26/09/2026
Hagnýting gervigreindar í rekstri
Hvernig geta fyrirtæki best hagnýtt gervigreind í rekstri — og hvaða tækifæri og áskoranir fylgja innleiðingu hennar?
Reykjavík Fintech boðar til fyrsta fundar gervigreindarhóps Reykjavík Fintech miðvikudaginn 7. október kl. 17:00 í Fantasíu, viðburðasal Vinnustofu Kjarvals.
Hanna Kristín Skaftadóttir, dósent og formaður gervigreindarhópsins, stýrir viðburðinum og fjallar um netöryggi og skammtatölvur.
Einnig verða með erindi:
🔹 Anna Garðarsdóttir, gervigreindarráðgjafi – Stefnumótun um gervigreind í óvissu
🔹 Jón Atli Tómasson, deildarstjóri hjá Íslandsbanka – Gervigreind og sjálfvirkni í Íslandsbanka
🔹 Áslaug Björgvinsdóttir, lögmaður og meðeigandi LOGOS – Notkun gervigreindartóla; mat á lagalegum áhættum
Að erindum loknum verður efnt til hringborðsumræðna um áskoranir og tækifæri við hagnýtingu gervigreindar.
📅 Miðvikudagur 7. október
⏰ Húsið opnar kl. 16:45 — dagskrá hefst kl. 17:00
📍 Fantasía, Vinnustofa Kjarvals, Austurstræti
(gengið inn hægra megin við aðalinngang Kjarvals)
☕ Léttar veitingar í boði
Viðburðurinn er opinn öllum, en skráning er nauðsynleg.
👉 Skráning:
https://www.reykjavikfintech.is/event-info/hagnyting-gervigreindar-i-rekstri
Facebook-viðburður:
https://www.facebook.com/events/1811135153563083
LinkedIn færsla um viðburðinn:
https://www.linkedin.com/posts/reykjavik-fintech-cluster_reykjavikfintech-gervigreind-ai-activity-7509636726525612033-PdrT