Íslandsstofa

Call Directions Website

Íslandsstofa Íslandsstofa: Áfangastaðurinn, Útflutningur, Erlendar fjárfestingar http://www.islandsstofa.is/um-islandsstofu

Treble Technologies hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026 sem veitt voru á Nýsköpunarþingi í Grósku í gær. Hanna Katrín ...
30/10/2026

Treble Technologies hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026 sem veitt voru á Nýsköpunarþingi í Grósku í gær. Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, afhenti verðlaunin.

Á Nýsköpunarþingi er fjallað um þróun og tækifæri í íslensku nýsköpunarumhverfi og Nýsköpunarverðlaun Íslands afhent. RANNÍS, Íslandsstofa, Hugverkastofan og Nýsköpunarsjóðurinn Kría standa að þinginu.

Treble Technologies hefur þróað hljóðhermunartækni sem endurskapar raunverulegar hljóðaðstæður í sýndarumhverfi og nýtist meðal annars við hönnun bygginga og hljóðbúnaðar, sem og þróun gervigreindar og tækja sem þurfa að geta skynjað og túlkað hljóð.

Við óskum Treble Technologies innilega til hamingju með verðlaunin.

Lesa meira um verðlaunahafann og rökstuðning dómnefndar:

Fyrirtækið Treble Technologies hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026 sem veitt voru á Nýsköpunarþingi í Grósku í gær. Fyrirtækið hefur þróað hljóðhermunartækni sem endurskapar raunverulegar hljóðaðstæður í sýndarumhverfi og nýtist meðal annars við hönnun bygginga og ...

29/10/2026

Ný herferð fyrir áfangastaðinn Ísland er komin í loftið. Herferðin gengur undir nafninu AI Knittakers (Authentic Icelandic Knittakers) og beinir sjónum að sítengdri fundamenningu nútímans og auknum kröfum um afköst á tímum gervigreindar. Ísland býður fram prjónara sem leysa fólk af á fjarfundum svo það geti nýtt tímann í eitthvað annað – til dæmis komið til Íslands.

Um er að ræða alvöru þjónustu þar sem íslenskir prjónarar víðs vegar að af landinu sækja fundi úr sinni heimabyggð. Ólíkt hefðbundnum gervigreindarriturum (e. AI notetakers), sem skrá niður það sem sagt er, lesa prjónararnir salinn, taka eftir þögnum, viðbrögðum og ágreiningi og prjóna úr íslenskri ull eitt orð sem fangar inntak fundarins.

Meginskilaboðin eru einföld: tímanum gæti verið betur varið en á óþörfum fundum – og kannski hvergi betur en í fríi á Íslandi.

Markmið herferðarinnar er að kynna Ísland sem vellíðunaráfangastað á helstu mörkuðum íslenskrar ferðaþjónustu. Íslandsstofa leiðir framkvæmdina í samstarfi við stjórnvöld og íslenska ferðaþjónustu, en herferðin er unnin í samstarfi við Peel auglýsingastofa.

Þjónustan er ókeypis á lykilmörkuðum í gegnum AIKnittaker.com frá 29. október til 20. nóvember.

Kynntu þér herferðina á vef Íslandsstofu: https://www.islandsstofa.is/frettir/islenskir-prjonarar-leysa-gervigreind-af-holmi

Fimm kínverskir áhrifavaldar og s*x fulltrúar fjölmiðla heimsækja Ísland þessa dagana í tilefni af nýrri flugleið Air Ch...
28/10/2026

Fimm kínverskir áhrifavaldar og s*x fulltrúar fjölmiðla heimsækja Ísland þessa dagana í tilefni af nýrri flugleið Air China milli Peking og Keflavíkur, með viðkomu í Kaupmannahöfn. Meðal fjölmiðla sem eiga fulltrúa í ferðinni eru Huanqiu.com, China Newsweek og The Beijing News.

Air China hóf áætlunarflug til Íslands 26. október og verður flogið þrisvar í viku yfir vetrartímann.

Íslandsstofa skipulagði fjögurra daga heimsóknina í samstarfi við Air China, Isavia og þrjár markaðsstofur landshlutanna - Markaðsstofa Reykjaness - Áfangastaðastofa Reykjaness, Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins og Markaðsstofa Suðurlands. Á dagskránni eru meðal annars kynningar á íslenskum fyrirtækjum, jarðvarmatengdri vellíðunarferðaþjónustu og íslenskri matarmenningu, auk ferða um Reykjanes og Gullna hringinn.

Markmiðið er að kynna fjölbreytt framboð íslenskrar ferðaþjónustu og auka sýnileika Íslands á kínverska markaðnum.

Nýja flugleiðin hefur þegar vakið athygli í kínverskum fjölmiðlum. Kínverska ríkissjónvarpið CCTV fjallaði meðal annars um fyrsta flug Air China til Íslands og var Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, meðal viðmælenda í umfjölluninni.

Nánar um heimsóknina og nýju flugleiðina á vef Íslandsstofu: https://www.islandsstofa.is/frettir/kinverskir-ahrifavaldar-og-fjolmi%C3%B0lar-heims%C3%A6kja-island

Mynd: Isavia

Fimm kínverskir áhrifavaldar og s*x fulltrúar fjölmiðla heimsækja Ísland dagana 26.–29. október í tilefni af nýrri flugleið Air China milli Peking og Keflavíkur. Meðal fjölmiðla sem eiga fulltrúa í ferðinni eru Huanqiu.com, China Newsweek og The Beijing News. Nýja flugleiðin he...

Níu íslensk sjávarútvegsfyrirtæki taka þátt í China Fisheries & Seafood Expo (CFSE) í Qingdao í Kína, sem hófst í dag, 2...
28/10/2026

Níu íslensk sjávarútvegsfyrirtæki taka þátt í China Fisheries & Seafood Expo (CFSE) í Qingdao í Kína, sem hófst í dag, 28. október, og stendur til 30. október. Þar af eru s*x fyrirtæki á sameiginlegu sýningarsvæði Íslands. Sýningin er einn stærsti alþjóðlegi viðskiptavettvangur sjávarútvegs og fiskeldis og mikilvægur vettvangur til að efla viðskiptatengsl og skapa ný tækifæri fyrir íslenskar sjávarafurðir á kínverskum markaði.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra heimsótti íslenska sýningarsvæðið og fyrirtækin sem þar taka þátt. Í kvöld býður ráðherra til móttöku fyrir íslensk fyrirtæki og kínverska samstarfsaðila þeirra.

Samhliða sýningunni stendur Íslandsstofa fyrir markaðs- og fyrirtækjaheimsóknum í Qingdao og Shanghai með áherslu á að efla tengsl við kaupendur og samstarfsaðila og auka þekkingu á kínverskum markaði.

Lesa nánar á vef Íslandsstofu: https://www.islandsstofa.is/frettir/islensk-sjavarutvegsfyrirtaeki-saekja-fram-a-kinamarkadi

Ráðstefnan Arctic Investments 2026 fer fram í Royal Institution í London fimmtudaginn 5. nóvember. Arion banki og BBA//F...
21/10/2026

Ráðstefnan Arctic Investments 2026 fer fram í Royal Institution í London fimmtudaginn 5. nóvember. Arion banki og BBA//Fjeldco standa að viðburðinum í samstarfi við Íslandsstofu.

Á ráðstefnunni koma saman alþjóðlegir fjárfestar, fjármálastofnanir og fyrirtæki til að ræða fjárfestingartækifæri og uppbyggingu á norðurslóðum, meðal annars á sviði orku, innviða og gagnavera.

Meðal þátttakenda eru fulltrúar frá Íslandi, Færeyjum, Kanada og Grænlandi og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flytur lokaávarp.

Skráning er opin og nánari upplýsingar og dagskrá má finna hér:
https://www.arctic-investments.is/

Í Bangkok í Taílandi fór í dag fram vinnustofa þar sem s*x íslensk ferðaþjónustufyrirtæki funduðu með tæplega 50 fulltrú...
20/10/2026

Í Bangkok í Taílandi fór í dag fram vinnustofa þar sem s*x íslensk ferðaþjónustufyrirtæki funduðu með tæplega 50 fulltrúum þarlendra ferðaþjónustufyrirtækja. Markmiðið var að kynna íslenska ferðaþjónustu, styrkja viðskiptatengsl og skapa ný tækifæri á markaði þar sem vaxandi millistétt hefur aukinn áhuga á ferðalögum erlendis.

Íslandsstofa skipulagði vinnustofuna í samstarfi við Sky Pacific Air Services, umboðsaðila Icelandair í Taílandi. Hún var haldin í tengslum við þátttöku íslensku fyrirtækjanna á ITB Asia í Singapúr, sem hefst á morgun.

Lesa meira: https://www.islandsstofa.is/frettir/ny-taekifæri-fyrir-islenska-ferdatjonustu-i-tailandi

Fjögur íslensk fyrirtæki, COWI, EFLA, Landsvirkjun og Verkís Verkfræðistofa, taka þátt í HYDRO 2026 í Bologna á Ítalíu d...
16/10/2026

Fjögur íslensk fyrirtæki, COWI, EFLA, Landsvirkjun og Verkís Verkfræðistofa, taka þátt í HYDRO 2026 í Bologna á Ítalíu dagana 14.–16. október, einni helstu alþjóðlegu ráðstefnu og sýningu vatnsaflsgeirans.

Íslandsstofa skipuleggur þátttökuna á sameiginlegum bás Íslands þar sem fyrirtækin kynna íslenska sérþekkingu, efla alþjóðleg viðskiptatengsl og skapa ný tækifæri til samstarfs.

Ísland býr að áratugareynslu af uppbyggingu og rekstri vatnsaflsvirkjana við krefjandi aðstæður og sú þekking á mikið erindi á alþjóðlegan markað.

Við þökkum fyrirtækjunum fyrir gott samstarf og þátttökuna!

Nánar á vef Íslandsstofu:

Fjögur íslensk fyrirtæki, COWI, EFLA, Landsvirkjun og Verkís, taka þátt í HYDRO 2026 í Bologna á Ítalíu dagana 14.–16. október, einni helstu alþjóðlegu ráðstefnu og sýningu vatnsaflsgeirans. Íslandsstofa skipuleggur þátttökuna á sameiginlegum bás Íslands þar sem fyrirtæk...

Fimm íslensk ferðaþjónustufyrirtæki taka um þessar mundir þátt í TTG Travel Experience í Rimini á Ítalíu, einni stærstu ...
15/10/2026

Fimm íslensk ferðaþjónustufyrirtæki taka um þessar mundir þátt í TTG Travel Experience í Rimini á Ítalíu, einni stærstu fagsýningu ferðaþjónustunnar þar í landi.

Íslandsstofa skipuleggur þátttökuna undir merkjum Visit Iceland á sameiginlegum sýningarbás Norðurlandanna. Fyrirtækin eru Blue Car Rental, Hey Iceland, Island Tours, Iceland Travel og Icelandair, sem nýta sýninguna til að kynna þjónustu sína og efla tengsl við erlenda ferðaskipuleggjendur og ferðaheildsölur.

Við þökkum fyrirtækjunum fyrir gott samstarf við kynningu á Íslandi á TTG.

Nánar á vef Íslandsstofu: https://www.islandsstofa.is/frettir/islensk-fyrirtaeki-efla-tengsl-a-italiumarkadi

Íslandsstofa og Amerísk-íslenska viðskiptaráðið (AMÍS) standa þessa dagana fyrir viðskiptaferð til Minneapolis í Minneso...
14/10/2026

Íslandsstofa og Amerísk-íslenska viðskiptaráðið (AMÍS) standa þessa dagana fyrir viðskiptaferð til Minneapolis í Minnesota, undir forystu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra.

Markmið ferðarinnar er að efla viðskiptatengsl Íslands og Bandaríkjanna og skapa ný tækifæri til samstarfs. Sendinefndin fundar með leiðandi fyrirtækjum á svæðinu, kynnir sér starfsemi þeirra og fær innsýn í stöðu og horfur í bandarísku efnahagslífi.

Sjá nánar á vef Íslandsstofu: https://www.islandsstofa.is/frettir/utanrikisra%C3%B0herra-leidir-vidskiptasendinefnd-til-bandarikjanna

Utanríkisráðuneytið - utanríkisþjónusta Íslands

Stefnir þú með lækningatæki eða stafræna heilbrigðislausn á Bandaríkjamarkað?Á fimmtudaginn 8. október kl. 9:00–10:00 bý...
06/10/2026

Stefnir þú með lækningatæki eða stafræna heilbrigðislausn á Bandaríkjamarkað?

Á fimmtudaginn 8. október kl. 9:00–10:00 býður Íslandsstofa til málstofu í Grósku um inngöngu fyrirtækja í heilbrigðistækni á Bandaríkjamarkað og helstu skref í því ferli.

Rives Bird, eigandi og framkvæmdastjóri bandaríska fyrirtækisins Rives Consult, fer yfir ferlið frá vöruþróun til klínískrar staðfestingar, leyfisveitinga og markaðssetningar. Einnig verður fjallað um gæðamál, endurgreiðslukerfi, fjármögnun og mótun sölu- og markaðsstefnu.

Málstofan fer fram á ensku á 4. hæð í Grósku.

Skráning og nánari upplýsingar:

Fimmtudaginn 8. október býður Íslandsstofa til málstofu í Grósku um tækifæri og inngöngu á Bandaríkjamarkað fyrir fyrirtæki sem þróa lækningatæki og stafrænar heilbrigðislausnir. Fyrirlesari er Rives Bird, eigandi og framkvæmdastjóri Rives Consult. Rives Consult sérhæfir sig ...

Address

Bjargargata 1
Reykjavík
102

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

5114000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Íslandsstofa posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share