30/10/2026
Það er að verða fullt hjá okkur! 🧡
Á miðvikudaginn ætlum við að kafa ofan í nokkrar spennandi hugmyndir í orkugeiranum og heyra hvað þarf til að láta þær verða að veruleika. Hvernig nýtum við ofurheitan jarðhita? Hvað getum við lært af efnisrannsóknum? Hvernig gengur að hreinsa útblásturinn frá Hellisheiðarvirkjun? (Spoiler: það gengur vel.)
Fólkið sem vinnur að þessum verkefnum segir frá og gefur okkur innsýn í nýsköpun hjá ON.
📍 Bæjarháls 1
🗓️ Miðvikudaginn 4. nóvember kl. 09:00–11:00
☕ Við sjáum um kaffið og léttar veitingar.
Örfá sæti eru laus – komdu og vertu með!
Dagskrá og skráning👇
Orka náttúrunnar (ON) er íslenskt orkufyrirtæki sem framleiðir og selur endurnýjanlega orku úr náttúruauðlindum eins og vatnsafli og jarðhita. ON veitir hreina og sjálfbæra orku til heimila og fyrirtækja um land allt með áherslu á umhverfisvænar lausnir.