Meindýravarnir MVE

Meindýravarnir MVE Við hjá meindýravörnum MVE sjáum um alhliða meindýraeyðingu fyrir einstaklinga og fyrirtæki . Einnig höfum við búnað til varnar meindýrum til sölu

17/08/2026

Nýir sérhannaðir límmiðar fyrir íslenskar aðstæður – beint frá Ítalíu 🇮🇹

🚨 Framtíð nagdýravarna án nagdýrabeitu? 🚨Undanfarnar vikur höfum við hjá Meindýravörnum MVE verið að prófa nýjan snjallb...
30/06/2026

🚨 Framtíð nagdýravarna án nagdýrabeitu? 🚨

Undanfarnar vikur höfum við hjá Meindýravörnum MVE verið að prófa nýjan snjallbúnað frá Aurocon til að vinna gegn músum og rottum.

Það sem gerir þennan búnað sérstakan er að hann notar ekki nagdýrabeitu. Í staðinn notar hann aðferð sem talin er vera mannúðlegasta leiðin til að aflífa nagdýr.

Búnaðurinn er tengdur rafrænu eftirlitskerfi og lætur okkur vita um leið og hann er virkjaður. Það þýðir að ekki þarf að fara reglulega á staðinn til að athuga stöðuna, sem sparar bæði tíma, akstur og kostnað.

Við teljum að þessi lausn geti hentað sérstaklega vel á:

✅ Afskekktum stöðum
✅ Lokuðum svæðum
✅ Stöðum með margmenni
✅ Fyrirtækjum sem vilja forðast notkun nagdýrabeitu

Við lítum ekki á þessa tækni sem staðgengil fyrir hefðbundnar meindýravarnir, heldur spennandi viðbót sem getur hentað mjög vel við ákveðnar aðstæður.

Það verður áhugavert að sjá hvernig framtíðin verður. 🐭🇮🇸

Veggjalýs eru í dag eitt af því sem ferðafólk um allan heim hefur mestar áhyggjur af þegar kemur að gistingu.Að beiðni v...
24/06/2026

Veggjalýs eru í dag eitt af því sem ferðafólk um allan heim hefur mestar áhyggjur af þegar kemur að gistingu.

Að beiðni viðskiptavina okkar höfum við þróað MVE Silver og Gold viðurkenningar fyrir gististaði sem leggja sérstaka áherslu á forvarnir gegn veggjalúsum.

Viðurkenningarnar staðfesta að starfsfólk hefur hlotið fræðslu á viðurkenndu námskeiði um veggjalýs og að fyrirbyggjandi búnaður, verklag og viðbragðsáætlanir séu til staðar til að draga úr áhættu og tryggja skjót og rétt viðbrögð.

🏨 Þjálfað starfsfólk
🛏️ Fyrirbyggjandi búnaður
📋 Skýrt verklag og viðbragðsáætlun
✓ Aukið öryggi fyrir gesti og rekstur

13/06/2026

Myndarlegur hópur að undirbúa sig fyrir verkefni dagsins 👏👏❤️

🐭🪳 Ný bresk rannsókn sýnir að meindýravarnir spara samfélaginu yfir £1,9bn eða um 315 milljarða ISK á ári í skemmdum, vi...
11/06/2026

🐭🪳 Ný bresk rannsókn sýnir að meindýravarnir spara samfélaginu yfir £1,9bn eða um 315 milljarða ISK á ári í skemmdum, viðgerðum og rekstrartapi.

Rannsóknin sýnir einnig að heimili með meindýravanda eru 5 sinnum líklegri til að upplifa alvarleg þunglyndiseinkenni og að meindýr tengjast svefnvanda, öndunarfæravandamálum og aukinni hættu á smitsjúkdómum.

Meindýravarnir eru því ekki bara spurning um óþægindi – heldur lýðheilsu, matvælaöryggi og vernd verðmæta.

Virkar meindýravarnir eru fjárfesting í heilsu, öryggi og verðmætum – ekki kostnaður.

Undanfarið hafa fréttir borist af alvarlegum hantaveirusmitum víða erlendis sem tengjast nagdýrum. Þótt engin staðfest ú...
11/05/2026

Undanfarið hafa fréttir borist af alvarlegum hantaveirusmitum víða erlendis sem tengjast nagdýrum.
Þótt engin staðfest útbreiðsla sé hér á landi minnir þetta okkur á hversu mikilvægt það er að halda uppi virkum meindýravörnum og góðu hreinlæti, sérstaklega í fyrirtækjum tengdum matvælum.

Meindýr eru ekki bara leiðinlegir gestir. Þau geta borið með sér bakteríur, vírusa og mengað matvæli, hráefni og framleiðslusvæði með þvagi, skít og hárum.

Í dag eru virkar meindýravarnir ekki bara góð venja.
Þær eru hluti af ábyrgum rekstri og mikilvægur þáttur í að uppfylla kröfur HACCP, BRCGS og IFS-gæðakerfa.

Stöðug þróun og nýsköpun eru lykillinn að árangri í meindýravörnum.Í dag tókum við formlega við nýjustu útgáfu af búnaði...
07/05/2026

Stöðug þróun og nýsköpun eru lykillinn að árangri í meindýravörnum.

Í dag tókum við formlega við nýjustu útgáfu af búnaði sem við höfum verið að prófa í samstarfi við norskan framleiðanda sem hefur verið að vekja mikla athygli fyrir byltingarkenndar lausnir í baráttunni gegn veggjalús.

Við hjá Meindýravörnum MVE leggjum mikla áherslu á að fylgjast með nýjustu tækni, prófunum og lausnum sem geta raunverulega skilað betri árangri fyrir viðskiptavini okkar.

Spennandi tímar framundan 👌

09/04/2026

Við hjá meindýravörnum MVE sjáum um alhliða meindýraeyðingu fyrir einstaklinga og fyrirtæki . Einnig höfum við búnað til varnar meindýrum til sölu

Við hjá MVE erum afar stolt af því að fá að vinna með fyrirtæki sem sýnir jafn mikinn metnað í gæðum og fagmennsku.Innil...
06/02/2026

Við hjá MVE erum afar stolt af því að fá að vinna með fyrirtæki sem sýnir jafn mikinn metnað í gæðum og fagmennsku.

Innilega til hamingju með frábæran árangur.

Árlegri úttekt alþjóðlegu vottunarstofunnar Intertek SAI Global lauk í vikunni hjá landvinnslum Samherja á Akureyri og Dalvík. Úttektin leiddi í ljós að v

23/10/2025

Address

Frostagata 1A
Akureyri
600

Telephone

+3544624444

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Meindýravarnir MVE posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Meindýravarnir MVE:

Shortcuts

Share