Mögnum

Directions Website Contact the business

Mögnum Mögnum möguleikana. Við veitum heildstæða ráðningaþjónustu og styðjum vinnustaði í gegnum allt ferlið frá starfslýsingu til ráðningar. Akureyri & Árborg

Auk þess: Ráðgjöf, vinnustofur og markþjálfun til að efla samstarf, vellíðan og árangur. M Ö G N U M
Mögnum er öflugt og framsækið þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig í markþjálfun, fræðslu og ráðningum fyrir fólk og vinnustaði sem vilja ná lengra. Mögnum leggur áherslu á viðurkenndar nálganir og faglegar aðferðir sem skila viðskiptavinum virði og árangri. Hugmyndafræði markþjálfunar tvinnast inn í flestar lausnir og þjónustu Mögnum og er fyrirtækið samferða fólki og fyrirtækjum í vegferð sinni að árangri, skilvirkni, lausnum og vellíðan. Sýn og tilgangur: Mögnum það sem í okkur býr svo við eflumst sem við sjálf.
Þ J Ó N U S T A N
MÖGNUM markþjálfar fólk. Markþjálfun er samtalstækni, stuðningur og hvatning sem dregur fram möguleika, markmið og skilning hvers og eins og færir fólk áfram - áfram með viðfangsefni lífsins. Markþjálfun stuðlar að því að þú skiljir, skerpir, skoðir, skýrir, styrkir, skapir, segir, skynjir, slakir, skorir, skipuleggir, sættist, sannir eða sjálfeflist. Vinnustaðir treysta Mögnum fyrir stjórnendum sínum og starfsfólki til að eflast og styrkja fólkið sitt. Rannsóknir sýna að vinnustaðir sem nýta markþjálfa skila betri afkomu og starfsfólki líður betur, hefur betri fókus og meiri skilvirkni í störfum. MÖGNUM er fræðsluaðili sem býr til og stýrir námskeiðum og vinnustofum. Ef þú vilt efla, styrkja eða hrista upp í hópnum þínum þá er Mögnum málið. Sigga hefur mikla reynslu af námskeiðahaldi og leggur áherslu á virka þátttöku starfsfólks til að kveikja á nýrri sýn og virkja þekkingu. Í umsögnum um Siggu er helst sagt að hún nái vel til fólks, hvetji og búi til gott traust og öryggi til þátttöku. Efnistök og áherslur eru margskonar og ákveðin út frá þörfum hvers viðskiptavinar.
• Samskipti og að takast á við ágreining
• Sjálfsefling, sjálfstraust og markmiðasetning
• Stefnumótun, stjórnun og vinnustaðurinn
• Teymi, traust og styrkleikar
• Orku-, tíma-, verkefnastjórnun og forgangsröðun

MÖGNUM býður faglega ráðningarþjónustu fyrir einkaaðila og opinbera aðila. Sigga hefur áralanga reynslu af ráðningum og býr fyrir mikilli þekkingu á því sviði, þar með talið opinberum ráðningarferlum í samræmi við stjórnsýslulög.
Þjónustan spannar ráðningarferlið í heild allt frá upphafi til enda en einnig er hægt að velja afmarkaðri þætti ferlisins sem viðskipavinurinn vill fá aðkomu ráðgjafa að.
• Gerð starfslýsinga og auglýsinga
• Móttaka og utanumhald umsókna í öruggu kerfi
• Úrvinnsla, mat og greining umsókna s.s. viðtöl og umsagnir
• Svörun og upplýsingagjöf til umsækjenda
• Leit í gagnagrunni og tengslaneti

S I G G A
Framkvæmdastjóri, markþjálfi, ráðgjafi
Sigga hefur mikin og einlægan áhuga á fólki í öllu sínu veldi - þeim óendanlegu möguleikum sem við fólkið búum yfir í alls kyns birtingarmyndum. Þannig er hvert nýtt verkefni spennandi óvissuferð og ómetanlegt tækifæri til að kynnast nýju fólki og áskorunum þess í starfi og lífi. Sigga hefur tekið markþjálfunina með trompi síðast liðin 3 ár og er með um 1.200 klukkustundir að baki við að markþjálfa. Það setur hana í hóp reynslumestu markþjálfa landsins. Einnig er hún óumræðanlega stolt af PCC vottuninni sinni sem er næst hæsta vottunarstig í markþjálfun og einungis um 12 aðilar á Íslandi með þá vottun. Mælingar sýna að 86% fólks breytti hegðun og/eða hugsun eftir samtöl hjá henni. Sigga starfaði í 18 ár hjá Capacent og Gallup sem ráðgajfi í ráðningum, sérfræðingur og ráðgjafi í markaðsrannsóknum og starfsamannarannsóknum auk þess að stýra og skipuleggja vinnustofur og rýnihópa. Sigga var rekstrarstjóri útibús Capacent á Akureyri. Helstu styrkleikar Siggu eru húmor, velvild, væntumþykja, seigla og forystuhæfni. Sigga hefur fjölbreytta og mikla reynslu af því að vinna með fólki og fyrirtækjum sem endurspeglast í starfsreynslu hennar og menntunarvali. Framtíðarsýn Mögnum er að eflast og stækka, bjóða ávallt faglega þjónustu og vera fyrsta val aðila á norður- og austulandi í ráðningum, fræðslu, markþjálfun og ráðgjöf
Skoðið endilega nánar á www.mognum.is -þar eru frekari upplýsingar um þjónustuna sem og umsagnir og upplifun viðskiptavina.

Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til að sinna starfi sölustjóra fagaðila í verslun BYKO á Selfossi.Ef ...
04/11/2026

Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til að sinna starfi sölustjóra fagaðila í verslun BYKO á Selfossi.

Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Nánar um starfið: https://jobs.50skills.com/mognum/is/45657

Hefur þú áhuga á málefnum vinnumarkaðarins?Eining-Iðja leitar að öflugum starfsmanni í lifandi og fjölbreytt starf á skr...
04/11/2026

Hefur þú áhuga á málefnum vinnumarkaðarins?

Eining-Iðja leitar að öflugum starfsmanni í lifandi og fjölbreytt starf á skrifstofu félagsins á Akureyri.

Nánar um starfið: https://jobs.50skills.com/mognum/is/45654

Samherji óskar eftir að ráða vinnslustjóra í Landvinnslu ÚA / Samherja á Akureyri.Starfið býður upp á spennandi tækifæri...
27/10/2026

Samherji óskar eftir að ráða vinnslustjóra í Landvinnslu ÚA / Samherja á Akureyri.

Starfið býður upp á spennandi tækifæri til að leiða daglega framleiðslu, vinna náið með öflugu starfsfólki og hafa bein áhrif á gæði, afköst og árangur starfseminnar.

Nánar um starfið:

Viltu leiða faglega þróun læknisþjónustu SÁÁ og hafa áhrif á framtíð meðferðar og þjónustu?SÁÁ leitar að öflugum og fram...
26/10/2026

Viltu leiða faglega þróun læknisþjónustu SÁÁ og hafa áhrif á framtíð meðferðar og þjónustu?

SÁÁ leitar að öflugum og framsýnum leiðtoga í starf framkvæmdastjóra lækninga.

Nánar um starfið: https://jobs.50skills.com/mognum/is/45513

Leikskólinn Mánaland leitar að metnaðarfullum og drífandi aðila í starf sérkennslustjóra/aðstoðarleikskólastjóra.Ef þú h...
23/10/2026

Leikskólinn Mánaland leitar að metnaðarfullum og drífandi aðila í starf sérkennslustjóra/aðstoðarleikskólastjóra.

Ef þú hefur brennandi áhuga á leikskólastarfi, vilt hafa raunveruleg áhrif og starfa í alþjóðlegu og lifandi samfélagi, þá er Mánaland staðurinn fyrir þig.

Nánar um starfið og vinnustaðinn 👇

Viltu taka þátt í að styðja við traustan rekstur og góða ákvarðanatöku?SÁÁ leitar að reynslumiklum og greinandi einstakl...
22/10/2026

Viltu taka þátt í að styðja við traustan rekstur og góða ákvarðanatöku?

SÁÁ leitar að reynslumiklum og greinandi einstaklingi í starf fjármálastjóra. Viðkomandi mun vinna náið með stjórnendum að fjármálastýringu, greiningu og áætlanagerð, auk þess að veita mikilvægan stuðning við ákvarðanatöku.

Nánar um starfið 👇

Tannréttingastofa Gísla E Árnasonar á Tannlæknastofum Akureyrar á Glerártorgi óskar eftir að ráða aðstoðarmann/konu tann...
22/10/2026

Tannréttingastofa Gísla E Árnasonar á Tannlæknastofum Akureyrar á Glerártorgi óskar eftir að ráða aðstoðarmann/konu tannlæknis í 68% starf.

Nánar um starfið 👇
https://jobs.50skills.com/mognum/is/45477

Tannréttingastofa Gísla E Árnasonar á Tannlæknastofum Akureyrar á Glerártorgi óskar eftir að ráða mótttökuritara í 68% s...
22/10/2026

Tannréttingastofa Gísla E Árnasonar á Tannlæknastofum Akureyrar á Glerártorgi óskar eftir að ráða mótttökuritara í 68% starf.

Nánar um starfið 👇
https://jobs.50skills.com/mognum/is/45476

T PLÚS óskar eftir kraftmiklum og ábyrgum aðila í starf áhættustjóra.Viðkomandi mun taka virkan þátt í að móta starfið á...
12/10/2026

T PLÚS óskar eftir kraftmiklum og ábyrgum aðila í starf áhættustjóra.

Viðkomandi mun taka virkan þátt í að móta starfið ásamt því að vera þátttakandi í áframhaldandi framþróun og stækkun fyrirtækisins.

Nánar um starfið: https://jobs.50skills.com/mognum/is/45329

Address

Austurvegur 13, Selfossi Og Skipagata 16
Akureyri
600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Mögnum posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Mögnum:

Shortcuts

Share

Nearby businesses