Ljósleiðarinn

Directions Website Contact the business

Ljósleiðarinn Ljósleiðarinn byggir upp og rekur stafræna innviði. Við erum tenging á milli fólks, atvinnulífs og tækifæra. Ljósleiðarinn gerir allt mögulegt mögulegt.

Vertu áhyggjulaus með Ljósleiðaranum! Ljósleiðarinn byggir upp og rekur ljósleiðaranet fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. Með þéttu neti ljósleiðaraþráða tryggir Ljósleiðarinn landsmönnum hraðan, öruggan og hnökralausan aðgang að tækifærum framtíðarinnar. Þannig gerum við allt mögulegt mögulegt.

Þjónusta alla leið
Ljósleiðarinn leggur áherslu á skjóta og örugga þjónustu fyrir þig. Við setjum okkur í þín spor með notkun gagna og greininga og finnum þannig bestu lausnina fyrir þig. Gæðasamband fyrir Ísland
Ljósleiðarinn tryggir landsmönnum hraðan, öruggan og hnökralausan aðgang að tækifærum framtíðarinnar með þéttu neti ljósleiðaraþráða. Allt sem við gerum snýst um að efla samfélagið. Með starfsemi okkar aukum við lífsgæði og samkeppnishæfni íslensks samfélags. Ísland er leiðandi í nýtingu ljósleiðara í Evrópu en yfir 100.000 heimili geta nýtt sér þjónustuna. Braut tækifæranna
Ljósleiðarinn margfaldar tækifæri samfélagsins með því að efla menntun, atvinnu, samkeppni og nýsköpun á Íslandi. Með áreiðanlegri tengingu hefur fólk tækifæri til þess að vinna og læra hvar sem er, taka virkan þátt í nútímasamfélagi og upplifa allt það sem heimurinn hefur upp á að bjóða á internetinu. Við horfum fram á veginn,
mótum og uppgötvum tækifæri framtíðarinnar. Þannig styrkir Ljósleiðarinn tengsl á milli fólks, fyrirtækja og samfélaga og opnar heiminn fyrir viðskiptavinum sínum.

„Draumurinn hans var að gifta sig í svarthöfðabúningi.“ Sólveig Friðriksdóttir, verkefnastjóri hjá Ljósleiðaranum, fer s...
22/10/2026

„Draumurinn hans var að gifta sig í svarthöfðabúningi.“

Sólveig Friðriksdóttir, verkefnastjóri hjá Ljósleiðaranum, fer sínar eigin leiðir - hún treystir innsæinu og lætur gleðina ráða för. Brúðkaup hennar árið 2014 var enda nokkuð óhefðbundið: Star Wars-stefið var þeirra brúðarmars og eiginmaðurinn í Svarthöfðabúningi.

Lífsgleðin einkennir Sólveigu í lífi og starfi – þótt hvort tveggja geti auðvitað verið krefjandi.

„Besta ákvörðun sem ég hef tekið“ segir Sólveig um að fara til Ljósleiðarans eftir 24 ár í fjarskiptum. „En það var sannarlega ekki auðvelt. Ég fór bara inn í eitthvað og hafði ekki hugmynd um hvað ég var að fara að gera.“ Það var engin róleg aðlögun heldur þurfti Sólveig að læra hlutina hratt, „nýtt orðfæri um rör og pípur og síminn g*t hringt frá manni á gröfu úti í skurði sem þurfti að fá svar.“

Nýja starfið kom líka í kjölfarið á erfiðu tímabili. Sumarið áður fékk maðurinn hennar hjartaáfall. „Ég hnoðaði hann í gang á stofugólfinu heima hjá mér.“

Núna er Sólveig búin að finna jafnvægi í lífi og starfi. „Maðurinn minn er búinn að jafna sig. Við hlupum til að mynda hálfmaraþon saman nýlega.“ Hún er einnig komin með öryggi í starfið með góðri aðstoð samstarfsfólksins: „Það er búið að taka svo vel utan um mann hérna.“

Bleikur október hjá Orkuveitunni 💗 Bleikar slaufur, bleik föt og byggingar í bleikum ljóma. Í október sýnum við samstöðu...
21/10/2026

Bleikur október hjá Orkuveitunni 💗

Bleikar slaufur, bleik föt og byggingar í bleikum ljóma. Í október sýnum við samstöðu með öllum þeim sem krabbamein snertir og styðjum við baráttuna gegn krabbameinum hjá konum.

Við fengum fulltrúa Krabbameinsfélagsins í heimsókn til að fræða starfsfólk um átak ársins, „Sjáðu þig“. Skilaboðin eru mikilvæg: að þekkja eigin líkama og vera vakandi fyrir breytingum sem gætu verið einkenni krabbameins. Bleika búðin opnaði einnig á Bæjarhálsi og
starfsfólk lagði málefninu lið með kaupum á bleikum varningi.

Þá hafa húsnæði Orkuveitunnar á Bæjarhálsi og Elliðaárstöð verið böðuð bleikum ljóma í skammdeginu. Í dag, á Bleika deginum, bættist starfsfólk fyrirtækja Orkuveitunnar í litadýrðina með bleikum slaufum og fötum.

Þátttaka í Bleikum október snýst þó um meira en að klæðast bleiku og lýsa upp byggingar. Að baki öllu þessu bleika er málefni sem snertir okkur mörg með persónulegum hætti. Bleikur október er áminning um að gefa heilsunni gaum, hlúa hvert að öðru og vera til staðar þegar á reynir.

Takk fyrir komuna og mikilvæga fræðslu, Krabbameinsfélagið, og takk öll sem hafið lagt málefninu lið með okkur. 💗

Við hjá Ljósleiðaranum tökum bleikan október alla leið og í dag, á Bleika daginn, berum við bleiku slaufuna, klæðum okku...
21/10/2026

Við hjá Ljósleiðaranum tökum bleikan október alla leið og í dag, á Bleika daginn, berum við bleiku slaufuna, klæðum okkur bleiku og byrjuðum daginn saman á bleikum morgunmat🎀

Í vikunni opnaði Krabbameinsfélagið Bleiku búðina á Bæjarhálsinum, þar sem hægt var að kaupa bleiku slaufuna og annan bleikan varning til stuðnings málefninu. Krabbameinsfélagið var einnig með mikilvæga fræðslu fyrir starfsfólk okkar um átak þeirra „Sjáðu þig“.

Í október hefur bleiki liturinn lýst upp húsnæði okkar að Bæjarhálsi og í Elliðaárstöð og minnt okkur á það sem raunverulega liggur að baki átakinu. Því bleikur október snýst auðvitað um meira en bleikan morgunmat, bleik föt og bleikan ljóma. Bleikur október minnir okkur á að staldra við og huga að eigin heilsu, þekkja líkama okkar og vera vakandi fyrir breytingum og sýna samstöðu með öllum þeim sem krabbamein snertir💗

⚖ Ljósleiðarinn hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA. Í gær tóku Þuríður Guðnadóttir, framkvæmdastýra Ljósleiðarans, ...
15/10/2026

⚖ Ljósleiðarinn hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA.

Í gær tóku Þuríður Guðnadóttir, framkvæmdastýra Ljósleiðarans, og Harpa Sjöfn Lárusdóttir, mannauðsleiðtogi Ljósleiðarans, við viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar til Ljósleiðarans fyrir að hafa náð markmiðum verkefnisins um jafna kynjaskiptingu í efsta lagi stjórnunar 🩷

Í tilefni viðurkenningarhátíðarinnar í gær mætti starfsfólk Ljósleiðarans með bindi til vinnu og losaði um hnútinn til að vekja athygli á ójöfnum kynjahlutföllum í stjórnunarstöðum og framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi.

Viðurkenningin er mikilvæg staðfesting á þeirri vinnu sem hefur farið fram innan fyrirtækisins en jafnframt hvatning til að halda áfram að vinna markvisst að jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu og tryggja að ólíkar raddir fái að heyrast 🤝

13/10/2026

Hvað var gaman á skalanum 0–10? Svörin fóru HÁTT! 😎⚡️

Nærri 700 háskólanemar mættu til okkar á Orku- og vísindadaginn og kynntust starfsemi fyrirtækja Orkuveitunnar. Við tókum nokkra gesti tali og spurðum hvað þau hefðu lært, hvernig stemningin væri – og hvernig lífið væri án rafmagns, hita og vatnsklósetta. 🚽

Svörin voru fróðleg, fyndin og að mestu leyti heiðarleg. 😉

Við erum stolt af okkar konu!
13/10/2026

Við erum stolt af okkar konu!

⚡ Kynnum Ragnhildi Thorlacius, lögfræðing hjá Orkuveitunni. Hún ber ábyrgð á lögfræðilegum málefnum Ljósleiðarans og er jafnframt ritari stjórnar félagsins. Hún er ný stjórnarkona KÍO og vill styrkja rödd og sýnileika kvenna í orku- og veitumálum og skapa rými og vettvang fyrir konur sem starfa við fjarskiptainnviði, nýsköpun og tækni innan KÍO.

Ragnhildur Kristjana Ásbjörnsdóttir Thorlacius

🇮🇸 Íslandsmeistaramót Ljósleiðarans 2026Þá er komið að aðal móti haust tímabilsins í Counter-Strike!Allt að 16 lið geta ...
30/09/2026

🇮🇸 Íslandsmeistaramót Ljósleiðarans 2026

Þá er komið að aðal móti haust tímabilsins í Counter-Strike!

Allt að 16 lið geta tekið þátt í Swiss undankeppninni, en aðeins 8 lið komast áfram og tryggja sér þátttöku í sjálfu Íslandsmeistaramótinu.

📅 Undankeppni: 20. október - 3. nóvember

⏰ Skráning hefst 7. október kl. 13:00 (hlekkur í athugasemd)

📅 Úrslitakeppni: 5.-21. nóvember

🏆 BO5 Úrslitakvöld, 21. Nóvember í Next Level Gaming

👇 Nánari upplýsingar má finna í athugasemdum

Fagfólk framtíðarinnar í heimsókn! 👏Nemendur úr Tækniskólanum heimsóttu Ljósleiðarann á dögunum og fengu að kynnast tækn...
28/09/2026

Fagfólk framtíðarinnar í heimsókn! 👏

Nemendur úr Tækniskólanum heimsóttu Ljósleiðarann á dögunum og fengu að kynnast tækninni, innviðunum og fólkinu sem heldur Íslandi tengdu.

Það var virkilega gaman að taka á móti þessum áhugasama hópi – enda er hér á ferðinni fagfólk framtíðarinnar sem mun taka þátt í að byggja upp og þróa fjarskiptainnviði landsins. 💜⚡️

Tækniskólinn

Við elskum Vísindavöku! 🧪⚡Vísindavaka fer fram í Laugardalshöll laugardaginn 26. september, kl. 12–17. Þar verða öll fyr...
25/09/2026

Við elskum Vísindavöku! 🧪⚡

Vísindavaka fer fram í Laugardalshöll laugardaginn 26. september, kl. 12–17. Þar verða öll fyrirtæki Orkuveitunnar með skemmtilega og fræðandi bása.

Okkur finnst fátt skemmtilegra en að vekja áhuga nýrra kynslóða á orku, veitukerfum, nýsköpun og vísindum – eins og sést vel á þessum myndum frá því í fyrra. 💡

Komið við hjá okkur, spyrjið spurninga og gerið tilraunir með okkur!

24/09/2026

Ljósleiðarinn tók á móti ríflega 600 háskólanemum á Orku- og vísindadegi Orkuveitunnar í síðustu viku. Þar fengu nemendurnir að kynnast fjölbreyttri starfsemi Ljósleiðarans og annarra fyrirtækja Orkuveitunnar.
Það er alltaf jafn gaman og mikilvægt fyrir okkur að halda þennan dag til þess að fá tækifæri til að kynna vinnustaðinn okkar og hitta áhugsama nemendur - og mögulega framtíðar starfsfólk 🤝

Takk fyrir frábæran dag og öll skemmtilegu samtölin!⚡️

Address

Bæjarháls 1
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:30
Tuesday 08:00 - 16:30
Wednesday 08:00 - 16:30
Thursday 08:00 - 16:30
Friday 08:00 - 16:30

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ljósleiðarinn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Ljósleiðarinn:

Shortcuts

Share

Nearby businesses