Envalys

Directions Website Contact the business

Envalys Umhverfissálfræði er grunnurinn. Skipulagsgerð og rannsóknir eru viðfangsefnið.

Hjá Envalys nýtum við gagnvirka þrívídd til að gera framtíðarumhverfi sýnilegt, rannsaka upplifun og móta hugmyndir í samtali við fólk.

20/10/2026

Hvernig er að aka eftir Sundabraut áður en hún er lögð?

Í þessu myndbandi förum við í ökuferð um þrívíddarlíkan Envalys af Sundabraut, með útfærslu þar sem gert er ráð fyrir hábrú. Síðan skoðum við leiðina úr lofti og sjáum tengsl hennar við byggð og landslag.

Teikningar sýna legu vegar. Upplifun af leiðinni gefur okkur annað sjónarhorn.

Hjá Envalys tengjum við umhverfissálfræði, skipulag, hönnun og gagnvirka þrívídd. Með því viljum við gera fyrirhugaðar breytingar á umhverfinu skiljanlegri og skapa betri grunn fyrir samtal um þær.

Hvað myndir þú vilja skoða nánar á þessari leið?

Líkanið er í vinnslu og byggir á aðgengilegum gögnum í Skipulagsgátt, máli nr. 627/2023. Líkanið og myndbandið eru unnin að frumkvæði Envalys og eru ekki opinber kynning framkvæmdaraðila. Envalys ber eitt ábyrgð á framsetningunni.

Fjölmenni tók þátt í að móta framtíðarsýn gamla bæjarins á SauðárkrókiÞað var ánægjulegt að sjá þátttökuna á fyrsta vinn...
10/10/2026

Fjölmenni tók þátt í að móta framtíðarsýn gamla bæjarins á Sauðárkróki

Það var ánægjulegt að sjá þátttökuna á fyrsta vinnu- og samráðsfundi vegna deiliskipulags gamla bæjarins. Hannes og Páll kynntu rammahugmynd skipulagsins sem hugsuð er sem útgangspunktur skipulagsvinnunnar og þrívíddargagnagrunn sem verður nýttur til að sýna þróun tillagna og mögulegar útfærslur meðan á vinnunni stendur.

Við hjá Envalys leggjum áherslu á að samráðið hefjist strax á fyrstu stigum, þegar svigrúm er til að móta forsendur og áherslur. Fundargestir komu hugmyndum sínum og sjónarmiðum á framfæri í umræðum og með svörum við spurningalistum. Við höfum nú unnið úr gögnunum og niðurstöðurnar verða nýttar í áframhaldandi vinnu.

Þarna koma saman lykilþættir í nálgun Envalys: samtal við fólk, kerfisbundin gagnaöflun og þrívídd sem hjálpar okkur að skilja og ræða hvernig umhverfið gæti þróast.

Takk fyrir góðar móttökur og mikilvægt framlag til verkefnisins!

Mörg járn eru í eldinum hjá okkur í Envalys. Alls konar spennandi verkefni út um allt land - og í dag var verkefnið að k...
08/10/2026

Mörg járn eru í eldinum hjá okkur í Envalys. Alls konar spennandi verkefni út um allt land - og í dag var verkefnið að kynna fyrirtækið á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga.

Þetta var í 5. skiptið sem Envalys fær tækifæri að kynna sitt starf og vöru, ásamt því að eiga mörg gagnleg og skemmtileg samtöl við fjölmargt sveitarstjórnarfólk.

Söguleg póstleið lifnar við í 3D!Við hjá Envalys vorum að leggja lokahönd á gríðarlega skemmtilegt verkefni: Að endurska...
30/04/2026

Söguleg póstleið lifnar við í 3D!

Við hjá Envalys vorum að leggja lokahönd á gríðarlega skemmtilegt verkefni: Að endurskapa í gagnvirkri tölvugerðri þrívídd leið gömlu landpóstanna frá Ásbrandsstöðum í Hofsárdal yfir að Víkingavatni í Kelduhverfi.

Þetta verkefni ber hugmyndaauðgi og frumkvæði þeirra Erlu og Haraldar á Ásbrandsstöðum frábært vitni, og það var sönn ánægja að vinna þetta með þeim!

Verkefnið sýnir líka hversu öflug og sveigjanleg 3D tæknin okkar er orðin. Við nýtum hana ekki bara til að sýna framtíðarskipulag og ný mannvirki, heldur líka til að ferðast aftur í tímann og upplifa íslenska sögu á nýjan hátt.

Mynd: Haraldur, Erla, Jón Haraldsson og Hannes

Umhverfissálfræði í Lyklavöldunum. Páll Jakob Líndal og Þórhallur Gunnarsson settust niður og ræddu um þrjú merk svæði í...
04/04/2026

Umhverfissálfræði í Lyklavöldunum.
Páll Jakob Líndal og Þórhallur Gunnarsson settust niður og ræddu um þrjú merk svæði í Reykjavík, þróun þeirra og hvernig þau virka á okkur mannfólkið í sálfræðilegu samhengi.

Þetta er áhugaverð umræða, þar sem saga, menning og umhverfissálfræði fléttast saman - þetta er fróðleikur og skemmtun.

Í fyrsta þættinum tökum við fyrir Ingólfstorg. Af hverju er torgið eins og það er? Hvað segir sálfræðin okkur um hönnun þess, og af hverju flýtir fólk sér yfirleitt í gegnum það?

Við hjá Envalys erum stolt af því að taka þátt í þessari mikilvægu umræðu um borgarskipulag og mannlega líðan.

Hlekkur inn á þáttinn er í hér fyrir neðan.

Lyklavöldin - Þrír sérstakir páskaþættir.
Dr. Páll Jakob Líndal segir okkur frá þróun merkra svæða í Reykjavík.
Í fyrsta þætti tökum við fyrir Ingólfstorg. Páll Jakob rekur sögu svæðisins og leggur líka mat á hvað hafi heppnast eða farið miður í hönnun Ingólfstorgs.
Í þætti tvö ræðum við þróun svæðisins við Hafnartorg og í þriðja þætti verður Vesturbugt (slippsvæðið) til umfjöllunar.
Hægt er að hlusta á þættina á Spotify en ég hvet ykkur líka til að horfa á klakinnstudio.is því við notum töluvert af myndefni.
Hlekkur á 1. þátt er í athugasemd hér fyrir neðan.

Jarðgöng í 3D í fréttum SýnarÍ fréttum Sýnar í gær var umfjöllun um jarðgangakosti á Austurlandi. Þar voru sýnd myndbönd...
18/03/2026

Jarðgöng í 3D í fréttum Sýnar

Í fréttum Sýnar í gær var umfjöllun um jarðgangakosti á Austurlandi. Þar voru sýnd myndbönd af þrívíddarlíkönum sem við hjá Envalys gerðum fyrir Samgöngufélagið til að setja ólíka valkosti í betra samhengi.

Í myndbandinu má sjá ferðalagið um Fjarðarheiðargöng, Fjarðagöng og Slenjudalsgöng. Sjón er sögu ríkari!

Fréttina í heild sinni má sjá í fyrstu athugasemd.

ENVALYS Á UT-MESSUNNIÁ UT-Messunni sem haldin var í Hörpu um helgina bauð Envalys upp á leikinn "Fánaleit" í 3D-líkani s...
08/02/2026

ENVALYS Á UT-MESSUNNI
Á UT-Messunni sem haldin var í Hörpu um helgina bauð Envalys upp á leikinn "Fánaleit" í 3D-líkani sem fyrirtækið er að þróa og nær yfir suðvesturhorn landsins.
Fyrirtækið er að byggja upp gagnvirkt þrívíddarlíkan af höfuðborgarsvæðinu þar sem hægt er að koma fyrir öllum skipulagstillögum stórum sem smáum.

Þetta er framtíðin í framsetningu skipulags svo sanngjörn umræða geti átt sér stað milli ólíkra hagaðila.

16/12/2025
12/12/2025

VILTU UPPLIFA SKUGGAVARP FRAMTÍÐARINNAR?

Skuggavarp og önnur áhrif uppbyggingar sjást illa á teikningum - en þau sjást vel þegar gagnvirkt 3D-líkan er skoðað.

Við hjá Envalys höfum þróað gagnvirka veflausn þar sem þú getur skoðað framtíðina í 3D, kannað ólíkar sviðsmyndir og myndað þér eigin skoðun.

🎥 Sjáðu hugmyndina í myndbandinu
👇 Prófaðu sjálf(ur) - tengill á 3D-líkan í fyrsta kommenti

Ps. Það var einmitt þennan dag, 12. desember, fyrir einu ári sem umræðan um Græna gímaldið við Álfabakka fór á flug.

Address

Safamýri 91
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 09:00 - 19:00
Tuesday 09:00 - 19:00
Wednesday 09:00 - 18:00
Thursday 09:00 - 18:00
Friday 09:00 - 18:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Envalys posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Envalys:

Shortcuts

Share

Nearby businesses