04/11/2026
Við fengum góða gesti til okkar í Eim í dag! 🇬🇧🇮🇸
Jane Stevens, sendiherra Bretlands á Íslandi, heimsótti okkur ásamt fylgdarliði. Við kynntum starfsemi Eims og þau fjölbreyttu verkefni sem við vinnum að, meðal annars Deploy PED og Vatnalíf / ICEWATER, og áttum góðar samræður um nýsköpun og bætta auðlindanýtingu.
Við sögðum líka frá verkefni í Bretlandi þar sem bændur breyta kúamykju í metangas sem knýr dráttarvélar og bíla og sparar þeim verulega í eldsneytiskostnaði. ♻️
Takk kærlega fyrir heimsóknina og áhugann á starfinu okkar!