04/11/2024
Í lok október skrifuðu menningar- og viðskiptaráðherra, Almannarómur – miðstöð máltækni, ÖBÍ réttindasamtök og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) undir viljayfirlýsingu þess efnis að vinna saman að því að stórbæta stafrænt aðgengi fatlaðs fólks, með hjálp íslenskra máltæknilausna. Á meðal þeirra verkefna sem unnið verður að er að koma á fót upplýsingagátt um helstu lausnir sem geta gagnast ýmsum hópum, styðja við stofnun raddbanka og setja aukinn kraft í þróun á talgervilslausnum sem styðja við íslensku.
Viljayfirlýsingin byggir á niðurstöðum notendarannsóknar sem Sjá óháð ráðgjöf ehf og Mennsk ráðgjöf unnu fyrr á árinu i samstarfi við menningar- og viðskiptaráðuneyti og ÖBÍ réttindasamtök - Íslensk máltækni, greining a þörfum fatlaðs fólks. Það er mjög ánægjulegt að niðurstöður verkefnisins raungerist í raunverulegum aðgerðum sem munu skipta sköpum fyrir fjölda fólks.
Sjá frétt á vef stjórnarráðsins:
Menningar- og viðskiptaráðherra, Almannarómur – miðstöð máltækni, ÖBÍ réttindasamtök og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu þess efnis að vinna saman að því að stórbæta stafrænt aðgengi fatlaðs fólks, með hjálp íslensk...