ARKÍS arkitektar

Call Directions Website

ARKÍS arkitektar ARKÍS architects ARKÍS is an awarded, progressive architecture firm that has been in operation since 1997.

ARKÍS’s works and projects span all levels of architecture, planning and design. In addition, ARKÍS offers consulting on sustainable design, BREEAM assessments, real estate management and building information systems. ARKÍS has extensive experience with projects in planning and architecture, but from the firm’s founding, ARKÍS has executed numerous large and complex projects, both in Iceland and internationally. That experience, in addition to cross-disciplinary specializations, international high level education and experience of the office’s employees make the firm well equipped to address all projects in architecture, planning and design.

Við erum stolt af því að tilheyra flokki framúrskarandi fyrirtækja ellefta árið í röð hjá Creditinfo, en aðeins 2,5% ísl...
29/10/2026

Við erum stolt af því að tilheyra flokki framúrskarandi fyrirtækja ellefta árið í röð hjá Creditinfo, en aðeins 2,5% íslenskra fyrirtækja komust á listann í ár.

ARKÍS er jafnframt á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri, en fyrirtækið hefur verið á þeim lista samfellt frá árinu 2017.

Til að hljóta þessar viðurkenningar þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði um rekstur og fjárhagslega afkomu undanfarinna ára. Það er því sérstaklega ánægjulegt að tilheyra þessum úrvalshópi öflugra og traustra fyrirtækja enn eitt árið.
Þennan árangur þökkum við okkar frábæra starfsfólki og traustu viðskiptavinum. Viðurkenningarnar eru okkur jafnframt mikilvæg hvatning til að halda áfram að þróast og bæta starfsemina með áherslu á gæði, fagmennsku og stöðugar umbætur.

Við sameiningu skrifstofuhúsnæðis Heimilistækja og Ásbjörns Ólafssonar var áhersla lögð á að skapa heildstæða ásýnd sem ...
16/10/2026

Við sameiningu skrifstofuhúsnæðis Heimilistækja og Ásbjörns Ólafssonar var áhersla lögð á að skapa heildstæða ásýnd sem tengir saman ólíka litaheima fyrirtækjanna. Mildur grænn og bleikur litatónn varð fyrir valinu og gefur rýmunum hlýlegt og notalegt yfirbragð.

Góð hljóðvist var einnig mikilvægur þáttur í hönnuninni. Veggir voru klæddir hljóðdempandi einingum og gólf teppalögð til að draga úr hávaða og skapa þægilegt vinnuumhverfi fyrir starfsfólk. Litir, efnisval og hljóðvist vinna þannig saman að því að skapa hlýlegt og aðlaðandi skrifstofuumhverfi.

BAUX Gólfefnaval - Luxury Flooring

Við erum stolt að tilkynna! Arkís hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynj...
15/10/2026

Við erum stolt að tilkynna!

Arkís hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem við höfum verið á sem er að skapa vinnustað þar sem við höfum öll jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Fjölbreytt stjórnendateymi taka betri ákvarðanir, stuðla að sterkari menningu og betri árangri fyrir fyrirækið, viðskiptavini okkar og samfélagið allt.

Við þökkum Jafnvægisvoginni fyrir viðurkenninguna og ekki síst okkar frábæra starfsfólki, sem hefur lagt sitt að mörkum til að gera þetta að veruleika.

Jafnrétti er ekki verkefni sem lýkur heldur stöðug vinna, og við ætlum að halda áfram að gera enn betur.


Jafnvægisvogin

Gaman að segja frá því að Skaftárstofa, gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs á Kirkjubæjarklaustri, hefur verið valin á lista...
15/10/2026

Gaman að segja frá því að Skaftárstofa, gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs á Kirkjubæjarklaustri, hefur verið valin á lista (Longlist) Archello Awards 2026 í flokknum Cultural Building of the Year, eða Menningarbygging ársins.

Þessi viðurkenning undirstrikar framúrskarandi hönnun og nýsköpun verkefnisins. Þetta er frábær viðurkenning og gaman að sjá hönnun okkar vekja athygli á alþjóðavettvangi.

Ljósmyndari: Karl Vilhjálmsson Karl Vilhjálmsson
Lýsingarhönnun: Liska LISKA
Burðaþolshönnunn: Verkfræðistofa Þráins og Benedikts
Lagnir: Hnit
Raflagnahönnun: Verkís Verkís hf

Axlarás 50-66 eru tvær raðhúsalengjur í austurhluta Áslandi, með víðáttumiklu útsýni til norðurs og austurs. Lengjurnar ...
13/07/2026

Axlarás 50-66 eru tvær raðhúsalengjur í austurhluta Áslandi, með víðáttumiklu útsýni til norðurs og austurs. Lengjurnar samanstanda af s*x og sjö húsum með aðkomu frá Axlarás um sameiginlegan botnlanga.

Allar íbúðareiningarnar eru á tveimur hæðum, með aðalinngang frá götu á efri hæð. Hver eining hefur sérafnot af garðsvæði bæði framan og aftan við húsið, auk skjólveggja sitt hvoru megin.

Við byggingu húsanna voru eingöngu notuð byggingarefni sem eru vottuð eða uppfylla kröfur byggingarreglugerðar og íslenskra staðla. Svæðið nýtur jafnframt mikillar nálægðar við náttúru, leiksvæði og skóla.

Arion banki og Vörður opnuðu nýtt útibú í þjónustukjarna á Aðaltorgi í Reykjanesbæ. Núverandi starfsemi Varðar í Krossmó...
10/07/2026

Arion banki og Vörður opnuðu nýtt útibú í þjónustukjarna á Aðaltorgi í Reykjanesbæ. Núverandi starfsemi Varðar í Krossmóa flutti í sameiginlegt húsnæði með Arion banka sem stendur við Aðalgötu 64. Aðgengi við Aðaltorg er einstaklega gott beint frá Reykjanesbraut og næg bílastæði eru fyrir utan útibúið.

Litaval í rýminu er sótt í liti vörumerkisins sem falla vel að hnotuviði. Loft og gólf eru samræmd um allt húsið, með örlitlum blæbrigðamun á litum. Rýmið er hlýlegt og aðlagandi og er hannað þannig að það taki vel á móti gestum.

Stapalaug er staðsett á efri hæð Íþróttahús Njarðvíkinga. Laugin er ætluð til kennslu og æfinga ásamt því að vera opin a...
09/07/2026

Stapalaug er staðsett á efri hæð Íþróttahús Njarðvíkinga. Laugin er ætluð til kennslu og æfinga ásamt því að vera opin almenning. Útisvæði með tveimur heitum pottum, vaðlaug og köldum potti. Einnig er þurrgufa og innfrarauður klefi með sturtuaðstöðu.

Aðalbros í Keflavík er sameiginleg tannlæknastofa tíu tannlækna auk tannsmiðs. Stofan er L-laga og umlykur aflokaðan þak...
01/07/2026

Aðalbros í Keflavík er sameiginleg tannlæknastofa tíu tannlækna auk tannsmiðs. Stofan er L-laga og umlykur aflokaðan þakgarð sem nýtist til hvíldar og samveru, auk þess að hleypa birtu inn í rýmin. Við hönnunina var lögð áhersla á notalegt og róandi andrúmsloft sem endurspeglast í vönduðu efnisvali, þar sem ljós eik, náttúrusteinn og náttúrulegar hljóðvistarplötur úr trétrefjum í lofti eru í fyrirrúmi. Meðfram ganginum að aðgerðarrýmunum eru háir eikarskápar sem gefa rýminu dýpt og hlýju, ásamt því að tryggja starfsfólkinu ríflegt geymslupláss. Glerrennihurðir á milli skápanna veita aðgengi að stofunum og hleypa dagsbirtu á ganginn.

Urriðaholtsstræti 9-15 er fjölbýlishús sem samanstendur af fjórum 5 hæða byggingum með 20 íbúðum í hverju stigahúsi. Aðk...
23/06/2026

Urriðaholtsstræti 9-15 er fjölbýlishús sem samanstendur af fjórum 5 hæða byggingum með 20 íbúðum í hverju stigahúsi. Aðkoma er að hverjum stigagangi á fyrstu hæð og tengjast byggingarnar jafnframt með hálfniðurgröfnum kjallara. Í kjallaranum eru íbúðir, geymslur, stoðrými, bílageymsla, sameiginleg hjólageymsla og glæsilegt miðrými sem er sameiginlegt fyrir alla íbúa og rekið af sameiginlegu húsfélagi. Miðrýmið býður upp á fjölbreytta aðstöðu, þar á meðal setustofu með eldhúsi, golfhermi, billjarðaðstöðu, fjölnota fundar- og samkomurými ásamt æfingasal.

Ytra útlit bygginganna einkennist af þremur mismunandi brúnum litbrigðum sem falla vel að umhverfi svæðisins. Staðsetningin er einstök, þar sem stutt er í fallegar gönguleiðir, útivistarsvæði og golfvelli. Íbúðirnar henta því einstaklega vel þeim sem vilja njóta nútímalegra þæginda, vandaðrar hönnunar og heilsueflandi lífsstíls í návígi við náttúruna.

Íþróttahús NjarðvíkVið viljum óska Njarðvíkingum til hamingju með fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í nýja íþróttahúsinu þe...
22/05/2026

Íþróttahús Njarðvík

Við viljum óska Njarðvíkingum til hamingju með fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í nýja íþróttahúsinu þeirra.

Address

Vesturvör 7
Reykjavík
200

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Telephone

+3545112060

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when ARKÍS arkitektar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Nearby businesses