látinna og hægt að tendra ljós á leiðum ástvina að stundinni lokinni. Innilega velkomin í fallegu Miðdalskirkju af þessu tilefni.
8. nóvember er ekki messa í Skálholtsdómkirkju vegna undirbúnings fyrir mikinn tónlistarviðburð í kirkjunni kl. 16, þar sem Íslenska Óperan, sinfóníuhljómsveit Suðurlands og okkar besta fólk úr kirkjukórum Suðurlands stígur á stokk.
8. nóvember er guðsþjónusta kl. 14 í SÓLHEIMAKIRKJU þar sem við heiðrum og þökkum fyrir feður á feðradeginum. Margrét Steinunn Guðjónsdóttir djákni leiðir stundina og sönghópurinn Syngjandi s*x flytur skemmtileg lög. Allir eru þar innilega velkomin!
15. nóvember er messa í SKÁLHOLTSDÓMKIRKJU kl. 11. Þar þjónar sr. Axel Árnason Njarðvík og Jón Bjarnason leikur á hljóðfæri og leiðir safnaðarsöng. Barnaborðið er ávallt á sínum stað. Kirkjukaffi eftir stund þar sem við njótum samveru við hvert annað. Innilega velkomin.
22. nóvember er messa í SKÁLHOLTSDÓMKIRKJU kl. 11. Sóknarprestur, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir þjónar fyrir altari og Jón Bjarnason dómorganisti leikur á hljóðfæri og leiðir safnaðarsöng. Við fáum sérstaka heimsókn frá Sambandi íslenskra kristniboðsfélaga, en Sigríður Schram framkvæmdastjóri SÍK flytur hugvekju og fræðir um kristniboðið. Barnaborðið er ávallt á sínum stað. Kirkjukaffi eftir stund þar sem við njótum samveru við hvert annað. Innilega velkomin.
29. nóvember er messa SKÁLHOLTSDÓMKIRKJU á fyrsta sunnudegi í aðventu kl. 11. Sóknarprestur, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, prédikar og þjónar fyrir altari og Jón Bjarnason dómorganisti leikur á hljóðfæri og leiðir safnaðarsöng. Við tendrum fyrsta ljósið á aðventukransinum og syngjum aðventuna inn. Barnaborðið er ávallt á sínum stað. Kirkjukaffi eftir stund þar sem við njótum samveru við hvert annað. Innilega velkomin.
29. nóvember er aðventukvöld í EYVINDARTUNGU við Laugarvatn kl. 19. Margrét Steinunn Guðjónsdóttir leiðir stundina og Jón Bjarnason stjórnar fögrum aðventusöng. Innilega velkomin.