Fúnksjón vefráðgjöf

Fúnksjón vefráðgjöf Fúnksjón er ráðgjöf Sigurjóns Ólafssonar, ég aðstoða fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og sveitarfélög í stafrænni umbreytingu og stafrænum verkefnum.

Fúnksjón er vefráðgjöf Sigurjóns Ólafssonar. Ég aðstoða fyrirtæki og stofnanir við að gera betri og einfaldari vefi.

Fjórði vefurinn sem ég kynni til sögunnar í dag er vefur Mímis sem var opnaður með viðhöfn í gær. Um leið kynnti Mímir g...
26/03/2026

Fjórði vefurinn sem ég kynni til sögunnar í dag er vefur Mímis sem var opnaður með viðhöfn í gær. Um leið kynnti Mímir glæsilega nýja ásýnd sem Metall Design Studio á heiðurinn af í þéttu samstarfi við metnaðarfullt starfsfólk Mímis. Avista forritaði og setti upp vefinn af alkunnri snilld. Nánar um þetta verkefni í verkefnasögu síðar. Til hamingju Mímir!

Mímir hefur tekið stórt skref fram á við með nýrri ásýnd og endurnýjuðum vef. Um er að ræða heildræna endurmörkun sem byggir á nýju merki, ferskri hönnun og skýrari upplifun fyrir notendur.

Þriðji vefurinn sem ég kynni til sögunnar i dag er nýr vefur Garðabæjar. Þetta er virkilega fallegur vefur, einfaldur, s...
26/03/2026

Þriðji vefurinn sem ég kynni til sögunnar i dag er nýr vefur Garðabæjar. Þetta er virkilega fallegur vefur, einfaldur, skýr og gagnlegur. Ég hef unnið með frábæru teymi bæjarins og vefurinn byggir á ítarlegri greiningarvinnu. Hugsmiðjan hannaði og forritaði vefinn af mikilli fagmennsku. Þetta er metnaðarfullur vefur sem ég hlakka til að segja nánar frá í verkefnasögu á vefnum mínum (þegar færi gefst) og margt í pípunum á næstu vikum / mánuðum í stafrænni þjónustu Garðabæjar. Til hamingju með nýjan vef á 50 ára afmæli ykkar!

Ný vefsíða Garðabæjar hefur verið tekin í gagnið. Vefurinn fór í loftið þann 24. mars og mun gegna lykilhlutverki í upplýsingagjöf og þjónustu við íbúa. Nýi vefurinn opnar í tilefni af 50 ára afmæli bæjarins.

Í lok síðasta árs leit dagsins ljós nýr vefur Félags íslenskra náttúrufræðinga. Fúnksjón aðstoðaði teymi FÍN í greininga...
26/03/2026

Í lok síðasta árs leit dagsins ljós nýr vefur Félags íslenskra náttúrufræðinga. Fúnksjón aðstoðaði teymi FÍN í greiningarvinnu, skipulags á vefnum, aðstoð við efnisvinnu og þjálfun gervigreindarspjallmennis sem Avista á veg og vanda að. Stefna Hugbúnaðarhús á veg og vanda að hönnun og uppsetningu vefsins. Set hér hlekk í frétt um hana Lóu sem byggir sína þekkingu alfarið á þeim gögnum sem er að finna á vef FÍN. Til hamingju með nýjan vef og Lóu!

Hjá FÍN hefur tekið til starfa nýr „starfskraftur“ en það er spjallmennið Lóa. Hún hefur síðustu vikur gengið í gegnum stranga þjálfun hér innanhúss en Lóa byggir sína þekkingu alfarið á þeim gögnum sem er að finna á vef FÍN.

Ég hef ekki verið nógu duglegur að vekja athygli á nýjum vefjum þar sem Fúnksjón hefur komið að í ráðgjöf og verkefnastj...
26/03/2026

Ég hef ekki verið nógu duglegur að vekja athygli á nýjum vefjum þar sem Fúnksjón hefur komið að í ráðgjöf og verkefnastjórn. Byrja á að nefna vef Embættis forseta Íslands. Það var einkar ánægjulegt að vinna með starfsfólki embættisins og fá tækifæri að taka viðtal við Höllu forseta og taka þátt í vinnustofu með henni og fleirum. Ég mun skrifa (þegar um hægist) verkefnasögu um þetta verkefni og aðra vefi sem hafa litið dagsins ljós á síðustu mánuðum. Júní á veg og vanda af hönnun og forritun. Mikið fagfólk þar á ferðinni!

Hönnun í höndum stafrænu stofunnar Júní

20/12/2025
Tímaritið The Economist spáir ekki vel fyrir vefnum. Telur að gervigreindin sé að ganga af honum dauðum. Þetta er ekki í...
25/07/2025

Tímaritið The Economist spáir ekki vel fyrir vefnum. Telur að gervigreindin sé að ganga af honum dauðum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem vefnum er spáð dauða. Samfélagsmiðlar og öppin áttu líka að víkja honum úr vegi. Óumdeilt er að ógnin af gervigreind er mikil og tækifærin eru sömuleiðis gríðarleg fyrir vefinn. Hver eru líkleg áhrif til skemmri tíma? Hvað þurfa eigendur og já ráðgjafar að hafa í huga á næstu misserum. Þegar svörin eru veitt með aðstoð gervigreindar þá fara færri á vefinn. The Economist nefnir að heimsóknum á heilsuvefi hafi fækkað um 31% á þessu ári, um 15% fækkun er á heimildasíður eins og Wikipediu og um 10% fækkun er á vísindavefi og menntavefi. Hvernig ætlar þú að bregðast við áhrifum gervigreindar á þinn vef?

https://funksjon.is/2025/07/er-vefurinn-daudur-aftur/

NÝR VEFUR!! Þegar mikið er að gera eins og hefur verið síðustu mánuði þá sitja verkefni heima fyrir á hakanum. Svo koma ...
15/07/2025

NÝR VEFUR!! Þegar mikið er að gera eins og hefur verið síðustu mánuði þá sitja verkefni heima fyrir á hakanum. Svo koma rólegri tímar sem betur fer og þá gerast hlutir heima fyrir. Fúnksjón 2.0. kom út með nýtt merki (logo) fyrir nokkru og í dag fór í loftið nýr vefur fyrir ráðgjöfina. Ég er býsna ánægður með útkomuna og færi starfsfólki Avista kærar þakkir fyrir frábæra vinnu. Er ekki tilvalið að taka sér frí frá hitanum og vafra um nýjan vef? Sjá gamlar myndir af ráðgjafanum (næsta mál að taka nýjar myndir) en auðvitað fyrst og fremst upplýsingar um þjónustuna sem ég veiti.

Allt uppi á borðum eins og venjulega, tímagjaldið auðvitað opinbert, hispurslausar skoðanir í greinum og ráðgjöf á mannamáli.

Fúnksjón lagði lítið lóð á vogarskál borðtennisíþróttarinnar með stuðningi við landslið Íslands. Áfram Ísland! Áfram bor...
11/07/2025

Fúnksjón lagði lítið lóð á vogarskál borðtennisíþróttarinnar með stuðningi við landslið Íslands. Áfram Ísland! Áfram borðtennis!

Í dag leggur þessi glæsilegi hópur af stað á EM unglinga í Ostrava, Tékklandi – í nýjum landsliðsfötum frá TIBHAR.

Sérstakar þakkir til öflugu styrktaraðilanna okkar:
VON Iceland Harðfiskverkun
Ölgerðin Egill Skallagrímsson
Sjótækni ehf.
AMS ehf.
GGH ehf.
Ágúst Ármann
Fúnksjón vefráðgjöf

Áfram Ísland! 🇮🇸🏓

Mér finnst erfitt að trúa því að það séu 10 ár í dag, 19. mars, frá útgáfu Bókarinnar um vefinn. Af því tilefni var útgá...
19/03/2025

Mér finnst erfitt að trúa því að það séu 10 ár í dag, 19. mars, frá útgáfu Bókarinnar um vefinn. Af því tilefni var útgáfuhóf í Eymundsson þar sem mikill fjöldi mætti og þessu fólki tókst að koma bókinni óvænt á topp 10 lista yfir mest seldu bækurnar í vikunni á eftir. Bókin er merkilegt nokk ekki úreld þó vissulega megi uppfæra nokkra kafla hennar!

Og Fúnksjón er komin á fullt skrið á ný en 10. mars 2025 fór Fúnksjón í gang á ný og miðað við viðbrögðin er mikil eftirspurn eftir stafrænni ráðgjöf. Takk fyrir mig!

Síðustu vikur hef ég stokkið aftur inn í Fúnksjón vefráðgjöf meðan ég er í nokkurra mánaða leyfi frá störfum mínum hjá H...
19/04/2024

Síðustu vikur hef ég stokkið aftur inn í Fúnksjón vefráðgjöf meðan ég er í nokkurra mánaða leyfi frá störfum mínum hjá Hafnarfjarðarbæ en þangað sný ég aftur í ágúst. Bæði fjarlægðin, búandi erlendis, og andrými til að setja á sig önnur gleraugu hafa skilað sér í greinaskrifum um stafræn mál hins opinbera í stærra samhengi. Ég hef birt færslur á Linkedin en læt þessa fljóta líka hér en greinin hefur vakið upp miklar umræður á Linkedin og fengið mun meiri athygli en ég átti von á. Sem sagt fyrir þá sem vantar litla helgarlesningu þá er hún hér.

https://www.funksjon.net/2024/03/smakongar-rikisins-halda-afram-ad-stodva-stafraena-umbreytingu/

Hér á árum áður þá var ég duglegur að birta greinar á blogginu mínu og alveg kominn tími til að endurvekja þau skrif. Mi...
19/03/2024

Hér á árum áður þá var ég duglegur að birta greinar á blogginu mínu og alveg kominn tími til að endurvekja þau skrif. Mig hefur lengi langað til að skrifa um stærstu bremsuna á stafrænni umbreytingu hjá hinu opinbera sem eru íslensku Smákóngarnir (afsakið stóran staf og karlmynd) eða stjórnendur íslenskra ríkisstofnana. Meðvirkni með þeim verður að hætta. Tökum upp aga af erlendri fyrirmynd og skikkum stofnanir til að ganga í takt með Stafrænu Íslandi. Þá græða allir.

https://www.funksjon.net/2024/03/smakongar-rikisins-halda-afram-ad-stodva-stafraena-umbreytingu/

Stafræn umbreyting getur ótvírætt skilað árangri í bættri þjónustu og rekstri. Tvö verkefni sem hafa verið unnin hjá Haf...
19/02/2024

Stafræn umbreyting getur ótvírætt skilað árangri í bættri þjónustu og rekstri. Tvö verkefni sem hafa verið unnin hjá Hafnarfjarðarbæ undanfarin misseri hafa skilað samtals 37,3 milljóna króna sparnaði árlega. Það er ekki nóg að tala um mikilvægi stafrænna umbreytinga. Það verður að mæla ávinninginn. Þannig verður leiðin greiðari fyrir næstu verkefni. Hvernig gengur stafræn umbreyting í þínu fyrirtæki / stofnun?

Stafrænt ferðalag Hafnarfjarðarbæjar hófst á haustmánuðum 2019 með áherslubreytingum og stofnun á nýju sviði þjónustu og þróunar. Á þessum rétt rúmum fjórum árum hefur margt áunnist og stafrænir sigrar verið bæði stórir og smáir. Nýjasti stafræni sigurinn snýr að st...

Address

Gróska
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fúnksjón vefráðgjöf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Fúnksjón vefráðgjöf:

Share