Íslenska Gámafélagið

Íslenska Gámafélagið Við veitum viðskiptavinum okkar alhliða og áreiðanlega umhverfisþjónustu.

Frétt á RÚV um jákvæðar breytingar á Norðurlandi 🍀https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-04-27-aetla-ad-flytja-ut-thusu...
30/04/2026

Frétt á RÚV um jákvæðar breytingar á Norðurlandi 🍀

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-04-27-aetla-ad-flytja-ut-thusundir-tonna-af-sorpi-fra-akureyri-473054?fbclid=IwdGRleARdV15leHRuA2FlbQIxMQBzcnRjBmFwcF9pZAo2NjI4NTY4Mzc5AAEeRSiZHYasbDYlrgCMnb0pg7h0hZvFMMhN0isC07ag63kpSXpdUol_xOd2Cg4_aem_3vLcZqFF-a0eXEJxvNm9Jg

Íslenska gámafélagið ætlar að flytja sorp beint frá Akureyri til Danmerkur þar sem það fer í orkunýtingu. Þetta er nýjung fyrir Norðlendinga og framfararskref, að mati sviðsstjóra Umhverfis- og orkustofnunar.

27/04/2026
Er allt í plokki❓Stóri plokkdagurinn er í dag og hefur verið haldinn árlega frá 2018✅ Við hvetjum almenning, félagasamtö...
26/04/2026

Er allt í plokki❓
Stóri plokkdagurinn er í dag og hefur verið haldinn árlega frá 2018✅
Við hvetjum almenning, félagasamtök, fyrirtæki og sveitarfélög til að taka höndum saman og hreinsa nærumhverfið♻️

Starfsmenn okkar á vegum verkefnisins Atvinna með stuðningi, verða í Landanum á RÚV næstkomandi sunnudag. Við hlökkum ti...
17/04/2026

Starfsmenn okkar á vegum verkefnisins Atvinna með stuðningi, verða í Landanum á RÚV næstkomandi sunnudag. Við hlökkum til að sjá viðtölin við þessa frábæru starfskrafta 🤩
Nánari upplýsingar um verkefnið Atvinna með stuðningi eru í frétt í athugasemd 👇

15/04/2026

Slippurinn Akureyri er viðskiptavinur Íslenska gámafélagsins✅

„Við settum okkur skýr markmið og með skýra sýn að bæta flokkunina og
minnka magnið af blönduðum úrgangi og draga þannig úr kolefnisspori fyrirtækisins“
Ingimundur Norðfjörð Gæða- & Öryggisstjóri.

Gerum þetta saman♻️

Munum að flokka um páskana♻🐥
02/04/2026

Munum að flokka um páskana♻🐥

01/04/2026

Takk fyrir komuna í opnunarveisluna á Akureyri á föstudaginn síðasta👏
Við erum spennt fyrir komandi tímum á Norðurlandi♻

🎥 Axel Þórhallsson - Pedromyndir

Glæsilegt opnunarpartý á Akureyri 🥳Það voru um 1300 manns sem mættu og fögnuðu með Íslenska gámafélaginu á föstudaginn. ...
30/03/2026

Glæsilegt opnunarpartý á Akureyri 🥳

Það voru um 1300 manns sem mættu og fögnuðu með Íslenska gámafélaginu á föstudaginn. Tilefnið var opnun á nýjum starfsstöðvum á Ægisnesi 3 á Akureyri. Ný og glæsileg húsakynni sem munu framvegis vinna sorp frá fyrirtækjum og heimilum á Norðurlandi var breytt í risavaxinn skemmtistað.

Jón Þórir Frantzson forstjóri opnaði veisluna með stuttu ávarpi og Karlakór Akureyrar-Geysir ásamt Lúðrasveit Akureyrar skemmtu gestum. Síðan stigu á svið margir af stærstu listamönnum þjóðarinnar. Þau Birgitta Haukdal, Emmsjé Gauti, Daníel Ágúst, Úlfur Úlfur og Stuðlabandið skemmtu gestum. Rub23 og Bautinn sáu um gómsætar veitingar, fyrir þá sem vildu eina með öllu eins og Norðlendingar eru frægir fyrir þá voru Bæjarins bestu einnig á staðnum.

Íslenska gámafélagið þakkar gestum fyrir komuna og hlakkar til samstarfsins við fyrirtæki á Norðurlandi♻️

📷 Axel Þórhallsson - Pedromyndir

♻️✅
27/03/2026

♻️✅

Íslenska Gámafélagið gekk í hóp aðildarfélaga Festu árið 2024, eftir að hafa kynnst starfi Festu í gegnum Sjálfbærniskólann. Síðan þá hafa þau nýtt sér viðburði og tengslanetið vel.

♻️ Það er mikill styrkur fyrir samfélag Festu að fá Íslenska gámafélagið í hópinn, enda er fyrirtækið í fararbroddi þegar kemur að flokkun úrgangs, eins og sjá mátti í sjónvarpsfréttum RÚV í gær.

👇Hlekkur á frétt RÚV í fyrstu athugasemd þar sem sjá má Róbert, Sæmund og Sebastian flokka á fullu 👏

Address

Kalkslétta 1
Reykjavík
162

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

+3545775757

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Íslenska Gámafélagið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share