Mental ráðgjöf

Mental ráðgjöf Hvað ef vinnan gæti verið góð fyrir geðheilsuna?

Innsæið segir okkur nánast alltaf sannleikannlöngu áður en orð eru sögð. 👀Við finnum þegar orkan breytist eða samstarfsf...
09/03/2026

Innsæið segir okkur nánast alltaf sannleikannlöngu áður en orð eru sögð. 👀

Við finnum þegar orkan breytist eða samstarfsfélaga líður illa. En hvað gerum við þá? Oftast þegjum við af ótta við að segja eitthvað vitlaust eða vonum að einhver annar taki samtalið.

Raunin er sú að við erum oft fyrstu viðbragðsaðilarnir á vinnustaðnum. Sálræn fyrsta hjálp snýst ekki um að vera sérfræðingur, heldur um að:

✅ Taka eftir merkjunum.
✅ Þora að spyrja.
✅ Hlusta án dóma.

Við hjá Mental ráðgjöf höfum opnað fyrir stutt örerindi um sálræna fyrstu hjálp þar sem Helena okkar fer yfir þessa mikilvægu færni. Erindið er öllum opið og aðgengilegt á vefnum okkar.

Munum: Þögnin getur verið hættulegri en samtalið sjálft. 💬

Sjáðu örerindið hér: https://mentalradgjof.is/blog/orerindi-sfh

Við hjá Mental ráðgjöf höfum farið mjög mikinn í umræðu um viðverustjórnun undanfarið. Skrifað, rætt, frætt og á stundum...
25/02/2026

Við hjá Mental ráðgjöf höfum farið mjög mikinn í umræðu um viðverustjórnun undanfarið. Skrifað, rætt, frætt og á stundum ögrað. Og við ætlum ekki að hætta.

Af hverju?
Af því málið er brýnt.
Fjarvera er raunveruleg.
Hún kostar.
Hún vegur þungt í litlum teymum.
Og tortryggni virkar ekki.

Vandinn liggur sjaldnast í:
✖️ „svörtum sauðum“
✖️ leti
✖️ „nýju kynslóðinni“....eins og haldið hefur verið fram.

Heldur miklu frekar í:
• óskýrri viðverustefnu
• skorti á snemmtækum inngripum
• stjórnendum sem forðast og hreinlega óttast samtöl
• vöntun á raunverulegri eftirfylgni

Þau fyrirtæki sem gera þetta vel:
✔️ Bera kennsl á mynstur (t.d. Bradford)
✔️ Sinna reglulegum innlitum til starfsfólks
✔️ Taka viðverusamtöl snemma
✔️ Fylgja málum eftir
Og það er hér sem þetta klikkar iðulega!

Allt of fá fyrirtæki hafa sett fram skýr viðmið um inngrip, skýrar kröfur til stjórnenda, raunverulegar leiðbeiningar og enn færri hafa þjálfað stjórnendur til að gera þetta vel og af festu.

Þess vegna verða samtölin:
Of sein. Of mjúk. Of hörð. Eða eru bara ekki tekin.

Og undir þessu öllu er fólk.
Fólk sem líður alls konar.
Fólk sem þarf skýrleika, ekki tortryggni.
Fólk sem þarf samtal, ekki þögn.
Og er svo bara kallað svartir sauðir!

Hilja okkar útbjó ótrúlega vönduð og hagnýt leiðarljós um viðverustjórnun, skýr, mannleg og tilbúin til notkunar.

Hér er gjöf frá okkur til ykkar:
👉 https://mentalradgjof.is/moli-vidverustjornun

Taktu utan af henni. Notaðu hana. Deildu henni að vild.

Undanfarið hefur umræðan um veikindafjarveru tekið á sig nýjan tón. Tón þar sem starfsfólk er kallað „svartir sauðir“ og...
20/02/2026

Undanfarið hefur umræðan um veikindafjarveru tekið á sig nýjan tón. Tón þar sem starfsfólk er kallað „svartir sauðir“ og rætt er um misnotkun og dvínandi vinnusiðferði.

Sú umræða er á villigötum.

Veikindafjarvera er raunveruleg áskorun. Hún kostar tíma, orku og fjármagn. En tortryggni leysir hana ekki. Hún grefur undan trausti og smitar út frá sér.

Siðferðisvæðing vandans dregur athyglina frá því sem raunverulega skiptir máli: stjórnendaháttum, álagi, vinnuskipulagi og þeirri menningu sem mótar viðveru.

Ef við ætlum að ná árangri þurfum við:
– gögn í stað getgátna
– greiningu á mynstrum í stað stimplunar einstaklinga
– skýran ramma, regluleg samtöl, snemmtæk inngrip og markvissar forvarnir
– stjórnendur sem taka ábyrgð á stjórnarháttum og vinnustaðamenningu

Veikindafjarvera er ekki siðferðisvandi. Hún er leiðtogamál. Og hún er líklega eitt stærsta viðfangsefni íslenskra stjórnenda um þessar mundir.

Hilja skrifar um þetta í nýrri grein á Vísi

Undanfarið hefur verið talað um starfsfólk sem „svarta sauði“ í tengslum við aukna veikindafjarveru á vinnustöðum. Að starfsfólk misnoti réttindi sín. Að þau taki veikindadaga af því þau megi það.

Framsýni - hugrekki - forysta Viska - stéttarfélag stígur hér risastórt og mikilvægt skref.Með því að ráðast í heildstæð...
12/02/2026

Framsýni - hugrekki - forysta

Viska - stéttarfélag stígur hér risastórt og mikilvægt skref.

Með því að ráðast í heildstæða námslínu fyrir trúnaðarmenn, í samstarfi við okkur hjá Mental ráðgjöf, er Viska að senda skýr skilaboð:

👉 hlutverk trúnaðarmanna skiptir máli
👉 sálfélagslegt öryggi á vinnustöðum er ekki aukaatriði
👉 og forvarnir, færni og fagmennska eru lykillinn að sjálfbærum vinnumarkaði

Undanfarin ár hefur hlutverk trúnaðarmanna vaxið hratt og hljóðlega. Þau eru oft fyrsti viðkomustaður fólks í vanlíðan, í erfiðum samskiptum, álagi eða flóknum aðstæðum. Samt hefur fræðsla, rammi og stuðningur ekki alltaf haldið í við raunveruleikann.

Og það er hér sem Viska sýnir einstaka framsýni.

Í stað þess að líta á þetta sem einstaka fræðslu eða eina vinnustofu hefur Viska valið að:
• byggja markvisst upp færni trúnaðarmanna á þessu sviði
• skapa sameiginlegan faglegan ramma
• styrkja trúnaðarmenn í mörkum, fyrstu viðbrögðum og ábyrgð
• og leggja grunn að sterkara og öruggara trúnaðarmannakerfi til framtíðar

Þetta er ekki lítið skref. Það er risastórt.

Við erum ótrúlega þakklát fyrir traustið og stolt af því að fá að fara þessa vegferð með Visku, stéttarfélagi sem þorir svo sannarlega að horfa fram á veginn og fjárfesta í fólki, menningu og heilbrigðum vinnustöðum.

Viska og Mental ráðgjöf hafa gert með sér samkomulag um þróun heildstæðrar námslínu fyrir trúnaðarmenn. Námslínan er hluti af markvissri uppbyggingu á hlutverki trúnaðarmanna og sameinar staðbundnar vinnustofur, rafræna fræðslu og hagnýta verkefnavinnu.

Hefur þú heyrt af rafrænni EKKO fræðslu? Fræðslan veitir mikilvæga innsýn í birtingarmyndir, einkenni, afleiðingar og áb...
26/01/2026

Hefur þú heyrt af rafrænni EKKO fræðslu?

Fræðslan veitir mikilvæga innsýn í birtingarmyndir, einkenni, afleiðingar og ábyrgð EKKO mála. Að auki skapast gögn sem nýtast í áframhaldandi EKKO forvarnir.

Sveitarfélagið Árborg nýtti sér lausnina og þetta hafði leikskólastjóri Jötunheima að segja um fyrirkomulagið 🙌🏼

EKKO fræðsla í þremur stuttum erindum með umræðuskjöl sem stjórnendur geta nýtt með starfsfólki sínu.

Á þriðjudaginn mætti Hilja í spjall í morgunútvarpið um viðverustjórnun, enda hinn margrómaði "Viðverusérfræðingur" veri...
16/01/2026

Á þriðjudaginn mætti Hilja í spjall í morgunútvarpið um viðverustjórnun, enda hinn margrómaði "Viðverusérfræðingur" verið skotspónn háðs undanfarna daga.

Viðverustjórnun er oft sett fram sem kerfi, reglur og mælikvarðar.
Tölur um fjarveru, prósentur, línurit og viðbragðsáætlanir.

En reynslan sýnir okkur eitt aftur og aftur:
Viðverustjórnun virkar aðeins þegar hún byggir á samtali.

Fjarvera er sjaldnast vandamálið sjálft. Hún er einkenni.
Einkenni þess að eitthvað í starfsumhverfinu, álagi, líðan, samskiptum eða stuðningi er ekki að virka sem skyldi.

Þess vegna þarf viðverustjórnun að vera hluti af forvörnum, styðjandi stjórnun og sálfélagslegri vinnuvernd.

Hlustaðu á spjallið hér : https://www.ruv.is/utvarp/spila/morgunutvarpid/23822/bilia8/hvad-er-vidverustjornun

Þú getur einnig ávallt kíkt á heimasíðu okkar hjá Mental ráðgjöf.

Góð geðheilsa er ekki sjálfgefin heldur eitthvað sem við þurfum að hlúa að í daglegu lífi. Líkt og líkamleg heilsa byggi...
11/01/2026

Góð geðheilsa er ekki sjálfgefin heldur eitthvað sem við þurfum að hlúa að í daglegu lífi. Líkt og líkamleg heilsa byggir á mörgum þáttum þá er andleg líðan samspil margra þátta sem styrkja okkur þegar á reynir.

Í (gulum) september síðastliðnum buðum við hjá Mental ráðgjöf upp á opið 20 mínútna örerindi um efnið og nú, þegar "Blue Monday" er framundan (19. janúar), þá viljum við deila þessu örerindi með ykkur gera það opið öllum þeim sem vilja fá innsýn inn í hvað við meinum þegar við tölum um uppskrift að góðri geðheilsu.

Kíktu hér :

Lykilþættir sem hafa áhrif á geðheilsu okkar og hvernig við getum skapað okkar eigin „uppskrift“ sem hentar hverjum og einum. Við skoðum hvað hjálpar okkur að ná jafnvægi í amstri dagsins, hvernig við getum byggt upp seiglu og hvaða litlu venjur skipta sköpum til lengri tíma.

Undanfarin ár hefur umræða um andlegt heilbrigði á vinnustöðum færst úr jaðrinum inn í kjarna allrar mannauðsumræðu. Ekk...
07/01/2026

Undanfarin ár hefur umræða um andlegt heilbrigði á vinnustöðum færst úr jaðrinum inn í kjarna allrar mannauðsumræðu. Ekki vegna þess að það sé „í tísku“ að ræða geðheilbrigði, heldur vegna þess að gögnin segja skýra sögu: andleg líðan starfsfólks hefur bein áhrif á mætingu, frammistöðu, starfsánægju, helgun, samstarf, tryggð og rekstrarárangur.

Fjárfesting á réttum stöðum getur skilað sér fjórfalt til baka!

Kíktu á heimasíður okkar mentalradgjof.is og byrjaðu að fjárfesta á réttum stöðum!

Er fyrirtækið að tapa verðmætum í skammdeginu? 📉McKinsey og Harvard Business Review benda með skýrum hætti á að fjárfest...
04/01/2026

Er fyrirtækið að tapa verðmætum í skammdeginu? 📉

McKinsey og Harvard Business Review benda með skýrum hætti á að fjárfesting í geðheilbrigði á vinnustöðum skilar sér fjórfalt til baka.

Sé ekkert að gert geta vinnustaðir séð fram á aukna starfsmannaveltu, minni starfsáængju, afköst og helgun og jafnvel aukin tilfelli samskiptavanda.

Janúar og febrúar eru krefjandi mánuðir. Það er þó margt sem hægt er að gera til að sporna gegn áhrifum þeirra.

Geðheilsuátak Mental er hannað fyrir íslenska vinnustaði.
Kynntu þér málið hér:
https://mentalradgjof.is/sertaekthjonusta (átak á staðnum)
https://mentalradgjof.is/course/gedheilsuatak (rafrænt átak)

Gerðu næstu mánuði að mánuðum vaxtar en ekki niðursveiflu.

Árið 2025 var ár nýrra tengsla, tækifæra og lærdóms. Við hlökkum til að taka á móti nýju ári, stútfullt af nýjum tækifær...
30/12/2025

Árið 2025 var ár nýrra tengsla, tækifæra og lærdóms. Við hlökkum til að taka á móti nýju ári, stútfullt af nýjum tækifærum, tengslum og vinnustöðum sem setja fólkið sitt í fyrsta sæti!

Við hjá Mental ráðgjöf óskum ykkar hlýrra, geðheilbrigðra og friðsælla hátíða. Megið þið finna rými fyrir hvíld, tengsla...
23/12/2025

Við hjá Mental ráðgjöf óskum ykkar hlýrra, geðheilbrigðra og friðsælla hátíða. Megið þið finna rými fyrir hvíld, tengsla og næringar.

Nákvæmni er lykillinn að þakklæti!Ef við viljum að starfsfólk finni að það sé metið af verðleikum áður en haldið er út í...
16/12/2025

Nákvæmni er lykillinn að þakklæti!

Ef við viljum að starfsfólk finni að það sé metið af verðleikum áður en haldið er út í jólafríið, þá þarf að huga að nákvæmninni.

Hættum að segja
„Vel gert í ár.“
og segjum fremur
„Ég kunni virkilega að meta hvernig þú leiðbeindir Hilju í gegnum uppgjörið. Það bjargaði verkefninu.“

Það er ekki bara hrósið sem starfsfólk er eftir, það er á höttunum eftir því að eftir því sé tekið og að það sé metið af verðleikum.

Address

Kuggavogur 3
Reykjavík
104

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Mental ráðgjöf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share