29/10/2026
Rétt gögn. Rétt stefna. Rétt ákvörðun. 📊
Expectus er Framúrskarandi fyrirtæki hjá Creditinfo árið 2026, og það ellefta árið í röð.
Við hjálpum fyrirtækjum að taka ákvarðanir byggðar á traustum gögnum og mælanlegum árangri, og við gerum sömu kröfur til okkar eigin reksturs. Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem uppfylla ströng skilyrði um fjárhagslegan styrk, rekstrarárangur og stöðugleika, og aðeins 2,5% íslenskra fyrirtækja uppfylla skilyrðin.
Á bak við þennan árangur stendur frábært starfsfólk, traustir viðskiptavinir og öflugir samstarfsaðilar. Til hamingju öll sem hlutu viðurkenninguna í gær.