02/06/2026
LEIKSKÓLAKENNARI OG/EÐA LEIÐBEINANDI
Leikskólakennari eða starfsmaður með aðra háskólamenntun óskast til starfa við leikskólann Kvistaborg, Haðalandi 26, 108 Rvk. Við erum í Fossvogsdalnum með aðgengi að fallegustu náttúrperlum Reykjavíkur með góðar göngu- og hjólaleiðir allt um kring.
Kvistaborg er fjögurra deilda leikskóli, staðsettur neðst í Fossvogsdalnum. Einkunnarorð Kvistaborgar eru: hugrekki, hlýja, hlustun og hvatning.
Við leggjum áherslu á endurmenntun starfsmanna. Meðal verkefna sem við vinnum reglulega að eru Vináttuverkefni Barnaheilla, Lubbi, Leikur að læra, útinám, hreyfing og Biophilia. Útivera leikur stóran þátt í okkar daglega starfi.
Við erum mjög áhugasöm um tónlist og ef umsækjandi spilar á hljóðfæri þá fellur það vel að okkar starfi.
Við erum heilsueflandi leikskóli, og erum svo heppin að hafa matráð og eldhús sem vinnur allt frá grunni.
Hafir þú áhuga á að vinna með skemmtilegu fólki sem vinnur vel saman í gefandi starfsumhverfi og líflegum börnum, þá er Kvistaborg staður fyrir þig.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Starfs- og ábyrgðarsvið
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara eða önnur háskólamenntun skilyrði.
Mjög góð íslenskukunnátta skilyrði í bæði töluðu og rituðu máli -Stig B2 skv. samevrópska tungumálarammanum
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum og rík þjónustulund
Frumkvæði og metnaður í starfi
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Starfstengd fríðindi
36 st. vinnuvika miðað við 100% starf að meðaltali
Sund- og menningarkort
Heilsuræktarstyrkur
Samgöngustyrkur
Hádegismatur
Nánari upplýsingar um starfið
100% starfshlutfall, starfið er laust 11. ágúst 2026, eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Gunnarsdóttir [email protected] sími: 863-1545
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag.
Leikskólakennari eða starfsmaður með aðra háskólamenntun óskast til starfa við leikskólann Kvistaborg, Haðalandi 26, 108 Rvk. Við erum í Fossvogsdalnum með aðgengi að fallegustu náttúrperlum Reykjavíkur með góðar göngu- og hjólaleiðir allt um kring. Kvistaborg er fjögurra d...