29/09/2026
Hvað þarftu að vita um örverur ef þú vinnur með matvæli?
Góður skilningur á örverufræði er undirstaða gæða og öryggis matvæla, og kröfur reglugerða og kaupenda aukast stöðugt.
Á hagnýtu fjarnámskeiði Sýnis, Örverur og matvælaöryggi, förum við meðal annars yfir:
→ helstu örverur í matvælum og hvaðan þær koma
→ örverufræðilegar hættur í vinnsluferlinu
→ sýnatökur og sýnatökuáætlanir
→ geymsluþol og geymsluþolsmælingar
→ hvernig örverumælingar nýtast við hættugreiningu og áhættumat
Námskeiðið hentar gæðastjórum, verkstjórum og öllum sem bera ábyrgð á gæðum og öryggi í matvælavinnslu.
📅 14.–15. október á Teams
Nánari upplýsingar um námskeið og skráning 👇
Hagnýtt námskeið fyrir matvælaframleiðendur sem vilja bæta skilning sinn á örverufræði matvæla og öðlast þekkingu sem nýtist vel í eigin framleiðslu. Nánari upplýsingar og skráning í hlekk í athugasemd hér að neðan