Podium ehf.

Call Website Contact the business

Podium ehf. Podium ehf. sérhæfir sig í stefnumótun, samfélagsábyrgð, breytingastjórnun, almannatengslum og markaðsmálum. Ímynd fyrirtækja er þeirra mikilvægasta eign.

Punkturinn yfir i-ið í starfsemi fyrirtækja er ímyndaruppbygging að lokinni greiningu og stefnumótun. Fyrirtæki þurfa reglulega að endurnýja styrk sinn og marka og skoða stefnu sína.

Það eru mörg skemmtileg verkefni sem ráðgjafi sinnir. Í októbermánuði fékk ég þann heiður að stýra stórskemmtilegu skóla...
26/10/2026

Það eru mörg skemmtileg verkefni sem ráðgjafi sinnir. Í októbermánuði fékk ég þann heiður að stýra stórskemmtilegu skólaþingi þar sem grunnskóli Stokkseyrar og Eyrarbakka var í brennidepli. Um 50 áhugasamir foreldrar, stjórnmálamenn, kennarar og annað skólafólk ræddi á málefnalegan hátt hvernig þróa skyldi skólann til framtíðar. Viðfangsefni samtalsins voru meðal annars framtíð skólahúsnæðis á Eyrarbakka og Stokkseyri og hvernig áfram megi efla gæði náms, kennslu og skólastarfs í heild. Verkefnið er sérstaklega nálægt hjartanu þar sem ég er mikil áhugakona um skólastarf, hef starfað á leikskóla, leiðbeinandi í s*x ára bekk og formaður fræðslunefndar og skólanefndar FMOS. Það var sérstaklega gaman að sjá hversu mikinn metnað fólkið á skólaþinginu hafði fyrir skólanum sínum.

Með mér á myndinni eru Guðrún Jóhannsdóttir, skólastjóri barnaskólans og Heiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs.

https://www.arborg.is/frettasafn/um-50-manns-toku-thatt-i-skolathingi-um-framtid-skolastarfs-vid-strondina

16/09/2026
Sumir bresta í söng þegar vel liggur á þeim. Ég hleypi stundum út mínum innra blaðamanni og skrifa um hugðarefni mín. Mé...
04/05/2026

Sumir bresta í söng þegar vel liggur á þeim. Ég hleypi stundum út mínum innra blaðamanni og skrifa um hugðarefni mín.

Mér verður oft hugsað til fyrirtækja sem þurfa að leitast við að móta stefnu í þessum óvissutímum. Það er ekki einfalt verk því um leið og hún er innleidd gæti hún verið úreld.

Fyrirtæki þurfa í auknum mæli að byggja upp kerfi og menningu sem styður við hraða ákvarðanatöku, stöðugt nám og sveigjanlega stefnumótun. Meira um það hér.

Fyrirtæki þurfa í auknum mæli að byggja upp kerfi og menningu sem styður við hraða ákvarðanatöku, stöðugt nám og sveigjanlega stefnumótun.

Address

Reykjavík

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Podium ehf. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Podium ehf.:

Share