Ólafur Gíslason & Co hf.

Call Directions Website Contact the business

Ólafur Gíslason & Co hf. Eldvarnarmiðstöðin
Heimasíða: www.oger.is - Vefverslun: www.oger.is/is/vefverslun
s. 568 4800 - Sunda Fyrirtækið Ólafur Gíslason & Co. Landsvirkjun. a.

hf. 500269-3759 var stofnað 15. september 1923 sem innflutnings- og útflutningsverslun af Ólafi Ág. Gíslasyni. Þremur árum síðar gerðust Einar Pétursson og Tómas Pétursson meðeigendur að fyrirtækinu og var því þá breytt í hlutafélag. Fyrst var fyrirtækið til húsa í Hafnarstræti en flutti síðan í Ingólfsstræti. Til margra ára var fyrirtækið til húsa að Sundaborg 3 en í dag er fyritækið til húsa í Sundaborg 7 104 Reykjavík.

Í byrjun beindist verslun einkum að innflutningi á kolum, kaffi, salti og sementi. Kol voru flutt inn í heilum förmum og var mikill handagangur í öskjunni þegar 3 fulllestuð skip voru hér samtímis að losa kol fyrir fyrirtækið. Til gamans má geta að Ó.G.& Co.h.f. voru þeir fyrstu hér á landi til að flytja inn kaffi beint frá Brasilíu. Einnig voru flutt inn veiðafæri, nætur, netagarn og fleira mætti upp telja.

Útflutningur var aðallega í fullverkuðum og blautverkuðum fiski og má nefna að talvert af rjómabúsmjöri (Danish butter frá Baugsstaðabúinu) var einnig útflutningsvara fyrirtækisins. En tímarnir breytast og mennirnir með og þar af leiðandi þróaðist innflutningur Ó.G. & Co.h.f. á aðrar brautir og útflutningur tók stefnu á að selja fiskimjöl og lýsi en þeirri starfsemi var hætt síðla 1986 og er ekki lengur fengist við útflutning.

Árið 1963 gerði fyrirtækið samning við Norsk Sprengstoff AS (í dag Orica Mining) og gerðust umboðsmenn þeirra á Íslandi í sölu sprengiefna og skyldra hluta. Um árabil gekkst fyrirtækið einnig fyrir námskeiðahaldi fyrir verðandi sprengimenn og voru þau námskeið vel sótt. Enn er fengist við sölu á sprengiefnum og hafa starfmenn fyrirtækisins aflað sér mikillar þekkingar á málum sem viðkoma sprengingum hvort sem er á landi eða neðansjávar og reglum þeim sem lúta að meðhöndlun og innflutningi sprengiefnis. Um alllangt skeið fluttum við inn spónaplötur sem nefndust Orkla og voru frá fyrirtækinu Norsk Skogindustri AS í Noregi. Um skeið voru þetta einu og helstu spónaplöturnar sem allir framleiðendur og byggingavöruverslanir og markaðir voru með. Frá Moelven AS í Noregi voru flutt inn timburhús og sumarhús m.a. vegna Vestmannaeyjagossins. Frá sama fyrirtæki voru einnig flutt inn vinnuhús fyrir m.a. Umboðsaðilar fyrir skipa og bátavélar af gerðinni MAN vorum við um allangt skeið en varðskipin okkar Ægir og Týr eru búnir þessum vélum. Eins voru það hafrannsóknarskipin Bjarni Sæmundsson og Árni Friðriksson að ógleymdum tugum skuttogara sem byggðir voru á Spáni og öðrum þýskbyggðum fiskiskipum. Frá Kanada voru fluttir inn snjóbílar af gerðinni Flextrack en flestir þeirra fóru til Landsvirkjunar. Fyrirtækið flutti um skeið inn fiskeldisfóður og búnað frá A.B. Ewos í Svíþjóð eða þar til að framleiðsla hófst hérlendis á Ewos fóðri. Af öðrum vörum sem fluttar hafa verið inn og seldar má nefna Avery, Salter og Soehnle vogir, jaft iðnaðarvogir, bílavogir sem og nákvæmnisvogir. Nefna má að Avery vogir voru hér um land allt í öllum frystihúsum sem borðvogir sem margir kannast við. Eins voru Avery bílavogir á nærri hverri einustu höfn þar sem á annað borð var bílavog. Gömlu Avery rennilóðavogirnar sem notaðar voru við vigtun t.d. á kartöflum ofl. muna margir eftir. Russel Hobbs raftæki sem allir þekkja og þá sérstaklega hraðsuðukatlana þessa með rauða hnappinum. Fleiri gerðir raftækja voru fluttar in eins og Domeyer hrærivélar, Severin og Morphy Richards raftæki. Shannon skrifstofuskápar, Chubb og Angus slökkvibúnaður ásamt ýmsum öðrum eldvarnabúnaði. Spalding golfsett, Harrington riflar og Hardy veiðistangir voru frístundavörur sem fluttar voru inn um alllangt skeið. Við vorum brautryðjendur í sölu á sólarrafhlöðum fyrir sumarhús og kom sá búnaður frá fyrirtæki sem nefndist Progas í Noregi. Í upphafi höfðu menn litla tiltrú á þessum búnaði en það breyttist fljótt.

Í dag er fyrirtækið enn með viðskiptasambönd við Orica Mining (Dyno Nobel) og flytur inn sprengiefni og búnað til notkunar við sprengingar. Einnig er hafin framleiðsla á sprengiefnum úr sérstökum blöndunar og hleðslubifreiðum til dælingar beint í sprengiholur við pallsprengingar og eins við jarðgangagerð. Það fyrirkomulag dregur úr flutningi sprengiefna á þjóðvegum. Skúffu-og skjalskápa ásamt fylgihlutum erum við með frá TBS (Triumph) í Bretlandi og Silverline einnig í Bretlandi. Pokasaumavélar og saumagarn frá Frakklandi höfum við verið með. Þessar saumavélar hafa aðallega verið notaðar við að sauma sláturkeppi.

Árið 1974 keypti Ó.G.& Co.h.f. fyrirtækið Eldvarnamiðstöðina en það fyrirtæki þjónustar slökkviliðin í landinu og flytur einnig inn almennan eldvarnabúnað. Starfsemin hefur farið vaxandi með hverju árinu sem líður. Meðal vörutegunda eru slökkvitæki, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, undankomuljós, viðvörunarkerfi, vatnsúðakerfi, fellistigar ofl. Þekkt vörumerki má nefna eins og Jockel, Total, Lifeco, Ningbo, Saval, NoHa, Gras, Starkin, Modum, Ardenoak, Ajax, EI, Firex, Garvan, Smoke Gard, Parat, Ascoa, Grinnel ofl. Sérstaklega fyrir slökkviliðin erum við með hlífðarfatnað, eiturefnafatnað, brunaslöngur, úðastúta, hraðtengi, brunadælur, björgunartæki, spilliefnabúnað og margt margt fleira sem of langt mál væri upp að telja. Kappkostað hefur verið að þjóna slökkviliðunum með nánast allan þann búnað sem slökkvilið þarfnast. Mörg þekkt vörumerki má nefna eins og Albatros, Weenas, Holmatro, Peli, Mandals, Rosenbauer, ISS-Wawrzaszek, Trelleborg, Unifire, Protek, Akron Brass, Elkhart Brass, TFT, Multifire, Walraf, Feuer Vogel, AWG, Scott, Darley, Waterous, Tohatsu ofl.

Árið 1991 byrjaði fyrirtækið síðan að selja slökkvibifreiðar sem eru innréttaðar og yfirbyggðar hjá Rosenbauer AS í Noregi. Fyrirtækið varð m. hlutskarpast þegar útboð voru opnuð af Eignarhaldsfélagi Brunabótafélagsins og Sambandi sveitarfélaga um kaup á slökkvibílum fyrir hin ýmsu sveitarfélög. Eins í útboði Ríkiskaupa á flugvallaslökkvibifreiðum fyrir Flugmálastjórn. Árið 2003 var komið á viðskiptasambandi við ISS-Wawrzaszek í Póllandi og hafa verið innréttaðar og yfirbyggðar slökkvibifreiðar á okkar vegum þar. Fyrstu bifreiðarnar fóru til Brunavarna Árnessýslu. Í dag eru slökkvibifreiðar frá fyrirtækinu í öllum landsfjórðungum. Frá fyrirtækinu Profile Vehicles í Finnlandi hafa verið fluttar inn sjúkrabifreiðar fyrir Rauða kross Íslands ásamt ýmsum öðrum búnaði fyrir sjúkralið. Búnaðurinn er frá PSP í Kanada og Rapid Deployment í Bandaríkjunum.

Árið 1997 var samvinnufélagið Rafborg keypt og breytt í einkahlutafélag. Það fyrirtæki er einnig að Sundaborg 7 og flytur inn og dreifir eingöngu rafhlöðum af öllum gerðum. Rafborg var stofnað 1967 og var alla tíð að Rauðarárstíg 1 áður en flutt var í Sundaborgina. Helstu vörumerkin eru Panasonic, Pairdeer, PKCell, BigBat og ZLPower.

Árið 2003 voru keypt hlutabréf í Albatros International AS í Danmörku en það fyrirtæki hefur um langt árabil framleitt fyrir m.a. okkur hlífðarfatnað á slökkviliðsmenn. Okkar væntingar og óskir eru þær að fyrirtækið megi vaxa og dafna á nýrri öld, eins og það hefur gert á þeirri sem liðinn er og að það fái að njóta starfskrafta góðra og samviskusamra starfsmanna en fyrirtækið hefur átt því láni að fagna að hafa góða starfsmenn sem hafa öðlast háan starfsaldur og skilað góðu starfi í þágu fyrirtækisins. Án þeirra hefði fyrirtækið ekki náð þessum háa aldri. Stjórnarformaður er Sigurveig Kristjánsdóttir og núverandi framkvæmdarstjóri er Dagný Guðmundsdóttir sem tók við framkvæmdastjórn árið 2020..

29/10/2026
🔥 Öryggi má líka vera fallegt!Hver segir að eldvarnabúnaður þurfi að vera falinn inni í skáp? 🏡Falleg og stílhrein eldva...
27/10/2026

🔥 Öryggi má líka vera fallegt!

Hver segir að eldvarnabúnaður þurfi að vera falinn inni í skáp? 🏡

Falleg og stílhrein eldvarnateppi sem falla vel að heimilinu – og eru innan seilingar þegar á reynir.

✨ Fallegt heimili. Öruggara heimili.

👉 Skoðaðu úrvalið hér:
https://eldvarnamidstodin.is/collections/eldvararteppi

🚒 Nýtt á l***r – þjálfunardúkkur fyrir raunhæfar æfingarVið eigum nú vandaðar og sterkbyggðar þjálfunardúkkur fyrir slök...
09/10/2026

🚒 Nýtt á l***r – þjálfunardúkkur fyrir raunhæfar æfingar

Við eigum nú vandaðar og sterkbyggðar þjálfunardúkkur fyrir slökkvilið, björgunarsveitir og aðra viðbragðsaðila.

Dúkkurnar eru framleiddar úr slitsterku nælonefni, með styrktum saumum og hólfum sem auðvelda jafna dreifingu fyllingar. Þær koma ófylltar og því má stilla þyngdina eftir þörfum og tegund æfingar.

✅ Fullorðinsdúkka – um 180 cm
✅ Barnadúkka – um 70 cm
✅ Henta fyrir björgunar-, reykköfunar- og rýmingaræfingar
✅ Hægt að nota við æfingar með hitamyndavél
✅ Sterkbyggðar fyrir krefjandi og endurtekna notkun

👉 Skoðaðu úrvalið á https://eldvarnamidstodin.is/products/training-doll-kevin-adult-180cm

MAST K5 er öflug 230 V dæla sem hentar vel við vatnstjón, flóð, kjallara og önnur dæluverkefni. Hún dælir allt að 330 lí...
08/10/2026

MAST K5 er öflug 230 V dæla sem hentar vel við vatnstjón, flóð, kjallara og önnur dæluverkefni. Hún dælir allt að 330 lítrum á mínútu og er aðeins 6 kg, sem gerir hana auðvelda í flutningi og meðhöndlun.

Settið kemur tilbúið til notkunar með:
- MAST K5 dælu
- 10 m slöngu með tengjum
- 5 m kaðli
- Geymslu-/flutningskassa

K5 er með ryðfríu mótorhúsi, mótor- og hitavörn og er viðhaldsfrí. Með því að fjarlægja botnsíuna getur hún einnig dælt vatni niður í mjög lága vatnshæð.

Afköst: 330 l/mín.
Hámarkslyftihæð: 11 m
Afl: 810 W
Spenna: 230 V
Þyngd: 6 kg
https://eldvarnamidstodin.is/products/mast-k5-daelusett-m-slongu-tengi?_pos=1&_sid=26622eb26&_ss=r

Svo fallegir lampar !!
05/10/2026

Svo fallegir lampar !!

Ljós sem opnast eins og bók!

Fallegur og óvenjulegur **bókalampi** sem breytist í glæsilegt ljós þegar hann er opnaður. Lampann má opna á mismunandi vegu og stilla upp eftir því hvaða útlit þú vilt.

🤍 **Hlý eða köld birta**
🌳 Fæst í **ljósri og dökkri viðaráferð**
🔋 Endurhlaðanleg 4000 mAh rafhlaða
🔌 USB-C hleðsla
⏱️ Allt að 12–13 klst. notkun
💡 Fallegur sem borðlampi, stemningsljós eða skraut

Frábær **gjafahugmynd** fyrir þann sem á allt – og skemmtileg hönnunarvara sem vekur athygli. 🎁

👉 Skoðaðu bókalampana í vefversluninni okkar. https://rafborg.is/collections/lampar-handljos-og-luktir

Eldvarnarteppi fyrir bíla – einföld lausn þegar eldur kemur upp**Britshell bílateppið** er hannað til að breiða yfir bre...
02/10/2026

Eldvarnarteppi fyrir bíla – einföld lausn þegar eldur kemur upp

**Britshell bílateppið** er hannað til að breiða yfir brennandi ökutæki og hjálpa til við að **einangra eldinn, draga úr útbreiðslu hans og verja umhverfið í kring**.

Teppið getur verið sérstaklega gagnlegt þar sem ökutæki eru þétt saman, t.d. í **bílageymslum, ferjum, verkstæðum og öðrum lokuðum rýmum**.

👉 Hafðu samband við okkur fyrir nánari upplýsingar um Britshell bílateppið. í síma 5684800

https://eldvarnamidstodin.is/collections/stor-slokkviteppi-a-bila

18/09/2026
🔥 Einn mikilvægasti öryggisbúnaðurinn í eldhúsinuEldvarnarteppi getur skipt sköpum þegar eldur kviknar. Það er einfalt í...
13/09/2026

🔥 Einn mikilvægasti öryggisbúnaðurinn í eldhúsinu

Eldvarnarteppi getur skipt sköpum þegar eldur kviknar. Það er einfalt í notkun og hentar vel til að kæfa lítinn eld á byrjunarstigi, til dæmis í potti eða á eldavél.

Eldvarnarteppin okkar sameina öryggi og fallega hönnun. Þau fást í mörgum litum og útfærslum og því er auðvelt að hafa þau sýnileg og innan seilingar þegar á þarf að halda.

✓ Leiðbeiningar á íslensku á bakhliðinni
✓ Einföld og fljótleg í notkun
✓ Falleg hönnun sem passar inn á heimilið
✓ Verð frá 4.990 kr.

Ekki geyma eldvarnarteppið ofan í skúffu – hafðu það sýnilegt og aðgengilegt.

Skoðaðu úrvalið hér 👇
https://eldvarnamidstodin.is/collections/eldvararteppi

Address

Sundaborg 7
Reykjavík
104

Opening Hours

Monday 08:00 - 17:00
Tuesday 08:00 - 17:00
Wednesday 08:00 - 17:00
Thursday 08:00 - 17:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

+3545684800

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ólafur Gíslason & Co hf. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Ólafur Gíslason & Co hf.:

Shortcuts

Share

Nearby businesses